Fara í efni

Fræðslu- og frístundanefnd

103. fundur
15. ágúst 2023 kl. 15:15 - 18:15
Leikskólinn Sjónarhóll
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir formaður
Þóra Björg Gísladóttir varaformaður
Kristján Örn Ebenezersson aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Steindór Sigurjónsson 1. varamaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Vallarstjórn 2023
Málsnúmer 202303012
Farið yfir ástandið á íþróttavöllum sveitarfélagsins.
Aðgerðirnar á Jökulfellsvelli í vor hafa virkað vel - völlurinn drenar vel jafnvel þótt hann sé vökvaður mikið. Það er búið að gata hann tvisvar og það verður gert einu sinni enn og svo er líka búið að vera að lofta hann. Mánavöllur er hinsvegar mjög sviðinn eftir þurrka sumarsins.
Það er búið að tengja salernisgáminn við Báruna en á eftir að tengja rafmagn og því er ekki búið að opna fyrir notkun.
Hoppubelgurinn er bilaður og beðið eftir því að það komi lím til að laga hann - von er á líminu í vikunni.
Búið er að ræða við rekstraraðila Hopp hjólanna og biðja þá um að loka fyrir aðgengi Hopp hjólanna á ákveðnum svæðum sem eru viðkvæm t.d. í kringum hoppubelginn. Þeir tóku vel í það og ætla strax að verða við þessari beiðni.


2.
Endurnýjun jafnréttisáætlunar
Málsnúmer 201907018
Fræðslu- og frístundanefnd hefur fengið til umsagnar endurnýjaða jafnréttisáætlun sveitarfélagsins.
Skúli fór yfir jafnréttisáætlunina og nokkrar umræður sköpuðust. Fræðslu- og frístundanefnd gerir ekki athugasemdir en bent var á nokkrur atriði sem snúa að tímasetningu og öðru slíku. Jafnréttisáætlunin verður lögð fyrir allar nefndir og síðan samþykkt af bæjarstjórn en mikilvægt er að minna á að áætlunin er lifandi plagg og á að vera í sífelldri endurskoðun.
3.
Skráningardagar í leikskóla
Málsnúmer 202307021
Unnið hefur verið að innleiðingu svokallaðra skráningadaga í leikskólanum. Í þeim felst að teknir verða upp 20 skráningardagar á ári þar sem ekki er reiknað með börnum í leikskólann nema þau séu sérstaklega skráð í skólann þessa daga. Þetta er gert til að koma til móts við fulla styttingu vinnuvikunnar í leikskólum og verður reynt að koma stórum hluta styttingar hjá starfsfólki að á þessum dögum.Foreldrar greiða sérstaklega fyrir skráningardagana en á móti verða leikskólagjöld lækkuð sem nemur einum mánuði á ári.
Fræðslu- og frístundanefnd er jákvæð fyrir þessari útfærslu og vísar málinu til bæjarráðs.
4.
Gjaldskrá vegna skráningadaga á leikskóla
Málsnúmer 202307046
Gjaldskrá leikskóla tekin fyrir. Gjaldskrá leikskóla hækkar 1. ágúst á hverju ári í samræmi við vísitölu og hefur ný gjaldskrá verið lögð fram. Að þessu sinni er lagt til að hún lækki sem nemur 20 leikskóladögum á ári eða 8,4% og tekið verði upp sérstakt gjald vegna skráningardaga.
Ný gjaldskrá leikskóla lögð fyrir fræðslu- og frístundanefnd. Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir tillöguna og vísar henni til bæjarráðs til frekari samþykktar.
5.
Reglur um starfsemi leikskóla
Málsnúmer 202301058
Uppfærðar reglur um starfsemi leikskóla vegna skráningardaga lagðar fyrir fræðslu- og frístundanefnd.
Þær breytingar sem nú eru gerðar á reglunum miða fyrst og fremst að því að aðlaga þær að hugmyndum um skráningardaga. Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir tillögurnar og vísar þeim til bæjarráðs og bæjarstjórnar til staðfestingar.
6.
Leikskólinn - starfshópur um leikskólamál
Málsnúmer 202307036
Á fundi bæjarráðs 11. júlí síðastliðinn var óskað eftir því að fræðslu- og frístundanefnd tæki til umræðu hugmyndir um samráðshóp um aðgerðir í leikskólamálum. Starfsmaður nefndarinna lagði fram minnisblað vegna samráðshópsins.
Fræðslu- og frístundanefnd er jákvæð fyrir stofnun samráðshóps um leikskólamál og leggur til að í honum verði tveir fulltrúar frá pólitíkinn, einn frá meirihluta og einn frá minnihluta og a.m.k. annar þeirra komi úr fræðslu- frístundanefnd. Einn frá leikskólanum sem einnig situr í leikskólaráði og einn fulltrúi frá foreldrum auk sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs sem einnig verði starfsmaður samráðshópsins. Fulltrúi frá meirihlutanum í pólitíkinni verði formaður hópsins og skal hópurinn skila inn tillögum fyrir 1. febrúar 2024 eða skýrslu um starfið.

Auk þess leggur fræðslu- og frístundanefnd til að samhliða stofnun samráðshóps verði komið á fót leikskólaráði sem verði ráðgefandi og starfi við hliðina á leikskólastjórum á sama tíma eða til 1. febrúar 2024. Í leikskólaráði sætu leikskólastjórar, deildarstjórar og sviðsstjóri og myndu þeir vinna að úrbótum í innri málefnum skólans og leita til annarra starfsmanna og utanaðkomandi aðila eftir þörfum. Fræðslustjóri sér um að kalla leikskólaráð saman og heldur utan um fundargerðir sem lagðar verða fyrir fræðslu- og frístundanefnd. Við lok starfstímans verði tekin saman skýrsla um starfið og niðurstöður dregnar saman.

Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að skipað verði í bæði starfshóp og leikskólaráð og þeir aðilar sem sinna þessu fái greitt aukalega fyrir setu í þessum ráðum þegar fundað er utan vinnutíma. Fulltrúar pólitíkurinnar skili inn tillögu að fulltrúa til starfsmanns og starfsmaður óski eftir tillögu að fulltrúa foreldra úr foreldraráði og fulltrúi leikskólans verði valinn í leikskólaráði. Tillögum þessum vísað til bæjarráðs.

Fram kom á fundinum að fáar umsóknir hafa borist um störf í leikskólanum og engar fastar í hendi. Það vantar a.m.k. sex starfsmenn núna svo ekki lítur út fyrir að það verði hægt að taka inn fleiri börn alveg á næstunni.
7.
Heimagreiðslur eða foreldragreiðslur
Málsnúmer 202307038
Sveitarfélaginu barst í sumar fyrirspurn um fyrirkomulag heimagreiðslna í ljósi þess að ekki hefur tekist að manna leikskólann og ekki pláss hjá dagforeldri.
Reglur um heimagreiðslur eða foreldragreiðslur voru síðast uppfærðar í apríl 2021. Þær miðast við niðurgreiðslu til dagforeldra og eru nú 70.000 krónur á mánuði. Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að starfshópur um leikskólamál taki umræðu um heimagreiðslur eða foreldragreiðslur fyrir í sinni vinnu en vinni hratt í málinu því vandinn er aðkallandi núna.