Fara í efni

Fræðslu- og frístundanefnd

143. fundur
16. nóvember 2026 kl. 15:15 - 17:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásta Steinunn Eiríksdóttir formaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Stefanía Dröfn Vopnfjörð Ingólfsdóttir aðalmaður
Herdís Ingólfsdóttir Waage áheyrnarfulltrúi
Freyja Dís Tjörvadóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Kolbrún Þorbjörg Björnsdóttir varamaður
Theódór Óskar Þorvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
Dagskrá
1.
Íþróttahús - hönnun
Málsnúmer 202402127
Verkefnastjóri uppbyggingar íþróttahúss og skólamannvirkja mætti á fundinn og fer yfir stöðuna á verkefninu.

Nefndin þakkar verkefnastjóra uppbyggingar íþróttahúss og skólamannvirkja fyrir kynningu á stöðu verkefnisins og fagnar því að gagnasöfnun sé að ljúka. Þá vill nefndin ítreka að hugað sé að framtíðarmöguleikum svæðisins í heild og þeim áformum sem uppi eru varðandi skólauppbyggingu og annað starf á svæðinu. Einnig óskar nefndin eftir að fá gögnin til rýni þegar þau liggja fyrir svo veita megi umsögn út frá hlutverki og skyldum nefndarinnar.
2.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 115
Málsnúmer 2611004F
Fræðslu- og frístundarnefnd lýsir yfir ánægju sinni með metnaðarfull markmið Ungmennaráðs, eins og sjá má í fyrsta lið fundargerðarinnar. Þá vill nefndin einnig þakka ungmennaráði sérstaklega fyrir þeirra innlegg varðandi leiktæki á skólalóð og vísar því til nánari athugunar í áframhaldandi vinnu við heildarsýn skólalóðarinnar. Á síðasta fundi nefndarinnar var því vísað aftur til skólastjóra og deildarstjóra þjónustu og framkvæmda að fara yfir röð framkvæmda, sérstaklega með það fyrir augum að nemendur fái betri aðstöðu og tækifæri til leiks fyrr en gert hafði verið ráð fyrir.

Fræðslu- og frístundanefnd tekur undir bókun ungmennaráðs varðandi skólalóð.
"Ungmennaráð þakkar fyrir að málinu hafi verið vísað til ráðsins og vill jafnframt þakka þeim nemendum sem sýndu frumkvæði með því að vekja athygli á ástandi skólalóðarinnar.
Ráðið minnir á að Hornafjörður er Barnvænt sveitarfélag, sem felur meðal annars í sér að börn eigi rétt á að tjá sig frjálslega um málefni sem þau varða og að fullorðnir eigi að hlusta og taka mark á sjónarmiðum þeirra.
Ungmennaráð leggur áherslu á að þörf fyrir viðhald og endurbætur á skólalóð Grunnskóla Hornafjarðar hefur ítrekað verið til umræðu. Sterk og skýr skilaboð komu meðal annars fram á barna- og ungmennaþingi í nóvember 2025. Þá hafa í gegnum tíðina verið ræddar og kynntar ýmsar hugmyndir um úrbætur og telur ráðið mikilvægt að þeim sé fylgt eftir.
Ungmennaráð tekur jákvætt í þær hugmyndir um úrbætur sem fram koma í minnisblaðinu en leggur jafnframt áherslu á mikilvægi opins efniviðar á skólalóðinni. Þótt stór og fjölbreytt leiktæki hafi sitt gildi er opinn efniviður oft ódýrari kostur sem getur skapað fjölbreyttari og skemmtilegri leikmöguleika. Hann gefur börnum tækifæri til að nýta eigið hugmyndaflug, sköpunargleði og frumkvæði, þar sem leikurinn mótast af börnunum sjálfum. Slíkir leikir geta orðið sérstaklega eftirminnilegir og lifað lengi í minningum barna og ungmenna.
Ungmennaráð hvetur eindregið til þess að farið verði í bekki Grunnskóla Hornafjarðar, tillögur að úrbótum kynntar nemendum og leitað beint eftir þeirra hugmyndum og sjónarmiðum. Mikilvægt er að börnin sem nýta skólalóðina daglega fái raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif á hvernig hún verður mótuð.
Ungmennaráð hvetur bæjarráð og aðra sem að málinu koma til að fylgja ábendingum barna og ungmenna eftir með raunverulegum úrbótum. Raunverulegt samráð felst ekki aðeins í því að hlusta, heldur einnig í því að sýna hvernig tekið er tillit til sjónarmiða þeirra við ákvarðanatöku og framkvæmdir."
3.
Íþróttaskóli - Íþróttaland
Málsnúmer 202602054
Farið yfir stöðuna í Íþróttalandsverkefninu.
Ljóst er að verkefnið Íþróttaland er í þróun og starfsmenn þess eru tilbúnir til að leggja sitt af mörkum til úrbóta þar sem það á við. Foreldra könnun var send út og var mest ánægja með fjölbreytni og fjárhagslegt aðgengi í verkefninu. Þátttaka í íþróttum er meiri almennt en starfsfólk Kátakots finnur einnig mun á börnunum vegna jafnara álags. Helstu athugasemdir sem borist hafa snúa þó að því að börn sem velja 1-3 greinar vilji fleiri æfingar á viku en einnig að betra samráð hefði getað verið við upphaf Íþróttalands.
Nú vinna starfsmenn verkefnisins að úrbótum en fræðslu- og frístundanefnd vill koma á framfæri við ráðamenn umf. Sindra að reyna halda verði í samræmi við það sem verið hefur og kynna mögulegar breytingar tímanlega. Þá felur nefndin verkefnastjóra á fræðslu- og frístundasviði að koma þessum áherslum áfram og fá kynningu á því hvernig verkefnið muni þróast eftir áramót, á næsta fundi nefndarinnar, þann 14. desember.
4.
Lýðheilsuráð 2026-2027
Málsnúmer 202609071
Önnur fundargerð lýðheilsuráðs veturinn 2026-2027 lögð fram til kynningar.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fulltrúum sem sátu fund lýðheilsuráðs og leggja sitt af mörkum er varðar heilsueflingu í sveitarfélaginu. Á fundi ráðsins var samþykkt að meginverkefni á komandi vetrarmánuðum væri gerð aðgerðaráætlunar fyrir heilsueflandi samfélag í Sveitarfélaginu Hornafirði. Þá vill nefndin vekja athygli á því að undanfarið hafa þessi mál komið inn á fundi hennar og niðurstaðan verið sú að ekki eigi að setja viðbótarfjármagn í slíka vinnu umfram þann styrk sem veittur var frá embætti landlæknis í þetta verkefni.
5.
Málefni Kátakots og lengdrar viðveru í sveitarfélaginu
Málsnúmer 202610044
Heimsókn í Vöruhúsið þar sem aðstæður í Kátakoti verða skoðaðar og möguleikar á að stækka það rými sem Kátakot hefur til afnota.
Skoðunarferð um Vöruhúsið og fyrirliggjandi gögn sýna að góð nýting er á Vöruhúsinu. Þar er fjölbreytt starfsemi sem teygir anga sína víða út í samfélagið þó svo að nemendur Grunnskóla Hornafjarðar séu stærsti notendahópurinn. Nýlega hefur annað tónlistarherbergið verið tæmt og felur fræðslu- og frístundarnefnd umsjónamanni fasteigna í samstarfi við yfirmann Kátkots og skólastjóra að koma þeim þrifum og lagfæringum sem þörf er á í farveg svo unnt sé að nota rýmið undir starfsemi Kátakots og einnig að gera þær lagfæringar sem þörf er á í miðherberginu með flísunum. Þá var bent á að salurinn á miðhæðinni er lítið notaður á daginn og um að gera að leyfa börnunum í Kátakoti að nýta hann.
6.
Matsferill - niðurstöður 2026
Málsnúmer 202604071
Matsferill er samræmt stöðu og framvindupróf sem nær til lesfimi, lesskilnings og stærðfræði. Prófað hefur verið í lesfimi í mörg ár í öllum árgöngum en próf í lesskilningi og stærðfræði voru lögð fyrir í fyrsta sinn fyrr á þessu ári og þá aðeins í 4., 6., og 9. bekk en möguleiki væri að leggja þau fyrir í 4. ? 10. bekk og til stendur að gera það á þessu skólaári.



Nú hafa skólaskrifstofur í fyrsta sinn fengið aðgang að niðurstöðum einstakra árganga í sínu sveitarfélagi. Það gefur skólaskrifstofum færi á að fylgja betur eftir mati á frammistöðu nemenda og styðja við skóla í daglegu skólastarfi og því þróunarstarfi sem ávalt er í gangi ? ekki síst innra mati skólanna sjálfra.



Skólarnir í sveitarfélaginu koma vel út úr Matsferli og það gerir skólunum auðveldara fyrir við að ná þeim markmiðum sem þeir stefna að.

Lagt fram til kynningar.
Niðurstöður sýna að nemendur í þeim árgöngum sem metnir voru í Sveitarfélaginu Hornafirði standa alemnnt jafn vel eða betur en jafnaldrar þeirra á landsvísu. Í flestum tilfellum er stærri hluti nemenda yfir meðaltali miðað við aðra jafnaldra á landinu en einnig er lægra hlutfall nemenda undir meðaltali eða í neðstu mökrum miðað við landsmeðaltalið ef frá er talin niðurstaða fyrir lesfimi.
7.
Dagforeldri - niðurgreiðslur og fleira 2022-2025
Málsnúmer 202506076
Eina dagforeldrið sem starfað hefur í sveitarfélaginu síðustu ár hefur látið af störfum. Undanfarið hafa börn að jafnaði komist að á leikskóla í kringum 12 mánaða aldur og því hefur verið lítið að gera hjá dagforeldri. Í haust hefur hins vegar ekki tekist að ráða nægilega mikið af starfsfólki í leikskólann Sjónarhól svo hægt sé að opna 8. deildina. Takist að fullráða þá munu öll börn komast inn við 12 mánaðar án næstunni. Ef ekki þá verða um áramót 6 eins árs börn ekki komin með leikskólapláss.
Nefndin þakkar Birnu B. Sigurðardóttur, dagmömmu, innilega fyrir áralangt og farsælt starf í þágu barna og fjölskyldna í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Þar sem ekkert dagforeldri starfandi í sveitarfélaginu felur nefndin sviðsstjóra að auglýsa eftir áhugasömum aðilum til að gerast dagforeldrar og að kynnt verði fyrirkomulag leyfisveitinga og niðurgreiðslna í sveitarfélaginu en einnig hvar reglur um heimagreiðslur til foreldra er að finna.
8.
Skólasamfélagið í Öræfum
Málsnúmer 202609055
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkti að fara í hagsmunamat fyrir börn í Öræfum og vinna við það gengur vel.
Fræðslu- og frístundanefnd vill þakka nemendum í Hofgarði, fjölskyldum þeirra og starfsfólki skólans fyrir þá þolinmæði sem sýnd hefur verið í þessu máli. Nefndin leggur áherslu á að niðurstöður hagsmunamats liggi fyrir áður en ákvörðun verður tekin um hvort skólastarfi í Öræfum verði breytt á næstunni en vinnu við hagsmunamatið miðar vel. Um leið og nefndin leggur áherslu á að standa vörð um skólastarf í Öræfum þá telur hún líka mikilvægt að skoða hvort hægt sé að finna betra jafnvægi milli skóla- og félagstarfs barna og ungmenna á svæðinu. Sú vinna getur farið af stað áður en hagsmunamati lýkur og óskar nefndin eftir tillögum þess efnis frá fræðslu- og frístundasviði hið fyrsta.