Fara í efni

Fræðslu- og frístundanefnd

105. fundur
18. október 2023 kl. 16:15 - 19:00
Mánagarður
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir formaður
Þóra Björg Gísladóttir varaformaður
Steindór Sigurjónsson 1. varamaður
Kristján Örn Ebenezersson aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Jón Dagur Ísaksen Hafsteinsson Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 84
Málsnúmer 2309020F
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerðina.
2.
Heimsókn í íþróttamiðstöð
Málsnúmer 202310095
Fundurinn var að þessu sinni haldinn í Mánagarði. Fræðslu- og frístundanefnd hóf fundinn á því að skoða íþróttamannvirki, sundlaug, íþróttahús og Mánagarð þar sem fundurinn fór síðan fram. Gunnar Ingi Valgeirsson tók á móti nefndinni og fór um íþróttamannvirkin og þakkar nefndin kærlega fyrir góðar móttökur.
Ábending kom fyrir fundinn um ástand folfvallarins. Folfvöllurinn var settur upp fyrir nokkrum árum en er nú í slæmu ástandi og þörf á endurbótum á honum. Þrátt fyrir að folfvöllurinn sé ekki á forræði fræðslu- og frístundanefndar þá óskar hún eftir því að starfsmenn áhaldahúss yfirfari ástand hans og lagfæri.
3.
Lýðheilsuráð 2023-2024
Málsnúmer 202310046
Emil fór yfir fundargerðir lýðheilsuráðs.
4.
Leikskólinn Sjónarhóll: Ytra mat 2021
Málsnúmer 202010160
Í ársbyrjun 2021 gerði starfsmenn MMS ytra mat á Leikskólanum Sjónarhóli. Í kjölfarið var unnin umbótaáætlun vorið 2021. Síðan þá hefur MMS farið fram á árlegar framvinduskýrslur þar sem útskýrt er hvernig umbótaáætlun hefur verið fylgt eftir. Hér er lögð fyrir lokaskýrsla frá leikskólanum og óskar MMS eftir því að Leikskólinn Sjónarhóll og Sveitarfélagið Hornafjörður staðfesti að umbæturnar sem lagðar voru til séu komnar til framkvæmda. Auk þess óskar MMS eftir því að fá mat á því hvernig til tókst að vinna að umbótunum og með hvaða hætti fyrirhugað er að halda áfram með innra mat og umbætur.
Fulltrúar leikskólans lýsa ánægju sinni með ytra matið og telja það hafa hjálpað til með starf og skipulag á leikskólanum. Fræðslu- og frístundanefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar staðfestir að unnið hefur verið að þeim umbótum sem lagðar voru til í ytra mati 2021. Sumar eru þess eðlis að það þarf alltaf að vera að vinna í þeim og innra mat skólans á að tryggja að svo sé auk þess sem það á líka að tryggja stöðugar umbætur á skólastarfinu. Ekki tókst að koma öllum þeim umbótum í framkvæmd sem stefnt var að og má að hluta til rekja það til veikinda og manneklu. En í leikskólanum er metnaðarfullt starfsfólk og þrátt fyrir að þar skorti alltaf menntaða leikskólakennara þá ætlar það fólk sem þar starfar að leggja sig fram við að ná þeim markmiðum sem það setti sér í umbótaskýrslum auk margra annarra.
5.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs 2023
Málsnúmer 202308039
Allar gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs lagðar fyrir.
Gjaldskrá leikskóla var samþykkt í tengslum við skráningardagana.
Fræðslu og frístundanefnd leggur til að aðrar gjaldskrár hækki í samræmi við vísitöluhækkun enda er sveitarfélagið með lægri gjaldskrár en mörg önnur sveitarfélög. Sú breyting verður á gjaldskrá sundlaugar að öll ungmenni undir 18 ára fá nú frítt í sund auk allra eldri borgara í samræmi við álit innviðaráðuneytisins frá 27. júní s.l. https://www.stjornarradid.is/gogn/urskurdir-og-alit-/stakur-urskurdur/?newsid=f181fa9b-14f6-11ee-9bbb-005056bc4727&cname=Ãlit á sviði sveitarstjórnarmála. Sú breyting tekur strax gildi en ljóst að við það verður sundlaugin af rúmlega einni milljón í tekjur á ári.
Að lokum leggur fræðslu- og frístundanefnd til að gjaldskrárhækkanir skóla miði hér eftir við skólaárið en ekki áramót.
Tillögum beint til bæjarráðs til samþykktar.
6.
Fjárhagsáætlun f.2024 - Fræðslu- og frístundasvið
Málsnúmer 202309001
Á síðasta fundi nefndarinnar voru rammar einstaka stofnana kynntir en þá var ekki búið að fylla inn í þá. Nú er búið að því og því eðlilegt nefndin fái þá til umsagnar. Jafnframt voru lögð fyrir óbirt gögn sem sýna samanburð á rekstrarkostnaði í leik- og grunnskóla milli sveitarfélaga.
Rammar ræddir og farið yfir myndrænan samanburð á útgjöldum frá Sambandi íslenskra samvinnufélaga https://www.samband.is/verkefnin/fjarmal/talnaefni/myndraen-framsetning-talnaefnis/. Nýjar tölur eru komnar fyrir grunnskóla og áhugavert að bera saman árin 2021 og 2022.
7.
Leikskólaráð
Málsnúmer 202309044
Fræðslu- og frístundanefnd upplýst um helstu umfjöllunarefni leikskólaráðs.
Fjallað lauslega um umræður í leikskólaráði.
8.
Leikskólinn - starfshópur um leikskólamál
Málsnúmer 202307036
Fræðslu- og frístundanefnd upplýst um helstu umfjöllunarefni starfshóps um leikskólamál.
Starfshópurinn sagði frá umræðum í hópnum.
9.
Umsögn varðandi frumvarp til laga um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Málsnúmer 202310041
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis hefur óskað eftir umsögnum um frumvarp til laga um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. https://www.althingi.is/altext/154/s/0241.html
Fræðslu- og frístundanefnd gerir ekki athugasemdir við frumvarpið.
10.
Íslenska æskulýðsrannsóknin 2023 Vorönn
Málsnúmer 202306080
Enn berast niðurstöður úr Íslensku æskulýðsrannsókninni sem er könnun meðal nemenda í 4. - 10. bekk. Hér eru niðurstöður fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð bornar saman við annars vegar Austurland og hins vegar önnur landsvæði. Í könnuninni er horft á líðan barna, viðhorf til skólans og náms, aðstæðna á heimilum, netnotkunar, neyslu, kynhegðunar og samskipta almennt svo nokkuð sé nefnt. Niðurstöðurnar gefa mikilvægar og ganglegar upplýsingar sem nýta má á ýmsum stöðum s.s. í skólanum, í íþrótta- og frístundastarfi, innan foreldrafélagsins og í stefnumótun sveitarfélagsins. Markmiðið með íslensku æskulýðsrannsókninni er að safna gögnum um velferð og viðhorf barna og ungmenna og gera niðurstöður aðgengilegar til að styðja við stefnumótun þeirra aðila sem koma að þjónustu og umönnun barna og ungmenna. Munu gögnin m.a. vera birt í mælaborði um farsæld barna, sem mennta- og barnamálaráðuneyti mun birta á haustmánuðum 2023. Grundvöllur verkefnisins liggur einnig í að skapa aðstæður til snemmbærs inngrips og stuðnings við börn og fjölskyldur þeirra og styðja við innleiðingu löggjafar um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021. Íslenska æskulýðsrannsóknin var fyrst lögð fyrir í grunnskólum vorið 2022, en hún byggir á alþjóðlegri rannsókn HBSC (Health Behaviour in School Aged Children) sem unnin er í samstarfi við Alþjóða Heilbrigðisstofnunina. Til stendur að rannsóknin verði lögð fyrir árlega í grunnskólum, meðal barna á aldrinum 9?16 ára. Jafnframt verður rannsóknin lögð fyrir í framhaldsskólum (hefst 2023) annað hvert ár, fjórða hvert ár verður framkvæmd könnun á viðhorfum og stöðu ungs fólks utan skóla.
Líflegar umræður sköpuðust um könnunina. Fram kom að lýðheilsuráð og teymi farsældar og frístundar mun taka niðurstöðurnar til umfjöllunar en í því eru starfmenn innan velferðarsviðs, fræðslu- og frístundasviðs ásamt framkvæmdastjóri Sindra.