Fræðslu- og frístundanefnd
109. fundur
21. febrúar 2024
kl.
16:15
-
18:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir
formaður
Ingólfur Guðni Einarsson
1. varamaður
Steindór Sigurjónsson
aðalmaður
Kristján Örn Ebenezersson
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir
sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 88
Fundargerð ungmennaráðs lögð fyrir.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerð ungmennaráðs.
2.
Lýðheilsuráð 2023-2024
Fundargerð frá lýðheilsuráði lögð fyrir.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerð lýðheilsuráðs.
3.
Menningarstefna 2023
Bæjarráð vísar nýrri menningarstefnu til umsagnar í nefndum sveitarfélagsins. Eyrún Helga Ævarsdóttir fylgir menningarstefnunni eftir.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar Eyrúnu fyrir góða kynningu og óskar menningarmálanefnd til hamingju með stefnuna.
4.
Ársskýrsla Vöruhússins 2023
Ársskýrsla Vöruhússins lögð fyrir.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir greinargóða skýrslu.
5.
Opnunartími sundlaugarinnar
Ungmennaráð óskaði eftir því að opnunartími sundlaugar væri lengri um helgar og er það í samræmi við hugmyndir sem komu fram á ungmennaþingi í haust.
Fram kom í minnisblaði að opnunartími Sundlaugar Hafnar er svipaður og á sambærilegum stöðum annars staðar á landinu. Helgaropnun er oftast skemri og vetraropnun styttri en sumaropnun um helgar. Svigrúm er til að lengja opnunartíma sundlaugarinnar til 19:00 um helgar á veturnar án þess að ráða inn fleiri stöðugildi og myndi það hækka launakostnað í heildina um um það bil 800.000 kr. á ári. Fræðslu- og frístundanefnd mælist til þess að lengja opnunartíma til 19.00 um helgar næst vetur og endurskoða opnunartímann eftir þann tíma með tilliti til nýtingar. Málinu vísað til bæjarráðs.
6.
Mánagarður
Undanfarið hefur verið unnið að umgengnis- og samskiptareglum vegna útleigu á Mánagarði. Málið lagt fram til kynningar.
Fræðslu- og frístundanefnd lýsir ánægju sinni með að verið sé að vinna í að bæta umgengni í Mángarði svo húsið megi nýtast sem best.
7.
Framkvæmdir í íþróttahúsi
Sótt var um aukafjárveitingu til framkvæmda í íþróttahúsinu á Höfn á síðasta ári.
Gunnar Ingi sagði frá því að nú er búið að setja upp glerhandriðið og körfurnar í Íþróttahúsinu og mikil ánægja með þessar framkvæmdir. Í sumar verður svo sett um nýtt tjald til að skipta salnum. Hornfirðingar eru hvattir til að mæta á körfuboltaleik um helgina og sjá nýja útlitið á húsinu um leið og þeir hvetja körfuboltaliðið til dáða.
8.
Leikskólaráð
Formlegri vinnu leikskólaráðs er nú lokið en rætt hefur verið um að það starfi áfram með minna sniði næstu mánuði.
Leikskólaráð er skipað stjórnendum og deildarstjórum leikskólans og var hugsað sem stuðningur við að efla innra starf leikskólans. Skráningardagar og skipulag á þeim var ákveðið verkefni sem hópurinn vann að en útfærslan á þeim hefur gegnið vel og skráningardagar náð því markmiði að létta á starfsmönnum. Leikskólaráð hittist reglulega frá því í september og fram í janúar og auk þess að fara gaumgæfilega í gegnum ýmis mál á leikskólanum veitti það umsögn um tillögum starfshóps um leikskólamál.
Starfshópur um leikskólamál skilaði tillögum til bæjarráðs um síðustu mánaðarmót og á fundi bæjarráðs 21. febrúar lagði það til að ráðist yrði í eftirfarandi tillögur.
1. Ráðningu verkefnastjóra í tímabundið starf til eins árs til að styðja við faglegt starf, móttöku nýrra starfsmanna, stækkun leikskólans o.s.frv.
2. Uppfæra reglur um styrki og sveigjanleika til náms hjá starfsfólki leikskólans.
3. Bæta við einum skipulagsdegi á næsta skólaári og færa starfsmannafundi til samræmis við tillögur starfshópsins.
4. Hækka heilsueflingarstyrk starfsfólks sveitarfélagsins úr 15.000 kr. í 20.000 kr. auk þess sem starfsfólk sveitarfélagsins fái frítt í sund frá og með 1. apríl 2024.
Ábending kom fram á fundi fræðslu- og frístundanefndar um hvort ekki hefði verið eðlilegt að hækka foreldrastyrki a.m.k. þar til viðbyggingin verður tekin í notkun.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir greinargóða skýrslu og er ánægt með tillögur bæjarráðs og væntir þess að þær eigi eftir að skila sér í betra leikskólastarfi og ánægðari starfsmönnum.
Starfshópur um leikskólamál skilaði tillögum til bæjarráðs um síðustu mánaðarmót og á fundi bæjarráðs 21. febrúar lagði það til að ráðist yrði í eftirfarandi tillögur.
1. Ráðningu verkefnastjóra í tímabundið starf til eins árs til að styðja við faglegt starf, móttöku nýrra starfsmanna, stækkun leikskólans o.s.frv.
2. Uppfæra reglur um styrki og sveigjanleika til náms hjá starfsfólki leikskólans.
3. Bæta við einum skipulagsdegi á næsta skólaári og færa starfsmannafundi til samræmis við tillögur starfshópsins.
4. Hækka heilsueflingarstyrk starfsfólks sveitarfélagsins úr 15.000 kr. í 20.000 kr. auk þess sem starfsfólk sveitarfélagsins fái frítt í sund frá og með 1. apríl 2024.
Ábending kom fram á fundi fræðslu- og frístundanefndar um hvort ekki hefði verið eðlilegt að hækka foreldrastyrki a.m.k. þar til viðbyggingin verður tekin í notkun.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir greinargóða skýrslu og er ánægt með tillögur bæjarráðs og væntir þess að þær eigi eftir að skila sér í betra leikskólastarfi og ánægðari starfsmönnum.
9.
Styrkir fræðslu- og frístundanefndar 2024
Fræðslu- og frístundanefnd tekur fyrir styrkumsóknir til nefndarinnar.
Sex aðilar sóttu um styrk til fræðslu- og frístundanefndar og verður 5 aðilum úthlutað styrk að þessu sinni. Styrkumsóknir námu samtals 3,7 milljónum króna en nefndin hefur 700.000 krónur til að úthluta. Á menningarhátíð í Nýheimum í byrjun mars verður tilkynnt hverjir hljóta styrk.
10.
Seinkun skólabyrjunar. Aðgerðaráætlun Barnvænt sveitarfélag
Í ljósi þess að fræðslu- og frístundanefnd fjallaði um seinkun skólabyrjunar fyrir nokkrum árum er 10. liður í aðgerðaráætlun Barnsvæns sveitarfélags sérstaklega tekinn fyrir hjá nefndinni.
Fræðslu- og frístundanefnd hvetur stjórnendur Grunnskóla Hornafjarðar til að hrinda 10. lið aðgerðaráætlunar Barnsvæns sveitarfélags í framkvæmd og seinka skólabyrjun til kl. 8:30 á morgnana. Með því er stigið mikilvægt skref í að styðja við lengri svefn barna og ungmenna en svefn er ein megin stoð lýðheilsu. Of lítill svefn getur haft margvísleg neikvæð áhrif á líðan og andlega og líkamlega heilsu. Því er mikilvægt að skipulagt starf í stofnunum sveitarfélagsins styðji við góðar svefnvenjur. Með því að seinka skólabyrjun þó ekki sé nema um 20 mínútur er stutt við lengri svefn bæði barna og unglinga. Þessar mínútur skipta miklu fyrir þá sem þeirra njóta og eru unglingar og börn úr sveitum þar mikilvægasti markhópurinn.
11.
Eldur ís og mjúkur mosi - í Öræfum
Kynning á verkefni sem Náttúruminjasafn Íslands leiðir í samstarfi við Vatnajökulsþjóðgarð, grunnskólana í Öræfum og Höfn og listamenn á svæðunum. Aðstandendur sýningarinnar leita fyrir sér að stuðningi við að koma nemendum frá Höfn í Öræfin í vor við að setja upp sýninguna. Ráðgert er að Leik-og grunnskólinn í Hofgarði og nemendur úr Grunnskóla Hornafjarðar setji upp sýningu á verkum sem þau eru að vinna að undir leiðsögn Evu Bjarnadóttur í 25 fermetra farandsýningarrými í Gestastofunni í Skaftafelli í maí að lokinni Barnamenningarhátíð í Rvk. Á Barnamenningarhátíð verður sýningin sett upp í Perlunni. Þetta verður fyrsta sýningin sem sett verður upp í endurbættri Gestastofu í Skaftafelli. Áætlað er að vinna hluta af sýningunni í Skaftafelli með hópi nemenda úr Grunnskóla Hornafjarðar og Hönnu Dís Withead og setja sýninguna svo upp út á Höfn næsta haust.
Fræðslu- og frístundanefnd er jákvæð fyrir því að styðja við að koma nemendum í Öræfin í vor og telur að fjármagn sé til þess innan fræðslu- og frístundasviðs.