Fara í efni

Fræðslu- og frístundanefnd

136. fundur
15. apríl 2026 kl. 16:15 - 18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þóra Björg Gísladóttir varaformaður
Ingólfur Guðni Einarsson 1. varamaður
Kristján Örn Ebenezersson aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Selma Ýr Ívarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
Dagskrá
1.
Skóladagatöl leik- og grunnskólans í Hofgarði
Málsnúmer 202601169
Skóladagatöl leik- og grunnskólans í Hofgarði fyrir veturinn 2026-2027 lögð fram.
Fræðslu og frístundanefnd samþykkir framlögð skóladagatöl.
2.
Aukið samstarf Grunnskólans í Hofgarði við Grunnskóla Hornafjarðar
Málsnúmer 202604033
Áróra Gústafsdóttir skólastjóri Grunnskólans í Hofgarði kynnir hugmyndir þess efnis að elstu nemendur í Hofgarði sæki meira skóla á Höfn.
Fræðslu- og frístundanefnd líst vel á hugmyndir Áróru og nemenda í Öræfum og felur henni og sviðsstjóra að vinna málið áfram í nánu samstarfi við foreldra og börn.
Þessi breyting felur í sér aukinn kostnað vegna skólaaksturs og er málinu vísað til bæjarráðs.
3.
Skóladagatal Tónskóla A-Skaft 2026-2027
Málsnúmer 202601168
Skóladagatal Tónskóla A-Skaft. fyrir veturinn 20256-2027 lagt fram.
Fræðslu og frístundanefnd samþykkir framlagt skóladagatal.
4.
Þrykkjan og samstarf
Málsnúmer 202604030
Félagsmiðstöðin Þrykkjan hefur undanfarin ár verið í samstarfi við félagsmiðstöðvar á Suðurlandi og þannig fylgt þeirri stefnu sem sveitarfélagið hefur sett um samstarf við sunnlensk sveitarfélög. Krakkarnir í Þrykkjunni hafa þó á undanförnum árum óskað eftir því að samstarfið beinist frekar í hina áttina, það er til Austurlands. Ungmennaráð tók málið til umfjöllunar og tekur undir með krökkunum í félagsmiðstöðinni og telur að samstarfi væri betur komuð austur.
Fræðslu- og frístundanefnd líst vel á hugmyndir Þrykkjuráðs og samþykkir að félagsmiðstöðin sæki samstarf austur á bóginn.
5.
Sumarfrístund 2026
Málsnúmer 202602162
Farið yfir stöðu sumarfrístundar.
Enn sem komið er hafa engin örugg svör komið frá aðilum um námskeið eða dagskrá fyrir börn í sumar en margir hafa líst áhuga og telja að þeir verði með. Starfsfólk sviðsins mun á næstu dögum hafa samband við félagasamtök og stefnt er að því að bjóða upp á annan fund fyrir mánaðarmót. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við starfsfólk sviðsins sem munu glaðir liðsinna áhugasömum.
6.
Ársskýrsla og ársreikningar Björgunarfélags Hornafjarðar 2025
Málsnúmer 202604021
Ársskýrsla og ársreikningar Björgunarfélags Hornafjarðar lagt fram til kynningar.
Finnur Smári Torfason fylgdi ársskýrslu og ársreikningum úr hlaði. Árið hefur verið viðburðaríkt hjá félaginu og mikil orka farið í að koma upp nýju Björgunarmiðstöðinni en það verk er nú langt komið. Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir góða kynningu og óskar Björgunarfélagi Hornafjarðar innilega til hamingju með nýja húsið og hvetur Hornfirðinga til að fjölmenna í kaffisamsæti slysavarnarkvenna á sumardaginn fyrsta og skoða húsið í leiðinni.
7.
Ársskýrsla og ársreikningar Golfklúbbs Hornafjarðar 2025
Málsnúmer 202604022
Ársskýrsla og ársreikningar Golfklúbbs Hornafjarðar lagt fram til kynningar.
Halldóra Katrín Guðmundsdóttir formaður Golfklúbbs Hornafjarðar fylgdi ársskýrslu og ársreikningum úr hlaði. Rekstur GH hefur gengið vel og margt spennandi á döfinni hjá félaginu. Fræðslu- og frístundanefnd þakkar Halldóru fyrir gott samtal og óskar Golfklúbbi Hornafjarðar góðs gegnis.
8.
Skóladagatal Grunnskóla Hornafjarðar 2026-2027
Málsnúmer 202601166
Skóladagatal Grunnskóla Hornafjarðar lagt fram.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir framlagt skóladagatal.
9.
Foreldrakönnun Grunnskóla Hornafjarðar 2026
Málsnúmer 202603054
Niðurstöður foreldrakönnunar Grunnskóla Hornafjarðar í Skólapúlsinum lagðar fram til kynningar
Í foreldrakönnun skólans kemur fram almenn ánægja með skólastarfið í flestum þáttum þó auðvitað séu alltaf einhverjar áskoranir. Nemendum líður almennt vel og einelti mælist mun minna en í sambærilegum skólum. Starfsfólk skólans hefur gert úrbótaáætlun sem unnið verður eftir og óskar fræðslu- og frístundanefnd starfsfólki skólans góðs gengis og styður það í sínum störfum.
10.
Skóladagatal Leikskólans Sjónarhóls 2026-2027
Málsnúmer 202601167
Skóladagatal Leikskólans Sjónarhóls lagt fram.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir framlagt skóladagatal.
11.
Foreldrakönnun Sjónarhóls 2026 - Skólapúlsinn
Málsnúmer 202601154
Niðurstöður foreldrakönnunar Sjónarhóls 2026 lagðar fram til kynningar.
Foreldrakönnun leikskólans kom að ýmsu leyti vel út þó áskoranir séu líka töluverðar. Ekki er búið að ljúka kynningu á niðurstöðum í leikskólanum en að henni lokinni verður unnin úrbótaáætlun sem unnið verður eftir. Börnunum líður almennt vel í leikskólanum og mikil ánægja er með húsnæði og aðstöðu. Fræðslu- og frístundanefnd óskar starfsfólki góðs gengis og styður það í störfum sínum.
12.
Námsgögn fyrir Grunnskóla - samningur 2025-2028
Málsnúmer 202502020
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur verið í samstarfi við skóla í Reykjanesbæ um innkaup á námsgögnum fyrir skóla. Nýlega var nýr samningur undirritaður, að þessu sinni við A4 en síðasti samningur var við Pennann.Mál lagt fram til kynningar.
13.
Unga fólkið og framtíðin.18.ráðstefnan um íslenska þjóðfélagið
Málsnúmer 202604049
Á föstudag og laugardag 17. og 18. apríl standa Nýheimar þekkingarsetur fyrir áhugaverðri og metnaðarfullri ráðstefnu um íslenska þjóðfélagið sem ber yfirskriftina Unga fólkið og framtíðin og er 18. ráðstefnan um íslenska þjóðfélagið. Þessar ráðstefnur hafa verið haldnar á mismunandi stöðum í gegnum árin. Að þessu sinnu er boðið upp á hlaðborð áhugaverðra erinda með færustu sérfræðingum landsins og eru nefndarmenn og Hornfirðingar allir hvattir til að kynna sér dagskrána og taka þátt.
14.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 111
Málsnúmer 2604005F
Fundargerð ungmennráðs lögð fram.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerð ungmennaráðs.