Fræðslu- og frístundanefnd
91. fundur
15. júní 2022
kl.
16:15
-
20:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir
formaður
Steindór Sigurjónsson
1. varamaður
Kjartan Jóhann Einarsson
2. varamaður
Kristján Örn Ebenezersson
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir
sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Erindisbréf fræðslu- og frístundanefndar
Erindisbréf fræðslu- og frístundanefndar lagt fram til kynningar og staðfestingar í nefnd. Breytingar á því snúa fyrst og fremst að því að nafn nefndarinnar er að breytast úr fræðslu- og tómstundanefnd í fræðslu- og frístundanefnd í samræmi við breytingu á nafni sviðsins.
Breytingar á erindisbréfi samþykktar og nýtt erindisbréf fræðslu- og frístundanefndar samþykkt samhljóða og erindisbréf sent bæjarstjórn til samþykktar.
2.
Fundargátt sveitarfélagsins - kynning fyrir nefnd
Kynning á fundargátt sveitarfélagsins https://innskraning.island.is/?id=fundargatt.hornafjordur.is
Farið yfir hvernig nefndarmenn geta farið inn á fundargátt og nýtt sér hana. Flestir fundarmenn hafa þegar kynnt sér fundargáttina og kunna að nota hana.
Í framhaldi af kynningu á fundargátt skrifuðu fundarmenn undir þagnarskyldu.
Í framhaldi af kynningu á fundargátt skrifuðu fundarmenn undir þagnarskyldu.
3.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 72
Fundargerð lögð fram til kynningar og umræðu.
Fundargerði samþykkt.
4.
Skýrsla tómstundafulltrúa 2022
Skýrsla tómstundafulltrúa lögð fram til kynningar og umræðu.
Herdís Waage mælti sérstaklega með því að fá aftur kynningu frá foreldrahúsi en hún var síðast vorið 2021 en fáir mættu á þá kynningu. Skýrsla tómstundafulltrúa samþykkt.
5.
Ársskýrsla forstöðumanns Þrykkjunnar
Það var mikið um að vera í Þrykkjunni í vetur og það væri gaman að fá að sjá fréttir frá Þrykkjunni inn á heimasíðu sveitarfélagsins og í Eystrahorni til að kynna starfið betur. Ársskýrsla samþykkt.
6.
starfsáætlun Tónskólans 2022-2023
Starfsáætlun Tónskólans lögð fram til kynningar og umræðu.
Starfsáætlun Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu samþykkt.
7.
Skóladagatal Tónskólans, ósk um breytingu
Breytingin felst í að færa til skipulagsdag frá 16. september og nýta einn kennsludag í skipulagsdag eins og leyfi er fyrir svo starfsmenn komist á kennaraþing sem að þessu sinni verður í Reykjavík og stendur í tvo daga þann 8. og 9. september. Óskin um breytingu á skóladagatali samþykkt.
8.
Starfsáætlun fyrir Leik- og Grunnskólann í Hofgarði
Starfsáætlun samþykkt.
9.
Starfsáætlun Sjónarhóls 2022
Starfsáætlun Sjónarhóls og fræðsluáætlun lögð fyrir til kynningar
Starfsáætlun og fræðsluáætlun samþykkt.
10.
Viðbygging við leikskólann Sjónarhól
Kynning á stöðu viðbyggingar við Leikskólann Sjónarhól fyrir nýja nefnd.
Fyrstu drög að kostnaðaráætlun lögð fyrir nefndina. Nefndarmönnum líst vel á þær hugmyndir sem komnar eru frá arkitektum og hversu mikið samráð hefur verið haft við starfsfólk leikskólans. Umræða hefur líka verið um að bæta útivistarsvæði í nágrenni leikskólans til að efla útiveru leikskólabarna og útivist og samveru fjölskyldna. Fræðslu- og frístundanefnd hvetur til að haldið verði áfram að vinna að útfærslum á viðbyggingu. Málinu vísað til bæjarráðs.
11.
Starfsáætlun Grunnskóla Hornafjarðar
Starfsáætlun Grunnskóla Hornafjarðar lögð fyrir til kynningar og umræðu. Nafnalistar nemenda og starfsmanna eru enn í vinnslu en verða klárir fyrir prentun handbókar í ágúst.
Starfsáæltun Grunnskóla Hornafjarðar 2022-2023 samþykkt.
12.
Skólapúlsinn 2022 - niðurstöður nemendakannana GH 2021-2022
Niðurstöður úr nemendakönnunum Skólapúslins í Grunnskóla Hornafjarðar 1.-5. bekk og 6. - 10. bekk kynntar. Könnun 1.-5. bekkjar er lögð fyrir í apríl ár hvert og svara allir nemendur könnuninni. Í 6. - 10. bekk er könnunin lögð fyrir í þremur hlutum, október, janúar og maí og svarar hver nemandi einu sinni.
Niðurstöður Skólapúlsins eru almennt mjög góðar sem er einkar ánægjulegt fyrir skólann og sveitarfélagið.
13.
Menntun til sjálfbærni.ákall til sveitarstjórna
Mál lagt fram til kynningar og starfsmaður frá Grunnskóla Hornafjarðar segir frá áherslum í menntun til sjálfbærni þar.
Berglind sagði frá áhersluþáttum í menntun til sjálfbærni í skólanum. Áhersla á sjálfbærnimenntun er alltaf að aukast og mikilvægt að halda endalaust áfram og að sveitarfélagið styðji við eins og kostur er.
14.
Uppsögn - Leigusamningur SS Sport
Málið sett fram til kynningar fyrir nýja nefnd.
S.S. Sport hefur sagt upp leigusamningi að Álaugareyjarvegi 7 þar sem Sporthöllin er til húsa. Samkvæmt áliti lögfræðings væri rétt að auglýsa reksturinn þannig að aðrir komist að borðinu. Ef það gengur ekki er hægt að semja við núverandi rekstraraðila með lækkaðri leigu eða skoða aðrar útfærslur.
Unnið er að samantekt á því hvernig önnur sveitarfélög haga rekstrinum til upplýsingar fyrir bæjarstjórn.
Unnið er að samantekt á því hvernig önnur sveitarfélög haga rekstrinum til upplýsingar fyrir bæjarstjórn.
15.
Hönnun viðbyggingar V/sundlaug/líkamsrækt
Málið lagt fram til kynningar og umræðu í nýrri nefnd.
Unnið er að því að taka saman upplýsingar um kostnað við byggingu nýs íþróttahúss svo bæjarstjórnarfólk geti borið saman kostnað við byggingu nýs íþróttahúss og nýrrar líkamsræktarstöðvar. Þær upplýsingar ættu að vera komnar fyrir næsta bæjarráðsfund. Fræðslu- og frístundanefnd leggur áherslu á að vanda vel til vinnunnar.
16.
Ársskýrsla sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs
Ársskýrsla sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs lögð fram til kynningar og umræðu.
Ársskýrsla sviðsstjóra samþykkt. Fræðslu- og frístundanefnd leggur áherslu á að halda áfram að auglýsa eftir starfsfólki á Sjónarhól og í Hofgarð og nota öll ráð til fá áhugasamt og metnaðarfullt fólk til starfa þar.