Fjölmenningarráð
29. fundur
18. ágúst 2026
kl.
16:15
-
18:00
í Miðgarði
Nefndarmenn
Maciej Rózanski
aðalmaður
Wiktoria Anna Darnowska
aðalmaður
Goran Basrak
aðalmaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Courtney Michelle Brooks
aðalmaður
Starfsmenn
Anna Birna Elvarsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Anna Birna Elvarsdóttir
verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Erindisbréf nefnda og ráða
Undir þessum lið sat fjölmenningarráð með velferðarnefnd þar sem farið var yfir grundvallaratrði varðandi fundasetu, m.a. erindisbréf ráða og nefnda sem starfa á velferðarsviði.
Fjölmenningarráð þakkar fyrir fræðsluna.
2.
Fundargátt sveitarfélagsins - kynning fyrir nefnd
Eftirfarandi liður fór einnig fram með velferðarnefnd.Kynning á fundargátt sveitarfélagsins https://fundargatt.hornafjordur.is/login/.
Fjölmenningarráð þakkar fyrir fræðsluna.
3.
Kosning í nefndir 2026-2030
Farið var yfir formennsku nýs fjölmenningarráðs, en bæjarráð ákvað það í samræmi við nýtt erindisbréf fjölmenningarráðs.
Ráðið bíður nýjann formann Wiktoriu Önnu Darnowsku, og varaformann, Maciej Rozanski velkomin til starfa, og sömuleiðis nýtt ráð.
4.
Sundlaugamenning á skrá UNESCO - Kallað eftir þátttöku sveitarfélaga
Sótti fjölmenningarráð sveitarfélagsins um styrk fyrir samvinnuverkefni með FAS og Sundlaug Hafnar, en var hugmyndin að tengja viðburðinn frekar við fjölmenningarbíó, sem fara aftur af stað í haust.Bárust 46 umsóknir og fengu 22 verkefni styrkinn að þessu sinni, meðal annars þetta verkefni. Fer viðburðurinn fram 28. ágúst og rætt var um frekari undirbúning.
Fjölmenningarráð er virkilega spennt fyrir viðburðinum og hvetur sem flest til að mæta í sundlaugabíó 28. ágúst.
5.
Fjölmenningarbíó
Fjölmenningarráð stóð fyrir alþjóðlegum bíó og matarkvöldum á síðasta ári og vill gjarnan endurtaka leikinn þetta haust. Rætt var um skipulag kvöldanna og hvernig best væri að standa að þeim þetta árið.
Ráðið ræddi hvaða kvikmyndir yrðu fyrir valinu, en stefnt er á fyrstu sýningu í október. Ráðið felur starfsmanni að vinna frekar að viðburðunum.
6.
Bara tala
Farið var yfir nýjustu tölur og virkni í Bara Tala smáforritinu. Einnig var rætt um fyrirhugaða heimsókn stjórnenda Bara Tala austur, en þeir stefna á að taka upp kynningarefni á svæðinu.
Ráðinu þykir leiðilegt að sjá hversu lítil notkun er á smáforritnu á sumum vinnustöðum. Þá var rætt hvernig væri hægt að efla notkun starfsfólks á forritnu sem starfsmanni er falið að vinna frekar í.