Fara í efni

Fræðslu- og frístundanefnd

130. fundur
12. nóvember 2025 kl. 16:15 - 18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir formaður
Þóra Björg Gísladóttir varaformaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Kristján Örn Ebenezersson aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
Dagskrá
1.
Stuðningssjóður fyrir íþrótta- og tómstundastarf ætlaður börnum frá tekjulágum heimilum
Málsnúmer 202511005
Starfsmaður svæðisskrifstofu íþróttahéraða kynnir hugmynd að stuðningssjóði sem ætlaður er til að efla og styðja við þátttöku barna með veikt fjárhagslegt bakland í íþrótta- og tómstundastarfi.
Markmið frístundastyrkja sveitarfélaga er að tryggja að öll börn hafi jöfn tækifæri til þátttöku í skipulögðu frístunda- og íþróttastarfi, óháð efnahag heimilisins. Þessi stuðningur hefur reynst dýrmætur þáttur í því að efla þátttöku barna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi og stuðla að félagslegri virkni barna og ungmenna. Frístundastyrkur Sveitarfélagsins Hornafjarðar er meðal þeirra hæstu á landsbyggðinni, sem endurspeglar skýra áherslu á jafnan aðgang barna að frístundastarfi. Þrátt fyrir þessa mikilvægu aðstoð kemur fyrir að hluti frístundastyrkja séu ekki nýttir og renna því aftur í sjóði sveitarfélagsins. Í því felst tækifæri til þess að efla stuðning við þau börn sem standa höllum fæti vegna efnahagslegra aðstæðna. Hugmynd Jóhönnu og starfsmanna svæðisfélaga er að mynda sjóð úr þeim afgangi sem verður til af ónýttum frístundastyrk.

Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir kynninguna og telur að um mikilvægt mál geti verið að ræða. Óskað var eftir frekari gögnum t.a.m. um útfærslu en einnig óskar nefndin eftir því að innleiðingarteymi farsældarlaganna í sveitarfélaginu fjalli um málið.
2.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 105
Málsnúmer 2509018F
Fundargerð ungmennaráðs lögð fram.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerðina.
3.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 106
Málsnúmer 2510024F
Fundargerð ungmennaráðs lögð fram.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerðina.
4.
Barna- og ungmennaþing 2025
Málsnúmer 202504082
Barna- og ungmennaþing verður haldið 18. nóvember næstkomandi. Þingið er ætlað börnum og ungmennum frá fjögurra ára aldri til 24 ára og fer aðkoma að eftir aldri og þroska. Fjölmörg málefni verða tekin fyrir og rædd á þinginu og stefnt er að því að sagt verði frá fyrstu niðurstöðum 20. nóvember á degi Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Samhliða þinginu verða rýnihópar þar sem farið verður dýpra í málefnin í litlum hópum sem gætu átt sérstakra hagsmuna að gæta, s.s. fötluð börn, börn úr dreifbýli, börn af erlendum uppruna og ungmenni sem komin eru á atvinnumarkað.Niðurstöður Barna- og ungmennaþings og niðurstöður rýnihópa verða lagðar til grundvallar næstu aðgerðaráætlun í Barnvænu sveitarfélagi fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð en áætlað er að hún líti dagsins ljós næsta vor.
Fræðslu- og frístundanefnd lýsir ánægju með fyrirhugað Barnaþing og hlakkar til að fá boð á fyrstu niðurstöður þingsins.
5.
Íþróttahús - hönnun
Málsnúmer 202402127
37. fundargerð stýrihóps lögð fram til kynningar.
6.
Verklag vegna styrkja og auglýsinga
Málsnúmer 202507025
Undanfarna mánuði hefur farið fram vinna við að gera úthlutun styrkja hjá Sveitarfélaginu straumlínulagaðri og gegnsærri. Farið yfir úthlutunarreglur.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir reglurnar og leggur til að unnið verði eftir þeim og þær síðan endurskoðaðar í ljósi reynslu næsta vor. Mikilvægt er að koma upp skýru verklagi og gagnsærri vinnu við úthlutun styrkja.
7.
Starfshópur um húsnæðismál Grunnskóla Hornafjarðar
Málsnúmer 202502009
Greinargerð um skólaheimsókn starfshópsins lögð fram og rædd.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir greinagerðina. Næstu skref verða að setja fram framtíðarsýn fyrir einstök rými og síðan verður farið að máta sig við það húsnæði sem fyrir er og velta fyrir sér framtíðarmöguleikum.
8.
Hornafjörður náttúrulega - endurskoðun stefnu 2025
Málsnúmer 202511027
Undanfarið ár hefur farið fram endurskoðun á heildarstefnu sveitarfélagsins Hornafjörður náttúrulega. Lagt er til að stoðunum fækki í þrjá og sú stoð sem helst tekur til málefna á fræðslu- og frístundasviði beri nafnið FÓLKIÐ. Helstu áherslur í þeirri stoð kynntar fræðslu- og frístundanefnd.
Fræðslu- og frístundanefnd er ánægð með vinnuna við Hornafjörð náttúrulega. Á næstunni verða drög að stefnunni sett í samráðsgátt og hvetur nefndin fólk til að skoða stefnuna og koma með athugasemdir.