Fara í efni

Fræðslu- og frístundanefnd

113. fundur
15. maí 2024 kl. 16:15 - 18:55
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir formaður
Þóra Björg Gísladóttir varaformaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir 2. varamaður
Guðrún Sigfinnsdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 91
Málsnúmer 2404023F
Fundargerð ungmennaráðs lögð fram.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerðina.
2.
Ársskýrsla Björgunarfélags Hornafjarðar
Málsnúmer 202405003
Ársskýrsla Björgunarfélags Hornafjarðar lögð fram til kynningar.
Finnur Smári Torfason formaður Björgunarfélags Hornafjarðar fylgdi ársskýrslu félagsins úr hlaði. Fræðslu- og frístundanefnd þakkar Finni Smára fyrir komuna og óskar Björgunarfélagi Hornafjarðar góðs gengis ekki síst með byggingu nýrrar björgunarmiðstöðvar.
3.
Ársskýrsla Golfklúbbs Hornafjarðar 2023
Málsnúmer 202405002
Ársskýrsla Golfklúbbs Hornafjarðar lögð fram til kynningar.
Halldóra Guðmundsdóttir formaður GHH fylgdi ársskýrslu GHH úr hlaði. Stöðug fjölgun hefur orðið í golfklúbbnum og eru félagar nú orðnir 160 talsins. Fræðslu- og frístundanefnd þakkar Halldóru fyrir greinargóða skýrslu og óskar klúbbnum velfarnaðar.
4.
Ársskýrsla umf.Sindra 2023
Málsnúmer 202405001
Ársskýrsla umf. Sindra lögð fram til kynningar.
Hjalti Vignisson fylgdi ársskýrslu umf. Sindra úr hlaði. Mikill viðsnúningur var á starfi félagsins á síðasta ári og lítur rekstur félagsins vel út. Sveitarfélagið styrkti umf. Sindra sérstaklega til bílakaupa og til reksturs á bókhaldskerfi og það hjálpaði félaginu mikið. Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir greinargóða skýrslu og óskar stjórnarfólki og félögum í umf. Sindra góðs gengis í leik og starfi.
5.
Vallarstjórn 2024
Málsnúmer 202404041
Fundargerð vallarstjórnar lögð fram til kynningar og umræðu.
Fræðslu- og frístundanefnd hvetur forstöðumann íþróttamannvirkja til þess að láta fara hratt og örugglega í að lagfæra þá hluti sem þarf að lagfæra svo sem hoppubelginn, sparkvöllinn, körfuboltavöllinn og annað á miðsvæðinu sem verulega er farið að láta á sjá. Gulu rennibrautina í sundlauginni og öðrum í sundlauginni sem hvetur bæði íbúa og gesti til að mæta í sund. Einnig er mikilvægt að sinna almennu viðhaldi á íþróttavöllunum og Bárunni.
Það er ánægjulegt að sjá hvað Jökulfellsvöllurinn kemur vel undan vetri og ljóst að sú vinna sem lögð var í hann í fyrra er að skila sér.
6.
Íþróttahús - hönnun
Málsnúmer 202402127
Farið yfir stöðuna hjá stýrihópi um byggingu íþróttahúss.
Breyting hefur orðið á stýrihóp um byggingu nýs íþróttahúss. Eyrún Fríða Árnadóttir hefur tekið við af Guðrúnu Stefaníu Vopnfjörð Ingólfsdóttir og Þórgunnur Torfadóttir hefur tekið við sem starfsmaður hópsins af Birni Imsland.
7.
Skólapúlsinn 6.-10.bekkur 2023-2024
Málsnúmer 202311015
Niðurstöður Skólapúlsins fyrir 6. - 10. bekk lagðar fram til kynningar og umræðu.
Farið yfir niðurstöður Skólapúlsins í Grunnskóla Hornafjarðar. Flest atriði koma vel út en þó ákveðinn munur sé á milli ára.
8.
Starfsmannapúlsinn 2024
Málsnúmer 202402027
Niðurstöður starfsmannapúlsins lagðar fram til kynningar og umræðu.
Farið yfir starfsmannapúlsinn á fræðslu- og frístundasviði sveitarfélagsins. Sérstaklega var rætt um niðurstöður á Sjónarhól. Niðurstaðan þar er betri en í fyrra þó enn sé af mörgu að taka. Vonir standa til að sú vinna sem átti sér stað í leikskólaráði og starfshópnum í vetur eigi eftir að skila sér í enn betri niðurstöðum á næstu árum.
9.
Fræðsludagur á fræðslu- og frístundasviði 2024
Málsnúmer 202401132
Fræðsludagur fyrir starfsfólk fræðslu- og frístundasviðs er áætlaður 15. ágúst næstkomandi.
Þetta er í annað sinn sem sérstakur fræðsludagur verður haldinn innan sviðsins. Áherslan í ár er áfallamiðuð nálgun. Fyrri hluti dagsins er hugsaður fyrir allt starfsfólk. Seinni hluti fyrir fagaðila sem vinna náið með ungmennum sem hafa t.d. lent í áföllum eða líður illa af óútskýrðum orsökum.
10.
Vinnuskóli Hornafjarðar 2024
Málsnúmer 202401103
Farið yfir laun í vinnuskóla Hornafjarðar fyrir sumarið 2024.
Laun í vinnuskólanum í Sveitarfélaginu Hornafirði eru reiknuð með prósentu út frá ákveðnum launaflokk líkt og í fleiri sveitarfélögum t.a.m. Fjarðabyggð.