Fræðslu- og frístundanefnd
134. fundur
18. febrúar 2026
kl.
16:15
-
18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þóra Björg Gísladóttir
varaformaður
Steindór Sigurjónsson
aðalmaður
Kristján Örn Ebenezersson
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Selma Ýr Ívarsdóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir
sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 109
Fundargerð ungmennaráðs lögð fram til kynningar.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerðina.
2.
Skráningardagar í leikskóla
Á fundi fræðslu- og frístundanefndar 21. janúar 2026 var ákveðið að senda út foreldrakönnun um viðhorf foreldra til skráningardaga í leikskólanum Sjónarhóli. Könnunin var opin 22.-29. janúar og svöruðu 83 foreldrar könnuninni.
Helstu niðurstöður könnunarinnar voru að; 7% foreldra þurfa alltaf að nýta skráningardagana, 19% þurfa þess aldrei, 36% stundum og 25% oftast. Varðandi skipulagið þá finnst 41% foreldra skipulagið í kringum skráningardagana í góðu lagi, 21% finnst það að mestu í lagi og 28% finnst að það mætti vera betra. Varðandi fyrirkomulag greiðslna vill meirihluti foreldra halda því eins og það er eða 63%.
Þrátt fyrir að niðurstöðurnar séu almennt jákvæðar þá komu þó ýmsar góðar ábendingar fram í opnum svörum sem tekið verður tillit til. Má þar nefna að næsta sumar verða skráningardagar bæði fyrir og eftir sumarfrí og boðið verður upp á sveigjanleika með greiðslur þeirra þ.e. ef margir skráningardaga lenda í sama mánuði geta foreldrar rætt við leikskólastjórnendur og þeir geta dreift greiðslum á tvo mánuði.
Þrátt fyrir að niðurstöðurnar séu almennt jákvæðar þá komu þó ýmsar góðar ábendingar fram í opnum svörum sem tekið verður tillit til. Má þar nefna að næsta sumar verða skráningardagar bæði fyrir og eftir sumarfrí og boðið verður upp á sveigjanleika með greiðslur þeirra þ.e. ef margir skráningardaga lenda í sama mánuði geta foreldrar rætt við leikskólastjórnendur og þeir geta dreift greiðslum á tvo mánuði.
3.
Ósk um auka skipulagsdag á leikskólanum Sjónarhóli
Óskað er eftir auka skipulagsdegi á Sjónarhól á næsta skólaári sem nýttur yrði til í fyrirhugaða starfsmannaferð.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir viðbótarskipulagsdag á leikskólanum. Þessi dagur er ætlaður í námsferð starfsmanna til Skotlands þar sem vagga Heillaspora (Nurture) er, en leikskólarnir, grunnskólarnir, frístundin og félagsmiðstöðin eru að hefja innleiðingu á þessu verkefni.
4.
Sjónarhóll í dag
Farið yfir stöðuna í leikskólanum Sjónarhóli nú þegar tæpt ár er síðan viðbygging var opnuð við skólann.
Nú er komin staðfesting á því að nýju deildirnar hafa fengið Svansvottun. Hljóðvistunin og rýmin eru frábær í nýju deildunum. 121 barn eru á leikskólanum og enginn biðlisti. Allar deildirnar eru opnar og hægt verður að taka á móti eins árs börnum fram á vorið. Ráðningar hafa gengið vel en starfsmannaveltan þó alltaf nokkur.
Leikskólinn er að hefja innleiðingu á Heillasporum í mars samhliða, grunnskólunum, frístund og Þrykkjunni. Næsta haust ætlar skólinn líka að hefja verkefni sem kallast "Snemmtæk íhlutun í leikskóla með áherslu á málþroska". Það er verkefni sem talar vel til starfsins í leikskólanum. Mesta áskorun leikskólans er eins og áður skortur á fagmenntuðu starfsfólki.
Leikskólinn er að hefja innleiðingu á Heillasporum í mars samhliða, grunnskólunum, frístund og Þrykkjunni. Næsta haust ætlar skólinn líka að hefja verkefni sem kallast "Snemmtæk íhlutun í leikskóla með áherslu á málþroska". Það er verkefni sem talar vel til starfsins í leikskólanum. Mesta áskorun leikskólans er eins og áður skortur á fagmenntuðu starfsfólki.
5.
Lengri opnun sundlaugar á þriðjudögum, tilraun í febrúar
Í febrúar var opnunartími sundlaugarinnar lengdur til 21:30 á þriðjudögum. Þetta var m.a. gert til að koma til móts við ungt fólk sem talar um að það vanti fleiri staði til að hittast á og vera saman með öllum aldri og er um tilraunaverkefni að ræða. Nú þegar sundlaugin hefur verið opin tvö þriðjudagskvöld af fjórum lítur út fyrir að aðsóknin þessi kvöld sé umtalsvert meiri en önnur kvöld.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar starfsfólki sundlaugarinnar fyrir að ráðast í þetta verkefni sem auðsjáanlega hefur vakið eftirtekt því góð aðsókn hefur verið þessi kvöld. Forstöðumaður sundlaugar mun í framhaldinu skoða áhuga og möguleika á að halda þessu áfram.
6.
Samningur um vallarumhirðu 2026
Knattspyrnudeild umf. Sindra hefur óskað eftir samningi um vallarumhirðu líkt og undanfarin ár.
Samningurinn lagður fram til kynningar og vísað til bæjarráðs.
7.
Fjölmenningarleg inngilding - Ósk um samstarf
Framhaldsskóli Austur-Skaftafellssýslu (FAS) hefur óskað eftir samstarfi við Sveitarfélagið Hornafjörð og stuðningi til að vinna að meiri inngildingu íbúa af erlendu bergi brotnu. FAS hefur í vetur kennt íslensku fyrir erlenda íbúa en til að gera enn betur hefur starfsfólk hug á að standa fyrir námskeiði sem snýr að kynningu á samfélaginu, bæði íslensku samfélagi en ekki síður sérstöður hornfirsks samfélags. Samfélagið er lykillinn að því að læra íslensku og um leið verður íslenskan líka lykillinn að því að verða hluti af samfélaginu. Því er um metnaðarfullt verkefni að ræða sem sveitarfélagið er reiðubúið að styðja við. Sviðstjóra fræðslu- og frístundasviðs og skólameistara FAS var gert að vinna að framgangi málsins. Mál lagt fram til kynningar
8.
Fjölbreytileikavikan 2026
Áherslan í fjölbreytileikavikunni að þessu sinni er kærleikurinn og nær vikan til alls marsmánaðar undir slagorðunum KÆRLEIKURINN SAMEINAR OKKUR Í MARS.
Undirbúningshópur sem samanstendur af starfsfólki frá ólíkum stofnunum hefur komið með margskonar hugmyndir en megin áherslan verður á að við vinnum með okkur sjálf og reynum að láta gott af okkur leiða. Gildi eins og umburðarlyndi, virðingu og samkennd verða mikilvæg í kærleiksmánuði og það verður gaman fyrir Skaftfellinga alla að dreifa kærleikanum.
9.
Íþróttaskóli
Víða hafa verið teknir upp svokallaðir íþróttaskólar fyrir börn í fyrstu bekkjum grunnskóla með það að markmiði að þau geti kynnst sem flestum íþróttagreinum. Þessi umræða kemur reglulega upp innan fræðslu og frístundasviðs og mikilvægt að fræðslu- og frístundanefnd viti af henni og geti tekið afstöðu til hennar. Mál lagt fram til kynningar og umræðu.
Fræðslu- og frístundanefnd óskar eftir fundi með stjórn umf. Sindra til að ræða málið.
10.
Frístundaakstur 2026
Hugmyndir að breytingum á frístundaakstri hafa verið lagðar fram og tók bæjarráð þær til umfjöllunar á fundi sínum 17. febrúar. Hugmyndirnar miða að því að breyta fyrirkomulagi frístundaaksturs svo tímasetningar henti betur þörfum þeirra fjölskyldna sem nýta sér hann.
Ákveðið hefur verið að breyta tímasetningum á frístundaakstri frá 25. febrúar og prófa nýtt fyrirkomulag það sem eftir er vetrar. Frístundabíllinn mun fara 18:15 frá sundlauginni í stað 17:00. Fræðslu- og frístundanefnd lýsir ánægju með nýtt fyrirkomulag og því að leitað skuli leiða til að koma til móts við börn og foreldra.
11.
LED Nordic Rástefna um hönnun námsumhverfis á Norðurlöndum
Ráðstefna þessi er ætluð öllum sem láta sig hönnun og rannsóknir á námsumhverfi í skólabyggingum varða, þar á meðal rannsakendum, fulltrúum ríkis og sveitarfélaga, stjórnendum í menntakerfi og skólum, kennurum, arkitektum og hönnuðum. Hér er linkur á viðburðinn LED Nordic: Ráðstefna um hönnun námsumhverfis á Norðurlöndum | Háskóli Íslands Hér er linkur á facebookviðburðinn https://fb.me/e/44SGRpKmh