Fara í efni

Fræðslu- og frístundanefnd

110. fundur
20. mars 2024 kl. 14:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir formaður
Þóra Björg Gísladóttir varaformaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Kristján Örn Ebenezersson aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Jón Dagur Ísaksen Hafsteinsson Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
Dagskrá
1.
Skóladagatal Tónskóla A-Skaft
Málsnúmer 202403014
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir skóladagatal Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu.
2.
Skóladagatal leik- og grunnskólans í Hofgarði 2024-2025
Málsnúmer 202403012
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir skóladagatal leik- og grunnskólans í Hofgarði.
3.
Reglur um starfsemi leikskóla
Málsnúmer 202301058
Vegna tilkomu skráningardaga þarf að breyta orðalagi í reglum um starfsemi leikskóla, þeim hluta sem snýr að Lambhaga.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir tillögur um breytingar á starfsemi leikskóla með þeim fyrirvara að fjölgun skipulagsdaga falli að skipulagsdögum grunnskólans og dagatalið verði uppfært í samræmi við það. Málinu vísað til bæjarráðs.
4.
Skóladagatal Grunnskóla Hornafjarðar 2024-2025
Málsnúmer 202403013
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir skóladagatal Grunnskóla Hornafjarðar.
5.
Foreldrakönnun grunnskóla GH 2024
Málsnúmer 202403027
Árlega er lögð fyrir foreldrakönnun í Grunnskóla Hornafjarðar á vegum Skólapúlsins.
Farið var yfir könnunina sem kom almennt mjög vel út. Fræðslu- og frístundanefnd óskar starfsfólki til hamingju með niðurstöðuna og hvetur til áframhaldandi góðra starfa.
6.
Skóladagatal Sjónarhóls 2024-2025
Málsnúmer 202403011
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir skóladagatal Sjónarhóls en óskar eftir því að starfsmannafundir verði settir inn á það þar sem þeir verða á morgnana næsta vetur.
7.
Efling leikskólastigsins - reglur um námstyrk 2024
Málsnúmer 202402159
Bæjarráð samþykkti að reglur um námsstyrk fyrir starfsfólk leikskóla skyldu uppfærðar í samræmi við tillögur starfshóps um leikskólamál.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir framkomnar breytingar á reglum um námsstyrk fyrir starfsfólk leikskóla.
8.
Foreldrakönnun leikskóla Sjónarhóll 2024
Málsnúmer 202403028
Foreldrakönnun leikskóla hefur verið lögð fyrir annað hvert ár.
Mikið af því sem fram kemur í niðurstöðum foreldrakönnunar snýst um sömu atriði og rætt hefur verið um í leikskólaráði og samráðshóp um leikskólamál. Og þó margir þættir komi enn ekki nægilega vel út þá hafa sumir batnað. Það skiptir máli og sýnir að hægt er að ná árangri.

Það sem m.a. má taka út úr þessum niðurstöðum er a) of mikið af óreyndu starfsfólki, of margir sem tala ekki íslensku, of fáir með reynslu og of fáir menntaðir. Þetta kemur niður á faglegu starfi og vinnubrögðum og þar af leiðandi ánægju með leikskólann. b) Stjórnun leikskólans og að aðstaða sé ekki nægilega góð og þá fyrst og fremst vegna of lítilla deilda þó fólk kvarti minna undan aðstöðuleysi núna en fyrir tveimur árum.

Í tillögum starfshóps um leikskólamál var reynt að koma til móts við þessi atriði og þau atriði sem bæjarráð valdi ættu að geta bætt starfsumhverfi leikskólans. Þau snúa m.a. að því að ráð inn verkefnastjóra sem styður við stjórnun á leikskólanum. Auglýsa vel nám í leikskólakennarafræðum og þann styrk sem sveitarfélagið veitir. Styðja við faglegt starf með því að fjölga skipulagsdögum og færa starfsmannafundi milli 8 og 9 á morgnana.

En það eru líka atriði sem koma vel út og því ber að fagna. Börnin eru ánægðari í leikskólanum en þau voru fyrir tveimur árum og það kemur fram að foreldrar eru ánægðir með breytinguna á garðinum. Upplýsingaflæði er miklu betra, margir ánægðir með að fá tölvupósta á föstudögum, en auðvitað þarf að laga heimasíðuna. Fólk er ánægt með leikskólabyrjun og þó fólk sé ekki eins ánægt með matinn þá er það mjög ánægt með hvernig er unnið er með sérþarfir í mat.

Mikilvægt er að fylgjast vel með þróun mála næstu misserin og hluti af því er að leggja foreldrakönnun árlega.
9.
Lög um inngildandi menntun
Málsnúmer 202403047
Í töluverðan tíma hefur verið unnið að heildstæðri löggjöf um skólaþjónustu í leik- grunn- og framhaldsskólum þar sem haft var víðtækt samráð við skólafólk. Nú eru komið frumvarp til laga um "inngildandi menntun" á vegum mennnta- og barnamálaráðuneytisins. Hér kemur stuttur útdráttur úr lögunum sem fylgdi þeim í samráðsgátt https://island.is/samradsgatt/mal/3699. Í frumvarpinu er lagt til að sett verði heildarlög um inngildandi menntun barna og ungmenna í leik-, grunn- og framhaldsskólum og frístundastarfi, og skipulag þjónustu við inngildandi menntun.Í frumvarpinu er kveðið á um að í leik-, grunn- og framhaldsskólum og frístundastarfi skuli fara fram inngildandi menntun og um rétt barna og ungmenna til þess. Inngildandi menntun felur m.a. í sér heildstætt skipulag kennslu, starfshátta og stuðningsúrræða í skóla- og frístundastarfi, eftir eðli og umfangi þarfa hvers barns og ungmennis. Það byggir á þverfaglegri teymisvinnu, markvissu símati og hagnýtingu gagna til að auka skilvirkni, efla gæði starfs og styðja við farsæla skólagöngu allra barna og ungmenna. Gert er ráð fyrir að inntak inngildandi menntunar verði útfært nánar í reglugerð.Í frumvarpinu er lagt til að sett verði heildarlög um inngildandi menntun barna og ungmenna í leik-, grunn- og framhaldsskólum og frístundastarfi, og skipulag þjónustu við inngildandi menntun.Í frumvarpinu er kveðið á um að í leik-, grunn- og framhaldsskólum og frístundastarfi skuli fara fram inngildandi menntun og um rétt barna og ungmenna til þess. Inngildandi menntun felur m.a. í sér heildstætt skipulag kennslu, starfshátta og stuðningsúrræða í skóla- og frístundastarfi, eftir eðli og umfangi þarfa hvers barns og ungmennis. Það byggir á þverfaglegri teymisvinnu, markvissu símati og hagnýtingu gagna til að auka skilvirkni, efla gæði starfs og styðja við farsæla skólagöngu allra barna og ungmenna. Gert er ráð fyrir að inntak inngildandi menntunar verði útfært nánar í reglugerð.
Fræðslu- og frístundanefnd fagnar fram komnu lagafrumvarpi. Nefndin sendi ekki inn umsögn í samráðsgátt en vænta má ýmissa breytinga í kjölfar umsagna sem þar bárust.
Markmiðið með lögunum er að efla skóla- og frístundastarf almennt. Það verður ekki gert nema með því að styðja við starfið innan frá og styrkja starfsfólk á vettvangi. Það er helst gert með öflugri starfsþróun sem nær til alls starfsfólks. Það er von fræðslu- og frístundanefndar að innleiðingu laganna verði fylgt vel eftir og gert verði ráð fyrir kostnaði sem til fellur við innleiðingu á vettvangi og að sá eða annar kostnaður sem til kanna að falla vegna þessara laga falli ekki einhliða á sveitarfélög.
10.
Samstarfssamningur FAS og Sindra
Málsnúmer 202403030
Erindi barst frá FAS þar sem fram kom að verið sé að endurskoða samstarfssamning milli Sindra og FAS um afreksíþróttastarf. Óskað er eftir því við sveitarfélagið að það skýri með hvaða hætti það getur stutt við samninginn t.a.m. með húsnæði.
Sveitarfélagið mun nú sem hingað til veita Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu frían aðgang að íþróttahúsnæði sveitarfélagsins. Einnig veitir sveitarfélagið umf. Sindra frían aðgang að íþróttahúsnæðinu. Eins og gefur að skilja gengur starfsemi skólanna sem sveitarfélagið rekur þó fyrir en fullur vilji er fyrir hendi til að reyna að láta skipulagið ganga sem best upp fyrir alla aðila. Því hvetur fræðslu- og frístundanefnd umf. Sindra og FAS til áframhaldandi samstarfs um afreksíþróttastarf og sveitarfélagið mun styðja við það eins og kostur er með því að leggja fram húsnæði.
Starfsmaður nefndar mun fylgja samningnum eftir þegar hann verður kominn lengra og hann kynntur fyrir nefndinni.
11.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 89
Málsnúmer 2402020F
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerð ungmennaráðs og fagnar því að farið verður í skuggakosningar fyrir forsetakosningar í vor.