Fara í efni

Fræðslu- og frístundanefnd

137. fundur
27. maí 2026 kl. 16:15 - 18:15
Miðgarður
Nefndarmenn
Þóra Björg Gísladóttir varaformaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Kristján Örn Ebenezersson aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Selma Ýr Ívarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 112
Málsnúmer 2604018F
Fundargerð ungmennaráðs lögð fram.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerð ungmennaráðs.
2.
Snemmtæk íhlutun í leikskóla með áherslu á málþroska
Málsnúmer 202602099
Í kjölfar samdráttar hjá MMS er óskað eftir meiri stuðningi frá sveitarfélaginu til að fjármagna verkefnið.
Fræðslu- og frístundanefnd þykir miður að verið sé að draga úr framlögum til MMS ekki síst í ljósi umræðna síðustu mánuða um skólamál en líka þar sem minni framlög auka kostnað sveitarfélag á landsbyggðinni. Fræðslu og frístundanefnd samþykkir framlagðar hugmyndir til að mæta kostnaði og styður verkefnið áfram.
Máli vísað til bæjarráðs.
3.
Reglur um starfsemi leikskóla
Málsnúmer 202301058
Ósk um lítilsháttar breytingar á reglum um starfsemi leikskóla.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir breyttar reglur. Breytingarnar snúa að því að nú geta foreldrar sótt um að greiða ekki fyrir morgunmat barns þegar barn borðar morgunmat heima enda sé það samdóma álit foreldra og starfsmanna leikskóla að barnið borði aldrei morgunmat á leikskólanum þó það sé mætt á morgunverðartíma. Fræðslu- og frístundanefnd leggur áherslu á að breytingarnar mega ekki vera íþyngjandi fyrir starfsfólk leikskólans. Því skulu þær endurskoðaðar eftir hálft ár með tilliti til þess hvort vandamál hafa komið upp.
4.
Ársskýrsla og ársreikningar Hestamannafélagsins Hornfirðings 2025
Málsnúmer 202603094
Ársskýrsla Hestamannafélagsins Hornfirðings lögð fram til kynningar.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir greinagóða skýrslu. Framundan er stórt ár hjá Hestamannafélaginu Hornfirðingi sem heldur fjóðungsmót á næsta ári og óskar nefndin félaginu góðs gengis á komandi starfsári.
5.
Ársskýrsla og ársreikningar umf.Sindra 2025
Málsnúmer 202604023
Ársskýrsla umf. Sindra lögð fram til kynningar.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir greinagóða skýrslu og óskar umf. Sindra góðs gengis á komandi starfsári
6.
Íþróttaskóli
Málsnúmer 202602054
Fræðslu- og frístundanefnd fjallaði um málefni íþróttaskóla í febrúar. Þá var ákveðið að ræða við stjórn umf. Sindra um málið. Nú hafa málin verið ræddd í deildum Sindra og á fundinum verður farið yfir hugmyndir umf. Sindra íþróttaskóla.
Fræðslu- og frístundanefnd er ánægð með hugmyndir Sindra og felur sviðsstjóra að koma með drög að skipulagi fyrir næsta vetur í samráði við umf. Sindra og leggja fyrir nefndina sem fyrst.
7.
Skólamáltíðir útboð 2026
Málsnúmer 202603085
Útboðið hefur verið auglýst og verða tilboð opnuð 2. júní.
Mál lagt fram til kynningar.
8.
Íslensku menntaverðlaunin 2026 - ósk um tilnefningar
Málsnúmer 202604072
Fulltrúar fræðslu- og frístundanefndar eru hvattir til ásamt öðrum aðilum skólasamfélagsins að senda inn tilnefningar til íslensku menntaverðlaunanna en frestur til þess rennur út 1. júní.
Mál lagt fram til kynningar og hvatningar.
9.
Vallarstjórn 2026
Málsnúmer 202604070
Fundargerð vallarstjórnar frá 28. apríl lögð fram.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerðina en óskar eftir því að forstöðumaður íþróttamiðstöðvar geri verðkönnun á flísum, dúk og málningu fyrir potta og heita potta í sundlauginni. Nefndin hlakkar til að fylgjast með endurbótum á Bárunni í sumar og er ánægð að sjá hvað knattspyrnuvöllurinn kemur vel undan vetri.
10.
Vinnuskóli Hornafjarðar 2026
Málsnúmer 202603046
Farið yfir málefni Vinnuskólans fyrir sumarið 2026.
Fræðslu- og frístundanefnd líst vel á skipulag vinnuskólans í sumar og vonast eftir góðri þátttöku ungmenna.
11.
Sumarfrístund 2026
Málsnúmer 202602162
Farið yfir stöðuna á sumarfrístundinni. Málin hafa verið að skýrast og líkur á að sumarfrístundin verði bæði fjölbreytt og skemmtileg.
Fræðslu- og frístundanefnd líst vel á skipulag sumarsins og um leið og hún þakkar öllum sem ætla að taka þátt þá er hún líka spennt að sjá hvernig til tekst.
12.
Íþróttahús - hönnun
Málsnúmer 202402127
Fundargerðir stýrihóps um byggingu nýs íþróttahúss lagðar fram til kynningar.
13.
Lýðheilsustefna fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð
Málsnúmer 202510124
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur fengið styrk til að móta lýðheilsustefnu með aðgerðaáætlun fyrir sveitarfélagið Hornafjörð að upphæð krónur 900.000 krónur frá Lýðheilsusjóði.
Til stendur að hefja vinnu við gerð lýðheilsustefnu á haustdögum. Stefnan á að vera einföld en skýr og draga fram megin áherslur sveitarfélagsins í lýðheilsu. Með stefnunni skal fylgja aðgerðaráætlun til tveggja til þriggja ára sem einfaldar eftirfylgni á stefnunni og dregur fram forgangsatriði hverju sinni.
14.
Verkefnastyrkir hjá atvinnu- og menningarmálanefnd og fræðslu- og frístundanefnd 2025-26
Málsnúmer 202512087
Á liðnu ári var reglum um verkefnastyrki Sveitarfélagsins Hornafjarðar breytt með áherslu á að gera þær einfaldari og gegnsærri.Fræðslu- og frístundanefnd og atvinnu- og menningarmálanefnd úthlutaðu verkefnastyrkjum saman enda var verið að sameina sjóði nefndanna. Við úthlutun komu í ljós ákveðnir hnökrar á reglunum sem nú er verið að laga. Uppfærðar reglur og matsramma fyrir verkefnastyrki sveitarfélagsins lagðar fram til umræðu og afgreiðslu.
Helstu breytingar sem nú eru lagðar til felast í því að atvinnu- og menningarmálanefnd sjái alfarið um úthlutun því það var óþarfa flækjustig að hafa tvær nefndir í málinu. Aðrar breytingar eru minniháttar og snúa fyrst og fremst að orðalagi og uppsetningu. Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir framlagðar breytingatillögur en bendir þó á að mikilvægt sé að auglýst styrkina vel og minnt á leiðbeiningaskyldu starfsmann.