Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

355. fundur
3. nóvember 2026 kl. 13:00 - 13:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir 1. varaforseti
Eyrún Fríða Árnadóttir 2. varaforseti
Hjalti Þór Vignisson aðalmaður
Reynir Ásgeirsson aðalmaður
Kolbrún Þorbjörg Björnsdóttir 1. varamaður
Gunnar Ásgeirsson 2. varamaður
Starfsmenn
Tjörvi Óskarsson Deildarstjóri upplýsingatæknideildar
Valdís Ósk Sigurðardóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Valdís Ósk Sigurðardóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Ósk um lausn frá störfum
Málsnúmer 202610114
Lögð er fram beiðni Ingibjargar Sveinsdóttur um lausn frá störfum sem kjörinn bæjarfulltrúi í Sveitarfélaginu Hornafirði til loka yfirstandandi kjörtímabils, með vísan til 30. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 23. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar nr. 116/2021, af persónulegum ástæðum.



Mál tekið fyrir á mínútu 4:00 í upptöku.

Varaforseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að veita Ingibjörgu Sveinsdóttur lausn frá störfum sem aðalmaður í bæjarstjórn til loka yfirstandandi kjörtímabils, með vísan til 2. mgr. 30. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 23. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar nr. 116/2021.

Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Kosning forseta bæjarstjórnar
Málsnúmer 202610113
Varaforseti lagði fram tillögu um að Björgvin Óskar Sigurjónsson verði forseti bæjarstjórnar til loka kjörtímabilsins 2026 - 2030.



Mál tekið fyrir á mínútu 5:00 í upptöku.
Varaforseti bar tillögu um forseta bæjarstjórnar upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Kosning í nefndir 2026-2030
Málsnúmer 202605781
Lögð fram eftirfarandi tillaga B-lista um breytingar á skipan í nefndir og ráð á vegum Sveitarfélagsins Hornafjarðar.



1. Bæjarráð

Ingibjörg Sveinsdóttir víkur sem aðalmaður og í hennar stað kemur Björgvin Óskar Sigurjónsson sem verði jafnframt varaformaður. Kolbrún Þorbjörg Björnsdóttur verður þá varamaður í bæjarráði í stað Björgvins Óskar Sigurjónssonar.



2. Fræðslu- og frístundanefnd

Ingibjörg Sveinsdóttir, varaformaður, og Björgvin Óskar Sigurjónsson víkja sem aðalmenn. Í þeirra stað kemur Erla Rún Guðmundsdóttir, sem verður varaformaður, og Theódór Óskar Þorvaldsson.



3. Atvinnu- og menningarmálanefnd

Erla Rún Guðmundsdóttir víkur sem aðalmaður og í hennar stað kemur Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir.



4. Fulltrúar á aðalfundi SASS

Ingibjörg Sveinsdóttir víkur sem fulltrúi á aðalfundi SASS og í hennar stað kemur Kolbrún Þorbjörg Björnsdóttir. Finnur Smári Torfason verður þá varamaður í stað Kolbrúnar Þorbjargar Björnsdóttur.



Mál tekið fyrir á mínútu 5:30 í upptöku.

Varaforseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Samningur um uppbyggingu nýs miðbæjar á Höfn
Málsnúmer 202610116
Lögð eru fram drög að samningi Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Landsbyggðar hf., dags. 31. október 2026, ásamt fylgiskjölum, um uppbyggingu nýs miðbæjar á Höfn. Lagt er til að bæjarstjórn samþykki að leggja samningsdrögin fyrir íbúa í ráðgefandi íbúakosningu, sbr. 5. lið í fundargerðinni hér á eftir, og að endanleg afgreiðsla samningsins fari fram að lokinni íbúakosningu.



Hjalti Þór Vignisson tók til máls



Mál tekið fyrir á mínútu 6:50 í upptöku.



Varaforseti bar tillögu um að bæjarstjórn samþykkti að leggja drög að samningi á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Landsbyggðar hf., dags. 31. október 2026, ásamt fylgiskjölum, um uppbyggingu nýs miðbæjar á Höfn fyrir í ráðgefandi íbúakosningu, sbr. 5. lið fundargerðarinnar hér á eftir og að endanleg afgreiðsla samningsins fari fram að lokinni íbúakosningu upp til atkvæða.

Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Íbúakosning um uppbyggingu nýs miðbæjar á Höfn
Málsnúmer 202610115
Lögð er fram tillaga um að efnt verði til ráðgefandi íbúakosningar frá og með 5. desember 2026 til og með 15. desember 2026 um fyrirhugaðan samning Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Landsbyggðar hf., dags. 31. október 2026, ásamt fylgiskjölum, um uppbyggingu nýs miðbæjar á Höfn sbr. 107. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og reglugerð nr. 922/2023 um íbúakosningar sveitarfélaga.



Lagt er til að skilmálar og auglýsing um íbúakosningu verði í samræmi við fram lagða tillögu sem birt er samhliða fundargerðinni þar sem nánar er kveðið á um tillögu að framkvæmd kosningarinnar.



Lagt er til að yfirkjörstjórn verði falið hlutverk kjörstjórnar.



Hjalti Þór Vignisson tók til máls



Mál tekið fyrir á mínútu 10:00 í upptöku.



Varaforseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að efnt verði til ráðgefandi íbúakosningar um fyrirhugaðan samning Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Landsbyggðar hf., dags. 31. október 2026, ásamt fylgiskjölum, um uppbyggingu nýs miðbæjar á Höfn.

Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

Varaforseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að skilmálar og auglýsing um íbúakosningu verði í samræmi við auglýsingu sem birt er samhliða fundargerðinni þar sem nánar er kveðið á um tillögu að framkvæmd kosningarinnar.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.

Varaforseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að yfirkjörstjórn verði falið hlutverk kjörstjórnar vegna vegna íbúakosningarinnar, sbr. 1. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 922/2023, og annast framkvæmd atkvæðagreiðslunnar.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.

Varaforseti lagði til að bæjarstjóra verði falið að annast lögbundnar tilkynningar og auglýsingar vegna kosningarinnar og undirbúa kynningargögn í samræmi við ákvæði laga og reglugerða.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.