Fjölmenningarráð
10. fundur
13. apríl 2023
kl.
16:15
-
17:30
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Goran Basrak
aðalmaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Ann Marie-Louise S Johansson
aðalmaður
Nikolina Tintor
1. varamaður
Starfsmenn
Anna Birna Elvarsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Anna Birna Elvarsdóttir
verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Humarhátíð
Humarhátíð verður haldin síðustu helgina í júní líkt og síðastliðin ár. Fjölmenningarráð hefur verið hvatt til þess að koma með hugmyndir og aðrar ábendingar um hvernig hægt er að höfða sérstaklega til innflytjenda.
Stefanía og Wiktoría komu fyrir hönd humarhátíðarnefndar og sögðu frá hugmyndum nefndarinnar, þar sem þetta er 30 ára afmæli hátíðarinnar stefnir í stórfögnuð og hugmyndir frá fjölmenningarráði því vel þegnar. Ákveðið var að dagskrá og allt tengt hátíðinni yrði þýtt á fleiri tungumál en á íslensku. Einnig var ákveðið að opna skyldi aftur fyrir hugmyndasöfnun tengda hátíðinni til þess að íbúar af erlendum uppruna gætu komið sínum hugmyndum á framfæri.
2.
Mannréttindastefna
Unnið er að nýrri mannréttindastefnu fyrir sveitarfélagið og fólst verkefnastjóra fjölmenningar- og gæðamála það verkefni að skrifa texta fyrir kafla hvað varðar uppruna og þjóðerni og verður hann kynntur og endurskoðaður af ráðinu.
Unnið er í mannréttindastefnu bæjarins og kemur starfsmaður ráðsins að því og skrifaði kafla um uppruna og þjóðerni og leitast eftir athugasemdum um kaflann. Engar athugasemdir bárust. Fjölmenningarráð fagnar að vinna sé hafin á nýrri mannréttindastefnu.
3.
Listafólk óskast
"Artists wanted" eða "listafólk óskast" auglýsingin fór í loftið í lok febrúar og nokkrir áhugasamir einstaklingar höfðu samband og verður framhald verkefnisins rætt.
Nokkrir aðilar höfðu samband vegna verkefnisins "artists wanted" og voru þeir aðilar sem höfðu samband kynnt fyrir ráðinu. Fjölmenningarráð fagnar því hversu margir höfðu samband og verður málinu héðan í frá vísað til Snæbjörns Brynjarsson og rætt verður við hann um að reyna að setja sýningu upp í kringum Humarhátíð.
4.
Túlka- og þýðingarþjónusta
Upp kom sú hugmynd um hvort mætti skoða það að finna tengiliði frá fjölmennustu þjóðarbrotunum í samfélaginu sem myndu miðla uppllýsingum á sínu tungumáli til annara sem tala tungumálið.
Rætt var um hvort það væri þörf fyrir einhvers konar tengslanet af íbúum af erlendum uppruna og komu upp margar hugmyndir af framkvæmd. Starfsmanni ráðs var falið að kanna málið frekar.
5.
Fjölmenningaráð
Skoða þörf fyrir foreldrafélag í leik- og grunnskóla sem er einungis skipað fólki sem á íslensku sem annað mál.
Rætt var um hvort þörf væri fyrir einhvers konar hóp foreldra barna af erlendum uppruna og horft er þá sérstaklega til Árborgar sem stofnaði svokallað Fjölmenningarteymi árið 2015. Starfsmanni ráðs var falið að kanna málið og jafnvel ræða við fjölmenningarstjóra Árborgar og athuga hvort hún gæti kynnt þetta fyrir okkur á næsta fundi í samstarfi við frístundar- og fræðslusvið.
6.
Kynningar á fastanefndum
Upp kom sú hugmynd um að kynna störf fjölmenningarráðs fyrir öðrum nefndum og ráðum sveitarfélagsins til þess að minna á okkur.
Rætt var hvernig best væri að minna á tilvist fjölmenningarráðs og ákveðið var að fela starfsmanni ráðs að vekja frekari athygli á okkur, bæði til annara nefnda og almennra íbúa sveitarfélagsins.