Fjölmenningarráð
30. fundur
7. október 2026
kl.
16:15
-
17:30
í Miðgarði
Nefndarmenn
Maciej Rózanski
aðalmaður
Wiktoria Anna Darnowska
aðalmaður
Goran Basrak
aðalmaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Courtney Michelle Brooks
aðalmaður
Starfsmenn
Anna Birna Elvarsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Anna Birna Elvarsdóttir
verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Endurnýjun jafnréttisáætlunar 2027-2031
Sviðstjóri velferðarsviðs og verkefnastjóri fjölmenningar-, inngildingar-, og jafnréttismála hafa nú hafist handa á uppfærslu jafnréttisáætlunar. Þar sem margt í áætluninni kemur inn á fjölmenningu, var leitað til ráðsins með athugasemdir um hvað má uppfæra.
Fjölmenningarráð er ánægt með að uppfærsla á jafnréttisstefnu er farin af stað. Bent var á margt sem þarf að laga, t.d. uppfærða starfstitla, en innihaldið er samt sem áður gott og þarfnast ekki mikilla lagfæringa. Er það í takt við það sem jafnréttisstofa hefur sagt, og mun verkefnastjóri fjölmenningar-, inngildingar-, og jafnréttismála leita frekar til hennar við uppfærsluna.
2.
Fjölmenningarbíó
Rætt var um þá ákvörðun um að fresta fjölmenningarbíó- og matarkvöldunum þangað til snemma ársins 2027.
Fjölmenningarráð er spennt fyrir viðburðunum og felur starfsmanni að sækja um í uppbyggingarsjóð SASS fyrir verkefnið.
3.
Upplýsingar um málefni íbúa af erlendum uppruna
Uppfæra þarf upplýsingar fyrir erlenda íbúa í Sveitarfélaginu inná vefsíðu sveitarfélagsins. Margt er orðið úrelt, og betra væri að hafa allar helstu upplýsingar á sama stað svo sem auðveldast er fyrir nýja íbúa að leita sér upplýsinga. Einnig væri hægt að fækka QR kóðum í bæklingnum sem nýjir erlendir íbúar fá senda mánaðarlega. Leitað var til ráðsins um hvað þeim þykir mikilvægast að komi fram.
Mikil samræða skapaðist um upplýsingagjöf til erlendra íbúa, sem að mati ráðsins mætti vera betri. Fyrsta skrefið er að uppfæra upplýsingar inná vefsíðu sveitarfélagsins en ráðið kom þó með margar hugmyndir sem starfsmanni ráðs er falið að vinna frekar.
4.
Pólsk-Íslensk samstarfsverkefni
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til pólsk-íslenskra samstarfsverkefna á sviði menningar og lista og menningararfs. Rætt var um möguleika á að sækja um styrk og nýta verkefnið til að efla fjölmenningu, menningarlega samræðu og félagslega samheldni í sveitarfélaginu. Hægt að skoða betur hér: https://www.sass.is/frettir/opnad-fyrir-styrki-til-polsk-islenskra-samstarfsverkefna
Ráðið kom með margar skemmtilegar og mjög svo frumlegar hugmyndir af samstarfsverkefnum og er starfsmanni falið að vinna umsóknirnar.