Fræðslu- og frístundanefnd
142. fundur
19. október 2026
kl.
15:15
-
17:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásta Steinunn Eiríksdóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Steindór Sigurjónsson
aðalmaður
Stefanía Dröfn Vopnfjörð Ingólfsdóttir
aðalmaður
Ingibjörg Sveinsdóttir
aðalmaður
Freyja Dís Tjörvadóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir
sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 114
114. fundargerði ungmennaráðs lögð fram.
Nefndin býður Freyju Dís velkomna sem aðalmanna í fræðslu- og frístundanefnd og Guðbjörgu Dalíu sem varamann og þakkar fyrir greinagóða fundargerð.
2.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs sem hækka 1.jan 2027
Fræðslu og frístundanefnd fjallar um gjaldskrár á sviðinu.
Á þessum fundi er fjallað um þær gjaldskrár sem taka breytingum 1. janúar. Það er gjalskrá sundlaugar, Vöruhúss og niðurgreiðslur til dagforeldra. Niðurgreiðslur til dagforeldra eru jafnframt þær sem miðað er við ef foreldrar koma barni ekki að á leikskóla og óska eftir heimagreiðslum.

Fræðslu- og frístundanefnd vill halda aftur af hækkunum eins og kostur er án þess þó að það hafi mjög neikvæð áhrif á fjárhagsstöðu. Því leggur nefndin til að hækkanir verði innan 2,5% viðmiðs í samræmdu átaki stjórnvalda og sveitarfélaga sem er liður í því að styðja við kjarasamninga og halda aftur af verðbólgu.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
3.
Frístundastyrkir 2026
Fræðslu- og frístundanefnd fer yfir nýtingu frístundastyrkja það sem af er ári.
Fræðslu og frístundanefnd felur verkefnastjóra á fræðslu- og frístudnasviði að auglýsa fyrir næsta fund nefndarinnar hvernig sé hægt að nýta styrkinn milli sveitarfélaga.
Nefndin vísar ákvörðun um frístundastyrk fyrir næsta ár til bæjarráðs en vill leggja til að skoða vel hverjir geti notað slíkan styrk, að foreldrar og forráðamenn njóti í raun þeirra breytinga sem ákveðnar verða og tekin verði ákveðin skref til lægri útlagðs kostnaðar til frístundastarfs barna.

4.
Íþróttahús - hönnun
Fundargerðir 54., 55 og 56 frá stýrihóp um byggingu nýs íþróttahúss lagðar fram.
Lagt fram til kynningar.
Fræðslu og frístundanefnd lýsir ánægju sinni með að skriður sé kominn á málið með útboði á gervigrasvelli. Nefndin leggur áherslu á mikilvægi þess að hugað sé að ólíkum hlutverkum svæðisins í heild við áframhaldandi vinnu við valkostagreiningu. Á svæðinu eru skóla- og íþróttamannvirki ásamt opnu útivistar og hátíðarsvæði en mikilvægt er að breytingar á svæðinu rúmi einnig framtíðar áform um uppbyggingu, til dæmis skólamannvirkja.
Nefndin óskar eftir kynningu á stöðu mála frá verkefnastjóra á næsta fundi.

5.
Aðgerðaráætun í lýðheilsu fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð
Ólafur Stefánsson fyrrum landsliðskappi kom í þriggja daga heimsókn á Höfn. Hann ræddi við foreldra, nemendur í 5. - 10. bekk, þjálfara og að lokum tók hann þátt í almennum íbúafundi. Heimsókn Ólafs var hluti af dagksrá Íþróttaviku Evrópu en tengdist einnig vinnu við aðgerðaráætlun í heilsueflandi samfélagi.
Í samantekt eftir íbúafund með Ólafi Stefánssyni koma fram ýmis verkefni sem nefndin sér tækifæri fyrir sveitarfélagið að beina kröftum sínum í á næstu mánuðum og árum. En í ljósi þess að brottfall ungmenna úr skipulögðu íþróttastarfi á Hornafirði er að aukast vill nefndin hvetja samfélagið allt til að vera vakandi fyrir þessu og við hjálpumst að sem ein heild að snúa þessari þróun við. Nefndin hvetur íþróttahreyfinguna og svæðisfulltrúa að fara fyrir samstilltu áttaki í þessum málum, reyna eins og kostur er að minnka árekstra í æfingatöflu þannig börn finni sig ekki knúin til að velja milli greina en einnig auka samstarf milli deilda líkt og er þegar hafið með íþróttalandi.
Á síðasta fundi nefndarinnar var skýrt tekið fram að nefndin vildi kanna möguleika og ágæti þess að vinna lýðheilsustefnu sem hluta af verkefninu um fjölskyldustefnu. Sviðsstjórum var falið að kanna það og vill nefndin árétta að það verði gert. Ekki hefur verið samþykkt að setja viðbótar fjármagn í lýðheilsustefnu eða slíka aðgerðaráætlun að svo stöddu.

6.
Íþróttaskóli - Íþróttaland
Fræðslu- og frístundanefnd óskar eftir greiningu á verkefninu frá starfsmönnum fræðslu- og frístundasvið og umsjónarmönnum verkefnisins fyrir næsta fund. Einnig óskar nefndin eftir upplýsingum um hvernig aðilar sjá fyrir sér að verkefnið þróist eftir áramót.
7.
Málefni Kátakots og lengdrar viðveru
Málefni Kátkots tekin til umfjöllunar.
Fulltrúi K-lista óskaði eftir að málefni Kátakots yrðu tekin til umfjöllunar. Fræðslu- og frístundanefnd óskar eftir því að nýting á húsnæðinu Vöruhússins verði greind með tilliti til þess hvort nýta megi það betur undir starfsemi Kátakots til skemri tíma. Jafnframt leggur nefndin áherslu á að finna varanlega lausn á húsnæðismálum Kátakots til lengri tíma.
8.
Skólasamfélagið í Öræfum
Minnisblað eftir fund með foreldrum barna á leik- og grunnskólaaldri í Öræfum lagt fram til umræðu auk minnisblaða eftir frekari samtöl og samráð við aðila innan og utan sveitarfélagsins. Einnig fylgir málinu bréf frá foreldrum grunnskólabarna í Öræfum sem barst sama dag og fundur var haldinn.
Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að framtíðarskipulag skólahalds í Öræfum verði unnið út frá þeirri meginforsendu að efla og formfesta samstarf Hofgarðs við Grunnskóla Hornafjarðar. Markmið samstarfsins verði að tryggja nemendum í Öræfum áframhaldandi skólastarf í nærumhverfi sínu, eftir því sem aðstæður leyfa, ásamt öflugu faglegu og félagslegu baklandi.
Nefndin felur fræðslu- og frístundasviði að vinna nánari tillögu að útfærslu samstarfsins í samráði við foreldra, starfsfólk og stjórnendur Grunnskólans í Hofgarði og Grunnskóla Hornafjarðar.
Nefndin felur fræðslu- og frístundasviði að vinna nánari tillögu að útfærslu samstarfsins í samráði við foreldra, starfsfólk og stjórnendur Grunnskólans í Hofgarði og Grunnskóla Hornafjarðar.
9.
IceLagoon höllin
Fræðslu- og frístundanefnd fer yfir þær aðgerðir sem gripið var til í Ice Lagoon höllinn svo hún stæðist betur kröfur Körfuknattleikssambandsins.
Fræðslu og frístundanefnd vísar til bókunar frá síðasta fundi varðandi kröfur frá KKÍ um úrbætur á Ice Lagoon höllinni. Unnið hefur verið að þeim verkefnum sem tiltekin voru og flestum þeirra sem samþykkt var að fara í hefur verið lokið. Nefndin þakkar fyrir upplýsingarnar.
Fræðslu- og frístundanefnd leggur áherslu á áframhaldandi gott samstarf við körfuknattleiksdeildina og felur forstöðumanni íþróttamannvirkja að sjá til þess að þrif og aðbúnaður í húsinu verði eins góður og kostur er innan fjárheimilda sem fyrir eru.

10.
Skólalóðir endurbætur - Hafnarskóli, Heppuskóli
Á síðasta fundi fræðslu- og frístundanefndar 21. sept. 2026 var óskað eftir því að deildarstjóri þjónustu og framkvæmda og skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar gerðu tillögu að aðgerðum til að bæta aðstöðu á lóðum við Grunnskóla Hornafjarðar og Vöruhúsið í tengslum við erindi sem barst frá ungum Hornfirðing málsnr. 202608088. Fyrir fundinum liggur minnisblað
Fræðslu- og frístundanefnd styður að öryggisúrbætur verði settar í forgang. Nefndin óskar þó eftir meiri heildasýn á skólalóðina og eftir nánari útfærslu á framkvæmdaröð. Við forgangsröðun skal hafa í huga að nemendur kalla eftir fjölbreyttari tækjum og aðstöðu til leiks og óskum við eftir að það verði sett framarlega í röðina. Nefndin leggur áherslu á að tekið verði tillit til verkefnisins í fjárhagsáætlunargerð næsta árs þó svo að kostnaðarmat sé ekki tilbúið að svo stöddu.
11.
Styrktar- og afrekssjóður USÚ - endurskoðun á framlagi SVH til sjóðsins
Lokadrög samnings lögð fram til staðfestingar hjá fræðslu- og frístundanefnd.
Fræðslu- og frístundanefnd felur sviðsstjóra að leggja samninginn fram til undirritunar
12.
Samningur við Hestamannafélagið Hornfirðing 2027-2031
Samningur við Hestamannafélagið Hornfirðing rennur út um næstu áramót.
Fræðslu- og frístundanefnd felur sviðsstjóra að fara yfir samninginn með tilliti til þeirra athugasemda sem fram hafa komið og leggja fram tillögur fyrir næsta fund.
13.
Samningur við Björgunarfélag Hornafjarðar 2027-2031
Samningur við Björgunarfélag Hornafjarðar rennur út um næstu ármót.
Fræðslu- og frístundanefnd felur sviðsstjóra að fara yfir samninginn með tilliti til þeirra athugasemda sem fram hafa komið og leggja fram tillögur fyrir næsta fund.