Fræðslu- og frístundanefnd
106. fundur
15. nóvember 2023
kl.
16:15
-
20:00
Heppuskóli
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir
formaður
Þóra Björg Gísladóttir
varaformaður
Steindór Sigurjónsson
1. varamaður
Kristján Örn Ebenezersson
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Jón Dagur Ísaksen Hafsteinsson
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir
sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 85
Fundargerð lög fyrir og samþykkt.
2.
Heimsókn í Grunnskóla Hornafjarðar
Að þessu sinni fundar fræðslu- og frístundanefnd í Grunnskóla Hornafjarðar.
Til að byrja var farið í aðstöðu Kátakots í Vöruhúsi, þá í Kátakot í lausu kennslustofurnar bak við Hafnarskóla og þaðan í Hafnarskóla. Að endingu var farið í Heppuskóla þar sem eiginlegur fundur fór fram. Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir fróðlegar og góðar móttökur.
3.
Skólapúlsinn 1.-5.bekkur 2023
Niðurstöður Skólapúlsins fyrir 2. - 5. bekk hafa borist.
Niðurstöður Skólapúlsins fyrir 2.-5. bekk koma mjög vel út og óskar fræðslu- og frístundanefnd starfsmönnum Grunnskóla Hornafjarðar og nemendum til hamingju.
4.
Viðhald og umhirða íþróttamannvirkja
Nokkrar umbætur hafa farið fram á íþróttamannvirkjum bæði sundlaug og íþróttahúsi. Af nægu er að taka og ýmiskonar viðhald sem þarf að fara í á næstu mánuðum.
Vegna lélegra drena á Jökulfellsvelli var farið í að tappagata völlinn þrisvar í sumar og sanda á eftir auk þess sem hann var teinagataður á um þriggja vikna fresti eða 6 sinnum alls. Þessar aðgerðir höfðu góð áhrif á völlinn og ekki þurfti að fresta neinum leik vegna vallaraðstæðna. Stefnt er að því að vera með sama viðhald á vellinum næsta sumar.
Á Mánagarðsvelli er ekki aðstaða til að vökva en til stendur fyrir sumarið 2024 að koma upp vökvunaraðstöðu. Loftræstingin í Mánagarði er biluð en það er verið að vinna í að laga hana.
Í Íþróttahúsinu á Höfn er búið að setja tvær nýjar skotklukkur, mála svalir og laga gólf í áhorfendastúku, pússa og lakka gólf í sal. Í vinnslu eru tvær nýjar körfur sem verða upphífanlegar og glerhandrið í stað rimlahandriðs. Þetta er gert til að auka ánægju áhorfenda úr stúku íþróttahúss. Áætluð verklok eru í kringum áramót. Á næsta ári er stefnt að því að skipta um hurðar í íþróttahúsinu, setja nýtt tjald til að skipta salnum, laga vegginn við útihurðina og ýmislegt fleira. Það er líka löngu kominn tími á að skipta um útidyrahurð.
Í sundlauginni er búið að taka báða pottana í gegn, skipta um sand í sandsýjum, endurnýja báða miðlunartankana og endurkipuleggja allar lagnir við báða pottana. Það á eftir að endurnýja og endurbæta brunn í kjallara sundlaugar en ekki er komin tímasetning á það verk frá verktaka.
Að lokum sagði Gunnar Ingi frá skyndihjálparnámskeiðum sem starfsfólk sundlauga þarf að fara á árlega og námi fyrir sundlaugaverði og starfsfólk í íþróttahúsum sem er að fara í gang og Simey stendur fyrir. Þrír starfsmenn héðan ætla að því að fara í það.

5.
Styrkir fræðslu- og frístundanefndar 2024
Þeir sem vilja senda inn styrkumsókn vegna viðburða eða reksturs félagsamtaka þurfa að skila umsóknum fyrir 13. desember og hefur auglýsing þess efnis þegar birst á heimasíðu sveitarfélagsins. Sækja þarf um styrk á íbúagátt sveitarfélagsins http://ibuagatt.hornafjordur.is. Þar er hægt að fylla út eyðublöð og hlaða inn viðhengjum með umsókn, einnig er hægt að senda umsókn til afgreiðslu sveitarfélagsins á afgreidsla@hornafjordur.is.
Síðustu ár hefur fræðslu- og frístundanefnd haft 500.000 kr. til styrkveitinga. Óskar nefndin eftir því til bæjarráðs að þessi upphæð verði hækkuð í að minnst kosti 1.000.000 kr.
6.
Skólaakstur - undirbúningur undir útboð
Fyrir liggur að bjóða þarf út skólaakstur á næstu mánuðum og þarf fræðslunefnd að taka afstöðu til ákveðinna mála áður en að útboði kemur.
Málið kynnt. Ákveðið að taka næsta mánuð í að ræða við baklandið og kanna forsendur.
7.
Frístundaakstur
Í tengslum við útboð á skólaakstri þarf að ákveða hvernig frístunda- og fimleikaakstur kemur inn í það.
Frístundaaksturinn kom inn sem tilraunaverkefni 2020. Umræður um hvort það eigi að halda honum áfram í óbreyttri mynd. Ákveðið að taka næsta mánuð í að ræða við baklandið og kanna forsendur.
8.
Frístundastyrkir 2023
Búið er að taka saman nýtingu á frístundastyrkjum það sem af er ári.
Heildarnýting á frístundastyrknum er um 73% það sem af er ári.
Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að styrkurinn hækki úr 50.000 krónum í 75.000 krónur á ári fyrir 6-18 ára börn og úr 10 í 15 þúsund fyrir 5 ára. Málinu vísað til bæjarráðs.
Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að styrkurinn hækki úr 50.000 krónum í 75.000 krónur á ári fyrir 6-18 ára börn og úr 10 í 15 þúsund fyrir 5 ára. Málinu vísað til bæjarráðs.
9.
Ungmennaþing 2023
Farið yfir helstu niðurstöður ungmennaþings.
Niðurstöðurnar eru áhugaverðar og verða kynntar í nefndum og ráðum á næstunni og ungmennaráð er að vinna að því að búa til myndband með niðurstöðunum.
Umræðu efnin á þinginu voru:
1. Hvað er gott á Höfn?
2. Hvað má bæta á Höfn?
3. Hvernig bætum við samfélagið?
4. Hvernig virkjum við sem fjölbreyttasta hóp ungmenna til þess að þaka þátt í samfélaginu?
Hér kemur stutt samantekt;
-Ungmennaráð er sammála að í samfélaginu líðum við ekki hegðun eins og einelti, óvirðingu og fleira. Við viljum að allir hjálpist að við að taka vel á móti allskonar fólki sem flytur hingað og að allir séu velkomnir. (Þó við vitum ekki til annars en að það hafi verið tekið vel á móti flestu fólki).
-Við teljum að ungmennahús myndi virkja mjög fjölbreyttan hóp til að taka þátt í samfélaginu. Þá er t.d. hægt að laga rústirnar fyrir aftan Miklagarð eða gömlu sundlaugina og gera það að ungmennahúsi og mögulega halda þar ungmennakvöld og böll í kjallaranum.
-Þá viljum við virkja Hornafjörð á Instagram þar sem ekkert hefur verið sett þar inn í meira en ár. Þannig geta allir fylgst betur með og unga fólkið mun örugglega fylgjast betur með líka.
-Við þurfum að vera duglegri að draga fram hvað unga fólkið er að gera. Draga fram hvaða starfsemi er í skólunum og vera með gott samstarf við unga fólkið í bænum þar sem opinberir aðilar vinna markvisst að því að hitta okkur og tala við okkur og spyrja okkur hvað við viljum.

10.
Leikskólinn - starfshópur um leikskólamál
Í næstu viku stendur til að fá erindi frá Hafnarfirði um hvernig verið er að bregðast við í leikskólamálum þar. Þetta er liður í því að skoða leikskólamál frá sem flestum hliðum. Leikskólaráði, fræðslu- og frístundanefnd, starfshópi um leikskólamál og bæjarstjórn verður boðið á þann fund. Áður hefur þessum aðilum boðist að horfa á kynningu á leikskólamálum frá Reykjavík, Vestmannaeyjum og Kópavogi sem fram fór á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga í haust.