Fara í efni

Fræðslu- og frístundanefnd

116. fundur
11. september 2024 kl. 16:15 - 18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir formaður
Þóra Björg Gísladóttir varaformaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir 1. varamaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Smári Óliver Guðjónsson Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 93
Málsnúmer 2408017F
Fundargerð ungmennaráðs lögð fyrir og samþykkt. Nýtt ungmennaráð fundaði í fyrsta sinn í vikunni og býður fræðslu- og frístundanefnd það velkomið til starfa. Í ungmennaráði sitja þetta árið Adam Bjarni Jónsson, Sindri Sigurjón Einarsson og Ísold Andrea Andrésdóttir frá Grunnskóla Hornafjarðar, Berglind Stefánsdóttir, Emilía Alís Sumarrós Karlsdóttir og Sigurður Gunnlaugsson frá FAS, Smári Óliver Guðjónsson frá umf. Sindra og Dagmar Lilja Óskarsdóttir og Selma Ýr Ívarsdóttir frá atvinnulífinu.
2.
Umf.Sindri - Samningur 2024
Málsnúmer 202404054
Umfjöllun um samning SVH við umf. Sindra.
Fjallað um samninginn sem er langt kominn. Umf. Sindri leggur áherslu á meiri stuðning við afreksstarf og bílamál auk áframhaldandi stuðnings við bókhaldskerfi. Stuðningur við afreksstarf fer aðalega í að greiða laun þjálfara en þess má geta að annarsstaðar er talað um góða umgjörð utan um íþróttastarf í Hornafirði og það er metnaðarmál Sindra að hafa það þannig áfram og helst að bæta í.
3.
Vallarstjórn 2024
Málsnúmer 202404041
Fundargerði vallarstjórnar tekin til umfjöllunar.
Fundargerð lögð fram og samþykkt. Þess má geta að búið er að setja upp tjald til að skipta íþróttasalnum í Mánagarði þannig að ef gamli salurinn er í notkun þá er auðvelt að bæta við rúmlega hálfum íþróttasalnum með skömmum fyrirvara og stækka þannig salinn. Þá er ánægja með nýja ærslabelginn.
4.
Lýðheilsuráð 2024-2025
Málsnúmer 202409014
Verkefnisstjóri fræðslu- og frístundasviðs fundaði með nokkrum forstöðumönnum um helstu áherslur sem ættu að vera í forvarnarmálum á Hornafirði næsta árið líkt og sagt er fyrir um í erindisbréfi lýðheilsuráðs.
Það var samdóma álit forstöðumannanna að hvetja til forvarna sem stuðla að aukinni samkennd í samfélaginu og efla félagsfærni og bæta samskipti. Auk þessa yrði áfram stutt við fleiri forvarnir og þá miðað við þörfina hverju sinni, m.a. rætt um næringarfræðslu, Bergið headspace og fræðslu um svefn svo eitthvað sé nefnt.
5.
Skólamáltíðir útboð 2025
Málsnúmer 202409013
í vor rennur út samningur um skólamáltíðir við Vigdísarholt. Fjárhæðir í nýjum samningnum ná þeim mörkum að nauðsynlegt er að bjóða hann út á evrópska efnahagssvæðinu. Óskar starfsmaður nefndarinnar eftir því að fá að hefja undirbúning útboðs í samvinnu við ríkiskaup.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir að farið verði í undirbúning á útboði á skólamáltíðum. Málinu vísað til bæjarráðs.
6.
Styrkir til foreldrafélaga
Málsnúmer 202409005
Sveitarfélagið úthlutar styrkjum til foreldrafélaga skólanna á hverju ári.
Á næstu vikum verður þessi styrkur lagður inn á foreldrafélögin og hvetur fræðslu- og frístundanefnd foreldrafélögin til að nýta peninginn til að efla samkennd og samskipti meðal barna og fjölskyldna.
7.
Fjárhagsáætlanir á fræðslu- og frístundasviði
Málsnúmer 202408029
Fjárhagsáætlanir eru nú í vinnslu hjá forstöðumönnum stofnana.
Fjárhagsrammar lagðir fram til kynningar.
8.
Forvarnarstyrkur frá afkomendum Rafns Eiríkssonar og Ástu Karsldóttur
Málsnúmer 202409016
Sveitarfélaginu hefur borist gjöf frá afkomendum Rafns Eiríkssonar og Ástu Karlsdóttur að upphæð 250.000 krónur og óskað eftir því að þessum fjármunum verði varið til forvarnarstarfs.
Rafn starfaði sem kennari í Nesjum frá árinu 1950 og síðar sem skólastjóri við Nesjaskóla frá 1954 til 1987. Samhliða kennslunni sinnti hann fjölmörgum félagsstörfum, sat í stjórnun ýmissa félaga og var mjög virkur í starfi ungmennafélagshreyfingarinnar. Hann var einlægur áhugamaður um leiklist og stóð fyrir leiksýningum í sinni heimasveit auk þess sem hann setti upp leiksýningar með nemendum í Nesjaskóla um langt árabil. Þannig einkenndist starf hans alla tíð að uppfræðslu og starfi með með börnum og ungmennum. Ásta tók virkan þátt í öllu þessu starfi og stóð þétt við hlið hans í þeim verkefnum sem hann tók að sér.
Eftir að starfsævi Rafns lauk þá sneri hann sér að áhugamáli sínu, sem var málaralistin. Það hafði hann haft að tómstundastarfi hin síðari ár á Hornafirði og prýða mörg málverk eftir hann heimili og stofnanir. Auk þess hélt hann nokkrar málverkasýningar á Hornafirði og víðar.
Þegar þau systkinin ákváðu að efna til til sýningar á þeim málverkum, sem til voru í safni Rafns þegar hann féll frá, þá kom upp sú hugmynd að nýta hluta af þeim fjármunum sem myndu safnast við sölu á málverkunum til að styrkja forvarnarstarf barna og unglinga í sveitarfélaginu á Hornafirði. Þannig vildum þau sýna í verki þakklæti sitt, gera eitthvað sem kæmi sér vel og myndi gagnast ungu fólk í sveitarfélaginu Hornafirði og væri um leið táknrænt fyrir starf foreldra þeirra og í þeirra anda.

Fræðslu- og frístundanefnd þakkar þeim systkinum Karli, Signýju, Gunnari og Ástu kærlega fyrir hlýhug og höfðinglega gjöf sem svo sannarlega verður nýtt til góðra verka.