Fara í efni

Fjölmenningarráð

4. fundur
26. apríl 2022 kl. 16:15 - 18:15
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Nejra Mesetovic formaður
Goran Basrak aðalmaður
Bartek Andresson Kass aðalmaður
Ann Marie-Louise S Johansson aðalmaður
Starfsmenn
Hildur Ýr Ómarsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Hildur Ýr Ómarsdóttir verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202001013
Bæjarráð óskaði eftir umsögn frá fastanefndum sveitarfélagsins.
Fjölmenningarráð tók umhverfisstefnuna til umfjöllunnar og leggur til að næst þegar farið verður í stefnumótun verði
íbúum sveitarfélagsins einnig boðið að koma að vinnu umhverfisstefnunnar og að þátttaka íbúa sem ekki tala íslensku sé gerð möguleg.
2.
Erindi til fjölmenningarráðs frá Nýheimum
Málsnúmer 202204050
Starfsmenn Nýheima hyggjast auglýsa betur þjónustu setursins við háskólanema og óskuðu eftir áliti ráðsins á hvað tungumálum ætti að auglýsa.
Fjölmenningarráð þakkar kærlega fyrir erindið og fagnar því að Nýheimar Þekkingarsetur vilji leggja sig fram við að kynna þjónustu sína fyrir íbúum af erlendum uppruna. Ráðið mælir með að upplýsingarnar verði aðgengilegar á ensku, pólsku og serbókróatísku. Ráðið mælir einnig með að Nýheimar komi fyrir google-translate flipa á heimasíðunni sinni til að gera efni hennar aðgengilegra íbúum sem ekki tala íslensku.
3.
Kosningaréttur erlendra íbúa
Málsnúmer 202112018
Starfsmaður ráðsins óskaði eftir því að send yrði áskorun á flokkana að birta stefnuskrá sína á ensku fyrir kosningarnar í maí. Fjölmenningarsetur hefur sett í loftið öflugan vef með upplýsingum um kosningar ætluðum erlendum íbúum og getur ráðið deilt efni beint inn á Living in Hornafjörður. https://www.mcc.is/x22/
Fjölmenningarráð hvetur öll framboðin sem bjóða sig fram til sveitarstjóranarkosninga í maí 2022 til að birta stefnuskrá sína á ensku eða að koma fyrir google-translate flipa á heimasíðu flokksins. Ráðið hvetur einnig sveitarfélagið til að birta upplýsingar varðandi kosningarnar á fleiri tungumálum en íslensku.
4.
Móttaka flóttafólks
Málsnúmer 202203054
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur ákveðið að taka á móti fólki á flótta frá Úkraínu og er verið að undirbúa móttöku í samvinnu við Rauða krossinn.
Ráðið upplýst um undirbúningsvinnu vegna móttöku flóttafólks frá Úkraínu og hvernig staðið hefur verið að máttöku þeirra sem komnir eru. Ráðið lýsti yfir ánægju sinni með ákvörðun bæjarstjórnar sveitarfélagsins með að ganga inn í samræmda móttöku flóttafólks. Ráðið leggur til að móttökubæklingur sveitarfélagsins verði þýddur á úkraínsku.
5.
Fræðsla um fjölmenningu og menningarnæmi
Málsnúmer 202204051
Donata Bukowska, sérfræðingur í skólaþróunarteymi mennta- og menningarmálaráðuneytisins, er væntanleg til Hornafjarðar dagana 2. - 4. maí með fræðslu um fjölmenningu og menningarnæmi.
Ráðið sammála um mikilvægi þess að fá fjölmenningarfræðslu til Hornafjarðar. Meðlimum ráðsins boðið að sitja fræðslu í Nýheimum mánudaginn 2. maí kl: 14.