Fræðslu- og frístundanefnd
141. fundur
21. september 2026
kl.
15:15
-
17:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásta Steinunn Eiríksdóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Steindór Sigurjónsson
aðalmaður
Stefanía Dröfn Vopnfjörð Ingólfsdóttir
aðalmaður
Herdís Ingólfsdóttir Waage
áheyrnarfulltrúi
Ingibjörg Sveinsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Ágústa Margrét Arnardóttir
verkefnastjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar 2026-27
Kosið hefur verið í ungmennaráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Eftirfarandi sitja í ráðinu;
Adam Bjarni Jónsson
GH
Theadór Árni Stefánsson
GH
Gerður Lilja Helgadóttir
GH
Daníel Elí Gíslason
FAS
Freyja Dís Tjörvadóttir
FAS
Áskell Vigfússon
FAS
Sigurður Arnar Hjálmarsson
UMF. Sindri
Guðbjörg Dalía Björgvinsdóttir
Þrykkjan
Vaka Tjörvadóttir
Atvinnulífið
Anton Kristberg Sigurbjörnsson
Atvinnulífið
Fundað verður fyrsta mánudag í mánuði. Fyrsti fundur ráðsins verður því mánudaginn 5. október og þá verða m.a. áheyrnarfulltrúar í nefndir sveitarfélagsins kosnir.
Mál lagt fram til kynningar.

Fræðslu- og frístundanefnd býður nýkjörna aðila í ungmennaráði velkomin til starfa og óskar þeim öllum velfarnaðar í störfum sínum fyrir sveitarfélagið.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
2.
Vallarstjórn 2026
Fundargerð vallarstjórnar frá 31. ágúst lög fram til kynningar og umræðu.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir upplýsandi skýrslu. Því miður er ýmsu ábótavant eins og fram kemur í skýrslunni og snýr það að miklu leyti að umhirðu og þrifum á svæðinu og mannvirkjum því tengdu. Nefndin leggur áherslu á að kostnaðaráætlun fyrir úrbætur á botni buslulaugar verði tilbúin fyrir fjárhagsáætlunargerð. Þá telur nefndin að fara þurfi betur yfir núverandi fyrirkomulag vallarstarfsmanns á vegum Ungmennafélagsins Sindra. Nefndin leggur til að endurskoða verkefnið í heild ásamt öðrum störfum á svæðinu og kanna hvort hægt sé að ná fram betri skilvirkni og hagræðingu fyrir sveitarfélagið. Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs er falið að vinna málið áfram í samræmi við framangreint.
Nefndin leggur áherslu á að reynt verði að ljúka sem flestum verkefnum á verkefnalistanum á samningstímanum sem er út september og að nefndin fái skýrslu forstöðumanns íþróttamannvirkja og deildarstjóra þjónustu og framkvæmda um þau verkefni sem eftir standa og náðist ekki að sinna.

3.
Ice Lagoon höllin
Farið yfir ábendingar frá KKÍ um það sem betur mætti fara í Ice Lagoon höllinni fyrir næstu leiktíð.
Hugmynd er um að stækka áhorfendapalla og setja upp færanlega stúku og er áætlaður kostnaður við verkið um 2.000.000 kr.
Hugmynd er um að stækka áhorfendapalla og setja upp færanlega stúku og er áætlaður kostnaður við verkið um 2.000.000 kr.
Fræðslu- og frístundanefnd felur forstöðumanni íþróttamannvirkja að vinna málið áfram í samráði við stjórn körfuknattleiksdeildar Sindra, í samræmi við framlagt minnisblað og stefna að verklokum ólokinna mála fyrir lok septembermánaðar.
Fræðslu- og frístundanefnd er jákvæð fyrir stækkun áhorfendapalla og kaupum á færanlegri stúku og felur sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs að fá fjárhagslegt mat á kostnaði og eftir atvikum viðauka við fjárhagsáætlun í samráði við fjármálastjóra.
Málinu er í framhaldi af því vísað til bæjarráðs til ákvörðunar.

4.
Fjárhagsáætlanir á fræðslu- og frístundasviði fyrir árið 2027
Vinna við fjárhagsáætlun er hafin og áherslur eru að skýrast. Fyrir fundinn eru lagðar fram fjárhagsáætlanir stofnana sviðsins til umfjöllunar. Þó þær séu enn í vinnslu þá koma þó að mestu fram þær áætlanir sem um er að ræða í hverri stofnun fyrir sig.
Tekið skal fram að launaáætlanir eru ekki komnar inn í fjárhagsáætlun en þær eru stærsti hluti áætlana á fræðslu- og frístundasviði.
Meðfram fjárhagsáætlun eru lögð fram gögn um rekstrarkostnað í grunnskólum og leikskólum á landsvísu til glöggvunar á stöðu Sveitarfélagsins Hornafjarðar gagnvart öðrum sveitarfélögum.

Nefndin vill leggja áherslu á að eftirfarandi verkefni verði sérstaklega tekin til skoðunar við fjárhagsáætlunargerð:
1. Stefna að gjaldfrjálsum skólaferðalögum.
2. Hækkun frístundastyrks.
3. Móttaka barna með annað móðurmál.
4. Endurbætur á skólalóð.
5. Að rýnt verði sérstaklega í innkaup og samninga sem eru í fleiri en einni stofnun, svo sem ræstingu, hreinlætisvörur og fleira.
Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasvið er falið að vinna málið áfram í fjárhagsáætlunargerð.

5.
Lýðheilsustefna fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð
Sveitarfélagið fékk styrk frá Embætti landlæknis til að móta aðgerðabundna lýðheilsustefnu fyrir sveitarfélagið. Sá styrkur dugar ekki til að ljúka vinnunni og því þarf sveitarfélagið að leggja fram upphæð á móti. Það stóð til að hefja vinnuna fyrir ári síðan en sökum tímaskorts hefur það dregist. Nú er búið að ræða við aðila sem er tilbúinn til að halda utan um vinnuna fyrir hönd sveitarfélagsins og búið að gera verkáætlun. Lögð eru fram til kynningar gögn úr íslensku æskulýðsrannsókninni frá vorinu 2026 sem nýst gætu við vinnuna.
Í heildarstefnu sveitarfélagsins Hornafjörður Náttúrulega er bæði gert ráð fyrir gerð lýðheilsustefnu og fjölskyldustefnu, en fjölskyldustefnan á að halda utan um fjölbreytt málefni velferðarsviðs og fræðslu- og frístundasviðs, m.a. heilsueflandi samfélag. Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að skoðaður verði möguleikinn á að sameina þessar stefnur og felur sviðsstjórum fræðslu- og frístundasviðs og velferðarsviðs að vinna málið áfram.
Margt jákvætt kemur fram í skýrslunni um íslensku æskulýðsrannsóknina og virðist börnum almennt líða vel í skólanum en því miður er nokkuð hátt hlutfall eineltis í 4. og 5. bekk. Einnig eru sterk tengsl við foreldra og fjölskyldu, samfélagsmiðlanotkun fer minnkandi milli ára, yngri aldurshópurinn telur sig ekki upplifa einmannaleika oft en því miður eykst það eftir því sem krakkarnir verða eldri.
Þörf er á að skoða sérstaklega líðan framhaldsskólanema en samkvæmt heildarniðurstöðum á landsvísu taka þeir minni þátt í íþróttum og félagslífi en þar gætu verið tengsl við aukinn kvíða, einmanaleika og sjálfskaðahegðun.
Rannsóknina og niðurstöður hennar mætti hafa til hliðsjónar við vinnu heildar fjölskyldustefnu.

6.
Lýðheilsuráð 2026-2027
Fundargerð lýðheilsuráðs lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
7.
Reglur um akstur foreldra í dreifbýli með börn í leikskóla
Á síðustu vikum hafa komið ábendingar frá foreldrum leikskólabarna í Suðursveit að tímabært sé að endurskoða reglur um styrk til foreldra vegna aksturs barna í leikskóla.
Tillaga að uppfærðum reglum lögð fyrir fræðslu- og frístundanefnd en þar er allur vafi tekinn af um að fjárhæðin er vísitölutengd.
Tillaga að uppfærðum reglum lögð fyrir fræðslu- og frístundanefnd en þar er allur vafi tekinn af um að fjárhæðin er vísitölutengd.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir samhljóða uppfærðar reglur um styrk til foreldra vegna aksturs leikskólabarna og vísar reglunum til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu.
8.
Hugmynd að samstarfi við Glaciers of Höfn
Stefanía Dröfn Vopnfjörð Ingólfsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Fyrirspurn barst sveitarfélaginu frá Glaciers of Höfn um mögulegt samstarf. Bæjarráð sendi málið til fræðslu- og frístundanendar til umjöllunar og umsagnar.
Fyrirspurn barst sveitarfélaginu frá Glaciers of Höfn um mögulegt samstarf. Bæjarráð sendi málið til fræðslu- og frístundanendar til umjöllunar og umsagnar.
Fræðslu- og frístundanefnd er jákvæð fyrir samstarfi í tengslum við ákveðin verkefni í Grunnskóla Hornafjarðar til að dýpka þekkingu nemenda og vísar málinu aftur til bæjarráðs til ákvörðunar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
9.
Starfsemi leikskólans Sjónarhóls
Unnið hefur verið að því að undanförnu að efla leikskólann með markvissum aðgerðum. Fyrir fundinum liggur minnisblað bæjarstjóra með tillögum til úrbóta.
Fræðslu- og frístundanefnd leggur áherslu á að unnið verði markvisst að þeim aðgerðum sem fram koma í minnisblaðinu til að bæta stöðuna í leikskólanum Sjónarhóli og fagnar því að bæjarráð hafi samþykkt að auglýsa viðbótarstöðugildi á skrifstofu leikskólans. Nefndin leggur einnig ríka áherslu á áframhaldandi starf og stuðning mannauðsstjóra í leikskólanum í bráð og lengd. Þá minnir nefndin á mikilvægi þess að upplýsa foreldra með fyrirvara, sérstaklega komi til þess að seinka inntöku barna meðan starfsumhverfið kemst í betra jafnvægi. Að lokum óskar nefndin eftir að vera upplýst reglulega um framvindu mála og árangur aðgerðanna.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
10.
Leiktæki á skólalóð
Erindi barst til bæjarráðs frá ungum Hornfirðingum sem óskar eftir að aparólan við Hafnarskóla verði löguð og fleiri leiktækjum bætt á lóðina. Bæjarráð vísaði málinu til umsagnar í fræðslu- og frístundanefnd.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir erindið og fagnar frumkvæði barnanna. Nefndin tekur jákvætt í ábendingarnar og leggur til að þegar í stað verði hafist handa við að laga aparóluna. Þá er lagt til að deildarstjóri þjónustu og framkvæmda og skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar, geri tillögur að frekari aðgerðum til að bæta aðstöðu á lóðum við grunnskólann og vöruhúsið út frá þeim gögnum sem eru til og leggi fyrst fyrir hugmyndaráð og nemendaráð í grunnskólanum og starfsfólk í vöruhúsi og síðan fræðslu- og frístundanefnd og ungmennaráð. Í tillögunum þarf jafnframt að meta ástand núverandi aðstöðu, framkvæmdaþörf og kostnað við tillögurnar svo hægt sé að vísa þeim til fjárhagsáætlunargerðar sem fyrst.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
11.
Skólasamfélagið í Öræfum
Nokkrar umræður hafa átt sér stað um þróun skólahalds í Öræfum. Nú eru þar 7 nemendur í grunnskóla og 4 í leikskóla. Von er á tveimur nýjum börnum í leikskólann í vetur en tvö elstu börn grunnskólans sækja nám í Grunnskóla Hornafjarðar tvo daga í viku. Undanfarin ár hefur íbúafjöldi í Öræfum aukist og ljóst að skólinn er einn lykilþátturinn í því að fjölskyldur vilji setjast þar að og því mikilvægt að styðja við skólastarf eins og kostur er.
Fræðslu- og frístundanefnd felur formanni fræðslu- og frístundarnefndar ásamt aðilum úr nefndinni að hefja samtal við foreldra og starfsfólk um þann stuðning sem sveitarfélagið getur veitt svo þróun skólahalds í Öræfum verði sem jákvæðust fyrir börn og foreldra á svæðinu.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
12.
Íþróttaland
Lögð eru fram gögn um mætingar, skráningar og skipulag í Íþróttalandi sem starfrækt er í fyrsta skipti núna í vetur.
Ljóst er að þátttaka barna er misjöfn í Íþróttalandi og því miður ákveðnir hópar sem virðast ekki skila sér nægilega vel í starfið. Fræðslu- og frístundanefnd felur verkefnastjóra Íþróttlands að kanna með samtali við foreldra hvað veldur og hvort og hvernig megi bæta úr því.
Nefndin óskar eftir að fá sambærilegt minnisblað fyrir næsta fund og hvetur foreldra til að koma á framfæri ábendingum um það sem betur má fara til verkefnastjóra Íþróttalands.

13.
Staða framkvæmda á fræðslu- og frístundasviði
Lagt er fram minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda þar sem gerð er grein fyrir stöðu framkvæmda sem tengjast fræðslu- og frístundasviði.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar deildarstjóra þjónustu og framkvæmda fyrir greinargott minnisblað um stöðu framkvæmda sem tengjast starfssviði nefndarinnar. Nefndin leggur áherslu á að áfram verði unnið markvisst að framgangi þeirra verkefna sem þar eru tilgreind og að nefndin verði upplýst reglulega um framvindu þeirra.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.