Fara í efni

Fræðslu- og frístundanefnd

138. fundur
15. júní 2026 kl. 15:00 - 20:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásta Steinunn Eiríksdóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir aðalmaður
Herdís Ingólfsdóttir Waage áheyrnarfulltrúi
Ingibjörg Sveinsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
Dagskrá
1.
Erindisbréf fræðslu- og frístundanefndar
Málsnúmer 202206034
Erindisbréf fræðslu- og frístundanefndar lagt fram til kynningar. Aðal- og varamenn sitja undir þessum lið.
Öll erindisbréf sveitarfélagsins er hægt að nálgast inn á heimasíðu sveitarfélagsins, https://www.hornafjordur.is/cdn/documents/Erindisbref/Erindisbref-fraedslu-fristundarnefndar-2022.pdf?v=1770391776. Fram kom að væntanlega yrði erindisbréfið uppfært á næstu vikum.
2.
Fundargátt sveitarfélagsins - kynning fyrir nefnd
Málsnúmer 202206036
Kynning á fundargátt sveitarfélagsins https://fundargatt.hornafjordur.is/login/. Aðal- og varamenn sitja undir þessum lið.
Jóna Benný og Arndís fóru yfir fundargáttina hvar hún væri og hvernig hún virkaði. Aðal- og varamenn hafa fengið leiðbeiningar sendar í tölvupósti. Farið yfir siðareglur og þagnarskyldu nefndarmanna og skjal um þagnarskyldu þeirra hefur verið sent aðal- og varamönnum til rafrænnar undirritunnar. Þá var farið yfir samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa ásamt ýmsu öðru gagnlegu efni fyrir nefndarmenn.
3.
Starfsáætlun Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu 2026-2027
Málsnúmer 202606063
Starfsáætlun Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu lögð fram til kynningar og umræðu.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir starfsáætlun Tónskóla Austur- Skaftafellssýslu. Það er ánægjulegt að sjá hvað starf Tónskólans blómstrar í endurbættum Sindrabæ.
4.
Starfsáætlun leikskólans Sjónarhóls 2026-2027
Málsnúmer 202606062
Starfsáætlun Sjónarhóls lögð fram til kynningar og umræðu.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir starfsáætlun Sjónarhóls. Starfsáætlunin verður birt á heimasíðu skólans.
5.
Útileiktæki á leikskólanum
Málsnúmer 202606082
Fulltrúi Kex lista óskaði eftir að setja málefni útleiksvæðis á leikskólanum á dagskrá.
Góð umræða um útileiktæki á leikskólanum. Fræðslu- og frístundanefnd hvetur stjórnendur og framkvæmdasvið sveitarfélagsins til að setja upp drullumallsvæðið sem er tilbúið til uppsetningar og setja aftur upp rólur fyrir eldri börnin en í leiðinni að tryggja öryggi í kringum þær eins og hægt er.
6.
Matsferill - niðurstöður 2026
Málsnúmer 202604071
Farið yfir niðurstöður Matsferils en í vetur var hann í fyrsta skipti lagður fyrir alla nemendur í 4., 6. og 9. bekkjum landsins.
Almennt kemur Grunnskóli Hornafjarðar vel út í Matsferli. Fram kom að enn er verið að vinna í því hvernig hann birtist og t.a.m. hafa skólaskrifstofur ekki enn fengið yfirlit yfir niðurstöður. Foreldrar hafa þó fengið niðurstöðurnar.
7.
Skólapúlsinn 2025-2026
Málsnúmer 202510048
Niðurstöður Skólapúlsins í 6. - 10. bekk kynntar.
Farið yfir niðurstöður Skólapúlsins fyrir 6. - 10. bekk. Skólapúlsinn er hluti af innra mati skólans og mikilvægt að nýta niðurstöðurnar til úrbóta. Flestar þeirra eru jákvæðar og mikilvægt að hlúa að því sem vel er gert en í niðurstöðunum felast líka tækifæri til umbóta.
8.
Starfsáætlun Grunnskóla Hornafjarðar 2026-2027
Málsnúmer 202606061
Starfsáætlun Grunnskóla Hornafjarðar lögð fram til kynningar og umræðu.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir starfsáætlun Grunnskóla Hornafjarðar. Starfsáætlunin verður birt á heimasíðu skólans en ný heimasíða ætti að fara í loftið í sumar.
9.
Sjálfsmatsskýrsla Grunnskóla Hornafjarðar 2026
Málsnúmer 202606058
Sjálfsmatsskýrsla Grunnskóla Hornafjarðar lögð fram til kynningar og umræðu.
Sjálfsmat er mikilvægur þáttur skólastarfs og gefur skólanum tækifæri til að meta stöðuna. Hvað er vel gert og hvar má gera betur. Reglulega er unnið í sjálfsmati innan skólans. Skólinn tók upp sjálfsmatskerfið Bravo Lesson síðasta haust og vonir standa til að það einfaldi utanumhald um sjálfsmatið þegar það verður komið í fulla virkni.
10.
Ársskýrsla ASK 2025
Málsnúmer 202605853
Ársskýrsla Akstursfélags Austur-Skaftafellssýslu lögð fram til kynningar og umræðu.
Ársreikningur félagsins lagður fram og óskaði fræðslu- og frístundanefnd eftir því að tekjur og gjöld verði sett upp í ársreikningsform. Ársskýrslan er enn í vinnslu og verður send til nefndarmanna þegar hún er tilbúin. Mótokrosssvæði er glæsilegt og það er líflegt starf í félaginu. M.a. námskeið um næstu helgi, Route1 í júlí og Íslandsmót 18. júlí.
11.
Ársskýrsla umf.Vísis 2025
Málsnúmer 202605852
Ársskýrsla umf. Vísis lögð fram til kynningar og umræðu.
Líflegt starf hefur verið síðasta árið hjá Vísi og framundan er vígsluhátíð á Vísisvelli við Hrollaugsstaði 27. júní. Hægt er að skrá sig til þátttöku á mótið á vefslóðinni https://meets.rosterathletics.com/public/competitions/details/about?id=28836 og hvetur fræðslu- og frístundanefnd alla til að skrá sig og taka þátt.
Borðtennisbúðum fyrir fötluð börn var að ljúka hjá Vísi. Þar eru nú 5 borðtennisborð í fullri stærð, borðtennisrobot og eitt borð í 75% stærð. Þar voru reglulegar borðtennisæfingar allan síðast vetur. Þar eru einnig regluleg fótboltaiðkun yfir sumarið og nú er hægt að stunda frjálsar íþróttir þar ásamt körfubolta.
12.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 113
Málsnúmer 2605008F
Fundargerði ungmennaráðs lögð fram til kynningar.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerð ungmennaráðs.
13.
Farsældarráð Suðurlands
Málsnúmer 202603005
Fundargerðir 2. og 3. fundar Farsældarráðs Suðurlands lagðar fram til kynningar.
14.
Skólamáltíðir útboð 2026
Málsnúmer 202603085
Engin tilboð bárust í skólamáltíðir fyrir Grunnskóla Hornafjarðar.
Sviðsstjóra fræðslu- og frístundanefndar falið að leita leiða til þess að tryggja öruggar skólamáltíðir fyrir nemendur Grunnskóla Hornafjarðar næsta vetur. Málinu vísað til bæjarráðs.
15.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs sem hækka 1.ág 2026
Málsnúmer 202606018
Fræðslu- og frístundanefnd tekur fyrir gjaldkrárhækkanir á fræðslu- og frístundasviði sem taka eiga breytingum 1. ágúst.Búin að reikna inn hækkanir miðað við hækkanir á vísitölu.Það er svo nefndarinnar að ákveða
Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að fæðisgjöld verði lögð niður í leikskólum og lengdri viðveru frá og með 1. ágúst næstkomandi. Einnig er lagt til að systkinaafslætti verði breytt í vistunargjöldum. Í stað þess að hann komi fyrst af elsta barni, þá verði 35% afsláttur af gjöldum þegar það eru tvö systkini í vistun, 50% af gjöldum hjá þremur systkinum í vistun og 60% þegar börnin eru orðin fjögur eða fleiri.
Að öðru leyti verði vísitöluhækkun á gjaldskrám sbr. hækkun á vísitölu frá ágúst 2025-maí 2026 sem er 4,1%.
Sviðsstjóra falið að fá greiningu á fjárhagslegum áhrifum og málinu vísað til bæjarráðs.
16.
Fulltrúi sveitarfélagsins í afrekssjóð USÚ
Málsnúmer 202606022
Fræðslu- og frístundanefnd tilnefnir Ástu Steinunni Eiríksdóttur sem fulltrúa sveitarfélagsins í styrktar- og afrekssjóð USÚ.
17.
Íþróttaskóli
Málsnúmer 202602054
Á fundi fræðslu og frístundanefndar 27. maí 2026 var sviðsstjóri beðinn um að koma með drög að skipulagi íþróttaskóla næsta vetur í samráði við umf. Sindra. Minnisblað um málið lagt fram til kynningar og umræðu.
Fræðslu- og frístundanefnd líst vel á þær hugmyndir sem lagðar voru fram. Næsta skref er að framkvæmdastjóri Sindra ræði við deildir félagsins og sviðsstjóri leggi málið fyrir bæjarráð. Miðað er við að íþróttaskóli geti hafist með 1. og 2. bekk næsta haust ef allir aðilar sammælast um það og hann verði tilraunaverkefni næsta skólár.
18.
Sjálfsmatsskýrsla Leik- og grunnskólans í Hofgarði 2026
Málsnúmer 202606057
Sjálfsmatsskýrsla Leik- og grunnskólans í Hofgarði lögð fram til kynningar og umræðu.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir framlagða sjálfsmatsskýrslu.
19.
Starfsáætlun Leik- og grunnskólans í Hofgarði 2026-2027
Málsnúmer 202606060
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir framlagða starfsáætlun.