Fara í efni

Fræðslu- og frístundanefnd

108. fundur
17. janúar 2024 kl. 16:15 - 17:20
í Miðgarði
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir formaður
Þóra Björg Gísladóttir varaformaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Kristján Örn Ebenezersson aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 87
Málsnúmer 2312024F
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerðina og mætir að sjálfsögðu á fund með ungmennaráði í Ráðhúsinu 5. febrúar kl. 16:15.
2.
Leikskólinn - starfshópur um leikskólamál
Málsnúmer 202307036
Lokaskýrsla starfshóps um leikskólamál lögð fyrir og rædd.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir skýrsluna og vísar henni til bæjarráðs.
3.
Unga fólkið aftur heim
Málsnúmer 202312038
Nýheimar Þekkingarsetur kynntu á dögunum fyrir starfsfólk sveitarfélagsins þróunarverkefni sem unnið er að í Nordfjord í Noregi sem kallast Nordfjordakademiet. Verkefnið snýst um að fá ungt fólk til að vilja setjast að í heimabyggð. Náttúrufegurð er mikil í Nordfjord og hefur mikið aðdráttarafl en verkefnið Nordfjordakademie gengur út á að vinnuumhverfið hafi líka aðdráttarafl. Samfélagið í Nordfjord er að eldast og talin þörf á að fjölga ungu fólki. Einnig er talin þörf á að efla menntun og hæfni á svæðinu svo það verði samkeppnisfært í framtíðinni. Rannsóknir í Nordfjord sýna að einungis 1 af hverjum 5 sem fara að heiman í nám snúa aftur heim. Leiða má líkum að því að ástandið í sveitarfélaginu Hornafirði sé svipað. Samfélagið er að eldast (sbr. færri börn í skóla) og skortur á menntuðu starfsfólki í mörg störf (s.s. kennara, leikskólakennara, lækna, sérfræðinga í stjórnsýslunni o.s.frv.). Í Nordfjord telja þau að lausnin felist í að kynna betur tækifæri í heimabyggð fyrir ungu fólki og gera það að raunhæfu og eftirsóknarverðu vali að koma aftur heim. Starfsfólk Nýheima Þekkingarseturs hefur áhuga á að vinna að þessu verkefni í samvinnu við Sveitarfélagið Hornafjörð.
Fræðslu- og frístundanefnd líst vel á verkefnið og hvetur til þess að sveitarfélagið styðji við það og taki þátt í að móta það með Nýheimum og aðlaga að þörfum okkar.
4.
Endurskoðun æskulýðslaga
Málsnúmer 202401100
Kynning á fyrirhugaðri endurskoðun æskulýðslaga.
5.
Fjárhagsáætlun f.2024 - Fræðslu- og frístundasvið
Málsnúmer 202309001
Sviðsstjóri óskar eftir aukafjárveitingu vegna kostnaðar við sérfræðinga á sviðinu. Sækja þarf eftir aðstoð frá sérfræðingi sem sviðið hefur ekki innan sinna vébanda og felur það í sér auka kostnað sem ekki er hægt að komast hjá.
Samkvæmt lögum á sveitarfélagið að sjá um þjónustu við fötluð börn og því telur fræðslu- og frístundanefnd eðlilegt að samþykkja þessa fjárveitingu og vísar málinu til bæjarráðs.