Fara í efni

Fjölmenningarráð

9. fundur
14. febrúar 2023 kl. 16:15 - 18:15
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Goran Basrak aðalmaður
Nejra Mesetovic formaður
Bartek Andresson Kass aðalmaður
Matsupha Brynjulfsson aðalmaður
Ann Marie-Louise S Johansson aðalmaður
Starfsmenn
Hildur Ýr Ómarsdóttir embættismaður
Anna Birna Elvarsdóttir
Fundargerð ritaði:
Anna Birna Elvarsdóttir verkefnastjóri fjölmenningarmála
Dagskrá
1.
Hornafjörður náttúrulega
Málsnúmer 202301036
Bæjarráð vísar heildarstefnu sveitarfélagsins Hornafjörður Náttúrulega til kynningar í nefndum og ráðum sveitarfélagsins. Bæjarstjóri mætir á fundinn og kynnir stefnuna.
Bæjarstjóri, Sigurjón Andrésson, kynnti ráðinu fyrir heildarstefnu sveitarfélagsins, "Hornafjörður náttúrulega".
Kynningin fór fram á ensku.
2.
Fjölmenning í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 202110002
Verkefnalisti fyrir árið 2023 verður lagður fram til umsagnar.
Verkefnalisti fyrir árið 2023 var lagður fram til umsagnar og rætt um þau verkefni sem þarf að sinna á árinu.
Starfsmanni ráðs falið að skoða möguleika á því að börn á grunnskólaaldri fái móðurmálskennslu á fleiri tungumálum en pólsku.
Kom til tals að taka fyrir fjarkennslumöguleika fyrir fólk af erlendum uppruna á fundi í framtíðinni, stórt verkefni sem þarf mikinn tíma.

3.
Mannréttindastefna
Málsnúmer 202301007
Stofnaður hefur verið stýrihópur sem kemur að gerð nýrrar mannréttindastefnu og kynnir starfsmaður stöðu hennar og óskar eftir áliti.
Starfsmaður kynnti stöðu á vinnslu nýrrar mannréttindastefnu sveitarfélagsins. Starfsmaður mun kynna kafla sem snýr að fjölmenningu fyrir ráðinu og óska eftir ábendingum og áliti á kaflanum þegar að þar kemur.
4.
Móttaka flóttafólks
Málsnúmer 202203054
Tekið var á móti fjölskyldu þann 11.janúar síðastliðinn. Starfsmaður ræðir praktísk atriði varðandi móttöku og mögulega móttöku nýrrar fjölskyldu.
Starfsmaður velferðarsviðs fjallaði um móttöku flóttafólks í sveitarfélaginu. Starfsmaður ræddi einnig praktísk atriði og mögulega móttöku nýrrar fjölskyldu.
Ákveðið var að taka á móti 8 einstaklingum í ár og með komu nýrrar fjölskyldu sem kemur í vikunni er sá kvóti uppfylltur.
5.
Skýrsla um stöðu tvítyngdra leikskólabarna
Málsnúmer 202212010
Starfsmaður kynnir svar sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs við fyrirspurn fjölmenningarráðs.
Meðlimir fjölmenningarráðs óskuðu eftir eftirfylgni um skýrslu hvað varðar stöðu tvítyngdra leikskólabarna í sveitarfélaginu og kynnti starfsmaður svar sviðsstjóra fræðslu- og frístundarsviðs við óskinni.