Fjölmenningarráð
8. fundur
13. desember 2022
kl.
16:15
-
18:30
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Goran Basrak
aðalmaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Bartek Andresson Kass
aðalmaður
Ann Marie-Louise S Johansson
aðalmaður
Nikolina Tintor
1. varamaður
Starfsmenn
Hildur Ýr Ómarsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Hildur Ýr Ómarsdóttir
verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Fjölmenning í Sveitarfélaginu Hornafirði
Á fundi ráðsins þann 11. október sl. var ákveðið að nýta niðurstöður úr skýrslu SASS um aðlögun erlendra íbúa til að móta áherslupunkta fyrir 2023.
Ráðið fór yfir þau markmið sem sett voru fyrir árið 2022, ákváðu hvaða verkefni skyldi halda áfram með og settu sér ný markmið fyrir 2023. Nýju markmiðin voru ákveðin út frá niðurstöðum rannsóknar SASS sem unnin var árið 2021 á svæðinu frá Rangárþingi eystra að Sveitarfélaginu Hornafirði. Starfsmanni falið að uppfæra nýja starfsáætlun fyrir næsta ár út frá ábendingum ráðsins.
2.
Móttaka flóttafólks
Verkefnastjóri fjölmenningarmála greinir frá stöðu mála.
Verkefnastjóri fjölmenningarmála hefur verið í samtali við Fjölmenningarsetur og ráðgjafa í málefnum flóttamanna hjá Reykjavíkurborg og Hafnarfjarðarbæ vegna íbúðanna sem teknar voru frá fyrir flóttamenn og hafa staðið tómar síðan í júlí. Nokkrar fjölskyldur hafa sýnt því áhuga að koma en hætt við. Fjölmenningarráði þykir það ekki forsvaranlegt íbúðirnar standi tómar mikið lengur þar sem húsnæðisskortur á svæðinu er mikill og fólk á biðlista eftir félagslegu húsnæði. Sveitarfélagið hefur ekki skrifað undir samninga um samræmda móttöku en hefur þó gefið það út að vera tilbúið til þess ef fólk fæst til að koma. Starfsmanni falið að ræða við bæjarstjóra um stöðu mála og næstu skref.
3.
Skýrsla um stöðu tvítyngdra leikskólabarna
Á fundi ráðsins þann 11. október sl. benti einn ráðsmanna á niðurstöður nýrrar íslenskrar rannsóknar á stöðu tvítyngdra leikskólabarna. Þar kom fram að tvítyngd börn sýndu mun slakari færni í íslensku samanborið við meðalgetu eintyngdra jafnaldra í öllum þeim athugunum sem gerðar voru. Starfsmanni var falið að kynna sér hvernig málörvun barna af erlendum uppruna væri háttað í Leikskólanum Sjónarhól á Höfn.
Þóra Jóna Jónsdóttir yfirmaður stoðþjónustu leikskólans Sjónarhóls skrifaði greinargerð um málörvun tvítyngdra barna á leikskólanum og var hún kynnt fyrir ráðinu. Þar kemur fram að markviss málörvun hefjist í kringum tveggja ára aldurinn og að starfsmenn stoðþjónustu leikskólans sjái um málörvunartíma og að hver hópur fái tíma 3 - 5 sinnum í viku. Í greinargerðinni kom fram að Þau börn sem þyrftu sértækari þjónustu fengju tíma hjá talmeinafræðingi ca. 1 sinni í viku. Í ljósi niðurstöðu rannsóknar um stöðu tvítyngdra leikskólabarna á Íslandi leggur ráðið til að málþroski þessara barna sé metinn áður en þau fara í grunnskóla. Starfsmanni falið að ræða við yfirmann fræðslu- og frístundasviða.
4.
Fjölmenning - stefnumótun
Starfsmaður ráðsins upplýsir um stöðu mála.
Starfsmaður fjölmenningarráðs hafði samband við Eyrúnu Fríðu sem mun stýra gerð mannréttindastefnu sveitarfélagsins. Það stendur til að boða hópinn á fund í desember og fara svo formlega af stað með vinnuna í janúar.
5.
Erindi til fjölmenningarráðs frá Svavarssafni
Ráðinu barst erindi frá safnverði Listasafns Svavars Guðnasonar varðandi það hvernig gera mætti safnið aðgengilegra fyrir íbúa af erlendum uppruna.
Ráðið fagnaði erindinu frá safnverði Listasafns Svavars Guðnasonar og áhuga hans fyrir að koma til móts við erlenda íbúa. Ráðið ræddi hugmyndir og faldi starfsmanni að bera þær undir safnvörð.