Fræðslu- og frístundanefnd
102. fundur
14. júní 2023
kl.
16:15
-
19:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir
formaður
Þóra Björg Gísladóttir
varaformaður
Andri Már Ágústsson
aðalmaður
Kristján Örn Ebenezersson
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir
sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Starfsáætlun fyrir leik- og grunnskólann í Hofgarðir 2023
Starfsáætlun samrekins leik- og grunnskóla í Hofgarði lögð fram og samþykkt.
2.
Skólastjóri í Hofgarði
Áróra Gústafsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri við Grunnskólann í Hofgarði og hefur störf þar 1. ágúst.
Fræðslu- og frístundanefnd býður Áróru hjartanlega velkomna til starfa. Hafdísi Sigrúnu Roysdóttur fráfarandi skólastjóra er þakkað fyrir vel unnin störf og henni óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi.
3.
Starfsáætlun Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu 2023
Starfsáætlun Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu lögð fram og samþykkt.
4.
Starfsáætlun Grunnskóla Hornafjarðar 2023
Starfsáætlun Grunnskóla Hornafjarðar lögð fram og samþykkt. Starfsáætlunin / handbókin verður ekki gefin út á prenti næsta vetur heldur verður hún eingöngu á netinu.
5.
Ársskýrsla verkefnastjóra á fræðslu- og frístundasviði júní 2023
Ársskýrsla verkefnastjóra á fræðslu- og frístundasviði lögð fram og samþykkt.
6.
Ársskýrsla forstöðumanns Þrykkjunnar júní 2023
Ársskýrsla lögð fram og samþykkt. Sigríði jafnframt þökkuð vel unnin störf og óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi.
7.
Vallarstjórn 2023
Farið yfir stöðuna á knattspyrnuvöllunum. Jökulfellsvöllurinn er heldur að taka við sér en hann er ekki góður og töluvert af skallablettum í honum. Það er búið gata völlinn þrisvar og tappa einu sinni. Það stendur til að tappa hann aftur en það verður metið hvort og hvenær. Mikil spretta er á vellinum núna og hann er sleginn oft, þannig sléttist hann og jafnar sig vonandi. Völlurinn kom illa undan erfiðum vetri og hann hefur aldrei verið eins slæmur.
Mánavöllur er betri eins og er, sléttari og aðstaðan er betri fyrir utan völlinn, bæði fyrir keppendur og áhorfendur. Enn vantar þó lögn til að hægt sé að vökva Mánavöll eins og þarf því hann verður mjög þurr í svona veðri.
Nýr salernisgámur ætti að koma upp á næstu dögum við Báruna.
Mánavöllur er betri eins og er, sléttari og aðstaðan er betri fyrir utan völlinn, bæði fyrir keppendur og áhorfendur. Enn vantar þó lögn til að hægt sé að vökva Mánavöll eins og þarf því hann verður mjög þurr í svona veðri.
Nýr salernisgámur ætti að koma upp á næstu dögum við Báruna.
8.
Ársskýrsla fræðslustjóra, júní 2023
Þórgunnur fór yfir ársskýrslu fræðslustjóra og var hún samþykkt.
9.
Framkvæmd. Stækkun leikskóla á Hornafirði - Sjónarhóll
Framkvæmdir við viðbyggingu á leikskólanum voru boðnar út í apríl en því miður bárust engin tilboð í verkið. Umhverfis- og skipulagssvið leggur til að breytingar á skólalóðinni verði teknar út úr verkinu og þær gerðar í sumar og verkið aftur boðið út á haustdögum.
Jarðvegsvinna undir viðbyggingu og bílastæðið yrði líka unnin í sumar og markmiðið er að lokið verði við allar framkvæmdir í sumar nema húsið sjálft. Þetta gefur skipulagssviðinu líka tíma til að skoða hvort hægt sé að gera eitthvað til að gera verkið meira aðlaðandi fyrir verktaka. Fundarmenn sammála um að reyna þessa leið og leggja áherslu á að reynt verði eftir fremsta megni að ljúka framkvæmdum á leikskólalóðinni á meðan leikskólinn er lokaður í sumar.
10.
Starfsáætlun Sjónarhóls 2023
Starfsáætlun lögð fram og samþykkt. Mannekla og mannabreytingar hafa einkennt síðasta vetur og enn vantar töluvert af starfsfólki fyrir haustið. Vonandi tekst þó að manna fyrir haustið svo hægt verði að opna allar deildir. Umræður sköpuðust um fjölda starfsmanna af erlendum uppruna - leikskólinn stendur oft frammi fyrir því að ráða fólk sem talar litla sem enga íslensku en á móti má segja að ef ekki er hægt að ráða fólk af erlendum uppruna þá er jafnvel ekki hægt að manna skólann.
11.
Skóladagatal Sjónarhóls 2023-2024
Skipulagsdagur í febrúar var ekki á sama degi og í GH en nú hefur það verið leiðrétt og rétt skjal komið inn á heimasíðu leikskólans.
Breytingar á skóladagatali samþykktar.
12.
Betri vinnutími í leikskóla
Nefnd um betri vinnutíma á leikskólum hefur skilað inn hugmyndum um styttingu vinnuvikunnar á Sjónarhóli.
Sveitarfélagið stendur frammi fyrir því verkefni að útfæra betri vinnutíma hjá starfsfólki leikskóla sem kveðið er á um í kjarasamningum og tryggja um leið næga mönnun í leikskólanum. Einnig er það keppikefli sveitarfélagsins að bæta starfsumhverfi starfsfólks í leikskólum og gera þá að eftirsóknarverðum vinnustöðum. Samstaða er um að bjóða fólki upp á fulla styttingu.
Að taka út styttinguna á venjulegum opnunartíma hefur reynst erfitt og aukið álagið verulega. Þar að auki hefur á landsvísu borið á ákveðnum flótta af leikskólanum í grunnskólann og virðist vinnutíminn þá vera helsta orsökin.
Málið rætt og m.a. talað um skráningardaga að fyrirmynd Akureyrarbæjar. Starfmaður nefndarinnar ásamt nefnd um betri vinnutíma á leikskólanum halda áfram að vinna að málinu og ákveðið að reyna að ljúka því á næsta fundi nefndarinnar sem er í ágúst.
Að taka út styttinguna á venjulegum opnunartíma hefur reynst erfitt og aukið álagið verulega. Þar að auki hefur á landsvísu borið á ákveðnum flótta af leikskólanum í grunnskólann og virðist vinnutíminn þá vera helsta orsökin.
Málið rætt og m.a. talað um skráningardaga að fyrirmynd Akureyrarbæjar. Starfmaður nefndarinnar ásamt nefnd um betri vinnutíma á leikskólanum halda áfram að vinna að málinu og ákveðið að reyna að ljúka því á næsta fundi nefndarinnar sem er í ágúst.
13.
Fræðsludagur á fræðslu- og frístundasviði
16. ágúst nk. verður fræðsludagur á fræðslu- og frístundasviði fyrir allt starfsfólk fræðslu og frístundasviðs. Markmiðið með þessum degi er að efla starfsþróun starfsfólks á sviðinu með því að bjóða sem flestum upp á þátttöku um leið og það er mikilvægt að þjappa hópnum saman. Áherslur dagsins verða uppeldi til ábyrgðar sem er sameiginleg uppeldisstefna sviðsins og fjölmenning með áherslu á inngildingu.
Auk starfsfólks á fræðslu- og frístundasviði þá hefur starfsfólki velferðarsviðs, starfmönnum FAS og fólki frá Sindra verið boðið að taka þátt auk þess sem nefndarmönnum er að sjálfsögðu boðið.
14.
Ráðstöfun fjármuna í grunnskóla fyrir alla
Mennta- og barnamálaráðherra í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, Skólastjórafélag Íslands og Grunn, félag stjórnenda á skólaskrifstofum efndi til fundaraðar í marstil maí 2023 um áframhaldandi vinnu um úthlutun og ráðstöfun fjármagns til grunnskóla svo að það styddi betur við starfshætti sem stuðla að menntun fyrir alla.Verkefnið Ráðstöfun fjármuna í grunnskóla fyrir alla er liður í þingsályktun um menntastefnu til 2030 og aðgerðaáætlun mennta- og barnamálaráðuneytis um innleiðingu menntastefnu 2021 - 2024. Hluti af verkefninu fólst í að hvert sveitarfélag færi í sjálfsmat um stöðuna hjá sér og unnu fræðslustjóri og skólastjóri GH þá vinnu fyrir hönd Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Fram kom hjá Þórgunni að fjármunir væru ekki endilega fyrirstaðan í þróun skólastarfs fyrir alla heldur frekar mannauðurinn. Starfsþróun og efling mannauðs er eilífðarverkefni sem miklilvægt er að hlúa vel að. Ákveðið að taka nefndarfundi næsta haust í hinum ýmsu skólastofnunum
15.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 82
Farið yfir fundargerð og hún samþykkt. Fræðslu- og frístundanefnd lýsti sérstakri ánægju með verkefnið Höfn í Hafnarfirði og vonandi á það eftir að halda áfram og þróast.