Fræðslu- og frístundanefnd
100. fundur
17. apríl 2023
kl.
16:15
-
19:45
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir
formaður
Þóra Björg Gísladóttir
varaformaður
Kjartan Jóhann Einarsson
2. varamaður
Kristján Örn Ebenezersson
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir
sviðstjóri fræðslu- og frístundasviðs
Dagskrá
1.
Foreldrakönnun grunnskóla - Skólapúlsinn 2023
Í samstarfi við Skólapúlsinn er foreldrakönnun lögð fyrir í febrúar ár hvert í Grunnskóla Hornafjarðar.
Fram kom að foreldrar eru ekki ánægðir með húsnæði skólans, sérstaklega á yngra stigi og í Kátakoti. Einnig eru foreldrar óánægðir með hraða á úrvinnslu eineltismála þó einungis séu verið að vinna í þremur eineltismálum. Að öðru leyti kom foreldrakönnunin vel út.
2.
Undirbúningstímar á leikskóla
Reynst hefur erfitt að koma auknum undirbúningstíma að á leikskólanum og óskað er eftir tveimur auka stöðugildum til að koma til móts við aukinn undirbúningstíma hjá starfsmönnum.
Farið var yfir tildrög málsins og vísar fræðslu- og frístundanefnd því áfram til afgreiðslu í bæjarráði.
3.
Betri vinnutími í leikskóla
Á síðustu árum hefur verið unnið að því að stytta vinnuvikuna í leikskólum eins og öðrum opinberum stofnunum. Á landsvísu hefur reynst hvað erfiðast að stytta vinnuvikuna á leikskólum og sjá má ákveðinn flótta úr leikskólum í aðrar skólastofnanir. Í síðasta kjarasamningi leikskólakennara (FL) og Sambands íslenskra sveitarfélaga var kveðið á um að koma á fullri styttingu (4 klst. á viku) fyrir síðustu mánaðarmót. Það hefur ekki tekist hér og hafa FL félagar á Sjónarhóli ekki viljað skera sig frá öðrum starfsstéttum þar og því hefur verið leitað eftir lausnum sem hentað gætu fyrir alla.
Sú nálgun sem hér er rædd felur í sér að í stað þess að gefa foreldrum færi á að sækja um lækkun leikskólagjalda um jól og páska með því að taka barnið úr leikskólanum þá sé leikskólinn í raun lokaður á þessum tíma en hægt sé að sækja um gæslu á leikskólanum fyrir þau börn sem þess þurfa og greitt sé aukalega fyrir hana. Þannig er reynt að skerða ekki þjónustu við þá sem nauðsynlega þurfa á henni að halda heldur frekar lokað á þjónustu til þeirra sem ekki þurfa á henni að halda. Einnig er verið að færa starfstíma leikskóla nær starfstíma grunnskóla.
Með þessu móti standa vonir til að flestir starfsmenn geti tekið að minnsta kosti helming styttingarinnar út í jóla- og páskafríi og myndi það þá létta á öðrum dögum. Einnig væri möguleiki að skoða fleiri útfærslur svo sem sambærilega lokun í tengslum við vetrarfrí og lengri lokun leikskólans í sumarfríi.
Fræðslu- og frístundanefnd styður að byrja á jóla og páskafríi og breyta reglum um starfsemi leikskóla í samræmi við það. Þetta verði gert næsta skólaár og árangur metinn eftir það. Málinu vísað til bæjarráðs.

4.
Breyttur opnunartími Þrykkjunnar
Til að fylgja eftir lögum um þjónustu við fatlað fólk er lagt til að auka almennan opnunartíma Þrykkjunnar næsta vetur og auka starfshlutfall forstöðumanns í samræmi við það. Markmiðið með lengri opnunartíma er að draga úr aðgreiningu og koma betur til móts við þarfir fleiri barna.
Fræðslu- og frístundanefnd telur að um bætta þjónustu sé að ræða fyrir alla og vísar málinu til bæjarráðs til afgreiðslu.
5.
Ársskýrsla Golfklúbbs Hornafjarðar 2022
Í apríl á hverju ári koma fastir styrkhafar sveitarfélagsins innan fræðslu og tómstundageirans á fund nefndarinnar og gera grein fyrir helstu áherslum í starfinu.
Halldóra Guðmundsdóttir nýr formaður GHH fylgdi skýrslunni úr hlaði. Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir skýrsluna og óskar GHH til hamingju með breytingar sem gerðar hafa verið á golfskálanum en nú fer að sjá fyrir endann á þeim. Um síðustu áramót skrifaði sveitarfélagið undir nýjan samning við GHH og styrkti félagið auk þess vegna endurbóta og vonandi á hvort tveggja eftir að efla starfsemi klúbbsins.
6.
Ársskýrsla Hestamannafélagsins Hornfirðings 2022
Í apríl á hverju ári koma fastir styrkhafar sveitarfélagsins innan fræðslu og tómstundageirans á fund nefndarinnar og gera grein fyrir helstu áherslum í starfinu.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir framlögð gögn og óskar HH til hamingju með glæsilegt barna- og unglingastarf. Nú er verið að leggja lokahönd á lóðaleigusamning vegna Reiðhallarinnar og þar með er löngu ferli vegna samnings HH og SVH að ljúka.
7.
Ársskýrsla Björgunarfélags Hornafjarðar 2023
Í apríl á hverju ári koma fastir styrkhafar sveitarfélagsins innan fræðslu og tómstundageirans á fund nefndarinnar og gera grein fyrir helstu áherslum í starfinu.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir greinagóða skýrslu og ársreikninga og óskar Björgunarfélaginu góðs gengis með byggingu nýrrar björgunarmiðstöðvar.
8.
Staðan á knattspyrnuvöllunum
Knattspyrnudeildin óskaði eftir stuðningi vegna bikarkeppnileiks sem keppa þurfti á Reyðarfirði 8. apríl.
Farið var yfir stöðuna á knattspyrnuvöllunum. Vonir standa til þess að vellirnir verði í betra standi eftir þær aðgerðir sem farið verður í á næstu vikum. Eftir sumarið er mikilvægt að meta stöðuna og hvort þurfi að fara í meiri framkvæmdir.
Framtíðaruppbygging íþróttamannvirkja er til skoðunar og knattspyrnuvellirnir eru inn í þeirri skoðun líkt og skólahúsnæðið. Ljóst er að þessi vinna tekur tíma og ekki ljóst hvað verður gert né hver forgangsröðun verður. Því er mikilvægt að sinna viðhaldi og umhirðu vallanna sem best.
Knattspyrnudeildin óskaði eftir auka stuðningi við bikarleik 8. apríl þar sem hvorugur völlurinn var í keppnisástandi. Bæjarráð vill ekki skapa fordæmi með því að styrkja eina deild umfram aðra og fræðslu- og frístundanefnd tekur undir það.

9.
Ársskýrsla umf.Sindra 2022
Í apríl á hverju ári koma fastir styrkhafar sveitarfélagsins innan fræðslu og tómstundageirans á fund nefndarinnar og gera grein fyrir helstu áherslum í starfinu. Formaður og framkvæmdastjóri Umf. Sindra fara yfir ársskýrslu og reikninga liðins árs. Þessar upplýsingar eru einnig á heimasíðu Umf. Sindra.
Umræður sköpuðust um skýrslu Sindra og fjárhag félagsins sem hefur oft verið betri. Í haust kom ósk frá félaginu um aukinn stuðning en þar sem óljóst var hver staðan var í raun og veru og áætlanir um rekstur félagsins lágu ekki fyrir var ákveðið að bíða eftir ársreikningum og rekstraráætlun þessa árs. Töluverð vinna var í að gera ársreikningana og enn á eftir að gera rekstraráætlanir fyrir stærstu deildirnar. Sú vinna er þó farin í gang og lögð verður áhersla á vinna meira í þeim. Ljóst er að það þarf að fá kerfi sem auðveldar utanumhald um fjármál félagsins og aðstoða við yfirsýn.
Fræðslu- og frístundanefnd vísar ósk um stuðning við félagið sem fram kom i haust til bæjarráðs sem mun boða aðalstjórn og framkvæmdastjóra á fund þegar áætlanirnar um reksturinn liggja fyrir.
Það skal þó tekið fram að allar deildir eru í góðum málum fyrir utan meistaraflokka í körfu og knattspyrnu. Hjá Sindra eru 9 deildir og mikill fjöldi iðkenda og almennt mjög blómlegt starf.
Fræðslu- og frístundanefnd óskar Sindra til hamingju með blómlegt starf og óskar þeim góðs gengis við að koma rekstrarmálum í gott horf.

10.
Framtíðarskipan skólahúsnæðis á Höfn
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkti á síðasta kjörtímabili að framtíðaruppbyggingarsvæði Grunnskóla Hornafjarðar yrði niður við Heppuskóla og skólinn færi þar undir eitt þak.
Fræðslu- og frístundanefnd leggur áherslu á að horft verði til framtíðaruppbyggingar skólahúsnæðis samhliða vinnu við framtíðarskipulag íþróttamannvirkja.
11.
Farsældarlögin innleiðing
Með innleiðingu laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna https://www.althingi.is/altext/151/s/1723.html er m.a. kveðið á um að öll börn og foreldrar skuli hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barna eftir því sem þörf krefur.
Óskað er eftir samtals 85% stöðuaukningu sem deilist á alla skóla sveitarfélagsins. Fræðslu- og frístundanefnd fór yfir málið og er jákvæð gagnvart þessu erindi og vísar því til bæjarráðs til afgreiðslu.
12.
Samstarfssamningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar við Umf.Vísi
Ungmennafélagið Vísir í Suðursveit hefur verið endurvakið. Félagið fór fram á afnot af Hrollaugsstöðum og í kjölfarið var eftirfarandi samstarfssamningur undirritaður.
Mál lagt fram til kynningar. Fræðslu- og frístundanefnd óskar Suðursveitungum og aðstandendum Vísis til hamingju með að hafa endurvakið félagið og óskar þeim velfarnaðar í starfi og leik.
13.
Hinsegin fræðsla í grunnskólun Hornafjarðar
Mál lagt fram til kynningar að ósk Hagsmunasamtaka 22 samkynhneigðra.
Sveitarfélagið Hornafjörður fagnar fjölbreytileikanum og í öllu starfi sveitarfélagsins er réttur alls fólks jafn.
Öll eigum við tilkall til mannréttinda óháð kynvitund, kynhneigð, litarhætti, kynþætti, kynferði, trúar, skoðana, tungu, þjóðernis, uppruna, ætternis, eigna eða annarra aðstæðna.
Því telur sveitarfélagið sig ekki eiga samleið með þeim gildum sem Samtökin 22 hefur sett sér.
Vísar nefndin að lokum í 3. grein Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna sem er svo hljóðandi:
Allir eiga rétt til lífs, frelsis og mannhelgis.

14.
Skólastjóri í Hofgarði
Hafdís Sigrún Roysdóttir hefur sagt starfi sínu lausu frá og með 1. ágúst 2023. Auglýst verður eftir nýjum skólastjóra á næstu dögum.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar Hafdísi fyrir vel unnin störf og óskar henni velfarnaðar á nýjum slóðum.
15.
Íslensku menntaverðlaunin 2023
Opið fyrir tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2023.Er framúrskarandi kennari, verkefni og/eða menntaumbætur í þínu sveitarfélagi? Því ekki að tilnefna þau til íslensku menntaverðlaunanna?Íslensku menntaverðlaunin 2023 verða afhent að Bessastöðum í nóvember næstkomandi og nú hefur verið opnað fyrir tilnefningar.Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Verðlaunin eru í fimm flokkum:1.Framúrskarandi skóla- eða menntaumbætur2.Framúrskarandi kennari3.Framúrskarandi þróunarverkefni4.Framúrskarandi iðn- og verkmenntun5.Hvatningarverðlaun til einstaklings, hóps eða tilnefningar skulu hafa borist fyrir 1. júní n.k.Sjá nánar: https://skolathroun.is/menntaverdlaun/