Fara í efni

Fræðslu- og frístundanefnd

139. fundur
6. júlí 2026 kl. 15:00 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Níels Brimar Jónsson varamaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir aðalmaður
Herdís Ingólfsdóttir Waage áheyrnarfulltrúi
Ingibjörg Sveinsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
Dagskrá
1.
Reglur um starfsemi leikskóla
Málsnúmer 202606157
Bæjarráð samþykkti breytingar á fæðisgjöldum og systkinaaflsætti leikskóla sem fræðslu- og frístundanefnd lagði til á fundi sínum 15. júní sl. Í ljósi þess leggur fræðslu- og frístundanefnd til breytingar á reglum um starfsemi leikskóla til samræmis við framangreindar breytingar á fæðisgjöldum og systkinaafslætti.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir framlagðar breytingar á reglum um starfsemi leikskóla og vísar þeim til staðfestingar í bæjarráði.
2.
Ársskýrsla verkefnastjóra á fræðslu- og frístundasviði júní 2026
Málsnúmer 202605006
Ársskýrsla verkefnastjóra á fræðslu- og frístundasviði lögð fram til kynningar og umræðu.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar verkefnastjóra fyrir góða og upplýsandi skýrslu.
3.
Ársskýrsla forstöðumanns Þrykkjunnar júní 2026
Málsnúmer 202606012
Ársskýrsla forstöðumanns Þrykkjunnar lögð fram til kynningar og umræðu.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar forstöðumanni Þrykkjunnar fyrir góða og upplýsandi skýrslu.
4.
Ársskýrsla sviðsstjóra á fræðslu- og frístundasviði 2026
Málsnúmer 202606013
Ársskýrsla sviðsstjóra á fræðslu- og frístundasviði lögð fram til kynningar og umræðu.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir góða og upplýsandi skýrslu.
5.
Skýrsla vinnuhóps Öruggara Suðurlands um úti- og bæjarhátíðir
Málsnúmer 202606053
Öruggara Suðurland er samstarfsverkefni lögreglunnar á Suðurlandi, sveitarfélaganna fjórtán á svæðinu og nokkurra stofnana. Markmið verkefnisins er að móta og innleiða aðgerðir til að draga úr ofbeldi og öðrum afbrotum á Suðurlandi, samræma verkferla milli aðila og efla upplýsingagjöf og fræðslu um þau úrræði sem standa til boða. Haustið 2025 var samþykkt að skipa sérstakan vinnuhóp innan Öruggara Suðurlands um úti- og bæjarhátíðir í umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi. Markmið hópsins var að greina framkvæmd og skipulag hátíða á svæðinu og leggja fram tillögur til að efla öryggi og forvarnir, með sérstakri áherslu á börn og ungmenni. Greining á úti- og bæjarhátíðum á Suðurlandi sýnir að hátíðir gegna mikilvægu samfélagslegu hlutverki og eru almennt fjölskylduvænar yfir daginn en kvöldviðburðir oft miðaðir að fullorðnum, einkum vegna áfengissölu. Helstu niðurstöður hópsins sem snúa að fræðslu- og frístundanefnd og tillögur til úrbóta felast í;1. Markvissu samstarfi og verkaskiptingu milli viðburðahaldara, sveitarfélaga og viðbragðsaðila með það að markmiði að auka forvarnir og fækka alvarlegum atvikum.2. Að aldurstakmörk séu virt og aðgangur að áfengi takmarkaður. 3. Leggja áherslu á fjölskylduvæna nálgun þar sem áfengi er ekki til staðar.4. Efla forvarnir með því að hvetja foreldra til ábyrgrar þátttöku en einnig með því að það séu skýrar upplýsingar um aldurstakmörk og áherslur á hátíðinni og í auglýsingum fyrir hana. Stærsta hátíð ársins í sveitarfélaginu Humarhátíðin er nú nýyfirstaðin. Hún gekk almennt vel en til að nýta niðurstöður skýrslunnar og draga fram þá þætti sem hægt væri að gera betur er skýrslan tekin til umfjöllunar í fræðslu- og frístundanefnd. Á fundinn koma fulltrúar frá lögreglu og Humarhátíðarnefnd og óskað eftir þeirra hugmyndum um hvað betur mætti fara í ljósi þess skipulags sem verið hefur á hátíðinni og snýr að þessum atriðum.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir góða skýrslu og telur mikilvægt að nýta niðurstöður hennar til að gera góða Humarhátíð enn betri. Um leið og hún þakkar Humarhátíðarnefnd og öllum þeim sem komu að hátíðinni fyrir frábæra hátíð vill nefndin koma með tillögur um að;
1. Á Humarhátíð verði merktur starfsmaður frá Þrykkjunni til hvatningar og stuðnings fyrir ungt fólk til að taka þátt í hátíðinni og skemmta sér á fjölbreyttan hátt án áfengis.
2. Leiðað verði leiða til að draga úr áfengisneyslu á hátíðarsvæðinu og efla fjölskylduvæna stemningu.
3. Að almennt samstarf náist um að halda aldurstakmörk.
4. Að farið verði í átak með foreldrum um að efla samveru fjölskyldunnar á Humarhátíð og minnt á forvarnarhlutverk foreldra
Fræðslu- og frístundanefnd óskar eftir því að þessi atriði fari inn í skýrslu starfshóps um nýafstaðna Humarhátíð og verði notaðar í undirbúningi fyrir þá næstu.
6.
Styrktar- og afrekssjóður USÚ - endurskoðun á framlagi SVH til sjóðsins
Málsnúmer 202606149
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur lagt styrktar- og afrekssjóði til árlegt fjárframlag sem úthlutað er til umsækjenda í samræmi við reglur sjóðsins. Fjárframlagið hefur ekki endurspeglað þörf sjóðsins og aukinn kostnað við afreksstarf og því ákvað fræðslu- og frístundanefnd að endurskoða framlagið.
Fræðslu- og frístundanefnd felur sviðsstjóra að vinna að endurskoðun reglnanna í samráði við USÚ.
7.
Styrkbeiðni fyrir körfuknattleiksdeild Sindra
Málsnúmer 202606147
Körfuknattleiksdeild Sindra vann það eftirtektaverða afrek á vordögum að komast upp í efstu deild í körfubolta, Bónusdeildina. Af því tilefni hefur deildin óskað eftir sérstökum styrk til sveitarfélagsins til að koma til móts við aukinn kostnað í rekstri deildarinnar.
Fræðslu- og frístundanefnd óskar körfuknattleiksdeildinni til hamingjum með frábæran árangur og felur sviðsstjóra að fylgja umræðu fundarins eftir með bæjarráði.
8.
Ósk um aukafjárveitingu vegna ipada og tölvukaupa fyrir nemendur GH
Málsnúmer 202606148
Ósk hefur borist frá skólastjóra Grunnskóla Hornafjarðar um aukið fjárframlag sveitarfélagsins til kaupa á ipödum og chromebook tölvum fyrir nemendur Grunnskóla Hornafjarðar.
Fræðslu- og frístundanefnd leggur til við bæjarráð að samþykkja ósk Grunnskólans. Jafnframt hvetur nefndin skólastjórnendur til þess að setja búnaðarkaup fyrir skólann í fjárhagsáætlun hvers árs.