Fræðslu- og frístundanefnd
92. fundur
17. ágúst 2022
kl.
16:15
-
18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir
formaður
Þóra Björg Gísladóttir
varaformaður
Kjartan Jóhann Einarsson
2. varamaður
Kristján Örn Ebenezersson
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Alexandra Guðrúnardóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir
sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Sveitarstjórnarkosningar 2022 kynning fyrir aðalmenn og varamenn í fræðslu- og frístundanefnd.
Ólöf Ingunn Björnsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs fór yfir helstu atriði stjórnsýslulaga og hlutverk bæjarfulltrúa og nefndarmanna í stjórnsýslunni. Auk þess útskýrði hún í hverju fjármál sveitarfélagsins felast og hlutverk sveitarstjórnarfólks og nefndarmanna þegar kemur að fjármálum sveitarfélagsins.
2.
Ánægjuvogin - sem tengist íþróttamálum
Ánægjuvogin eru unnin af Rannsóknum & greiningu (R&G) fyrir Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ). Í Ánægjuvoginni felst að spurningum tengdar íþróttum og íþróttaiðkun er bætt við spurningalista í könnuninni Ungt fólk, sem lögð var fyrir nemendur í 8.-10. bekk í febrúar og mars 2022.
Í Ánægjuvoginni er meðal annars spurt um ánægju iðkenda með íþróttafélagið, þjálfara, íþróttaaðstöðu og helstu áhersluatriði þjálfarans í starfi. Einnig eru skoðuð tengsl íþróttaiðkunar nemenda við aðra þætti eins og vímuefnaneyslu og andlega og líkamlega heilsu, svefn og neyslu orkudrykkja.
Farið var yfir niðurstöður könnunarinnar með gestum fundarins og þær ræddar. Það er sérdeilis ánægjulegt að sjá hvað unga fólkið okkar er ánægt með þjálfarana sína og niðurstöður könnunarinnar munu nýtast í áframhaldandi stefnumótun bæði hjá íþróttafélaginu og sveitarfélaginu.

3.
Ósk um endurskoðun á samningi við Sporthöllina
Á vordögum sagði SS.Sport upp samningi við sveitarfélagið um rekstur líkamsræktarstöðvar í ljósi bágrar fjárhagsstöðu. Í kjölfarið var auglýst eftir aðilum til að reka líkamsræktarstöð. Engin tilboð bárust í reksturinn og því var ákveðið að ganga til samninga við SS.Sport. Á fundinum var farið yfir drög að samningnum.
Fræðslu- og frístundanefnd lýsir yfir ánægju með að verið sé að tryggja áframhaldandi rekstur líkamsræktarstöðvar á Höfn.
Fræðslu- og frístundanefnd lýsir yfir ánægju með að verið sé að tryggja áframhaldandi rekstur líkamsræktarstöðvar á Höfn.
4.
Umsýsla með dagforeldrum færist yfir á fræðslusvið
Á fundi fræðslu- og tómstundanefndar 11. maí 2022 var samþykkt að umsýsla með niðurgreiðslum til dagforeldra færðist yfir á fræðslusvið. Í kjölfarið þurfti að skipta reglunum upp. Annars vegar eru það reglur um dagforeldra og hins vegar reglur um niðurgreiðslu til dagforeldra.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkti fyrirliggjandi drög að reglum um niðurgreiðslur til dagforeldra og vísar málinu áfram til samþykktar í bæjarstjórn.
5.
Skólamáltíðir - reiknvél út frá vísitölu neysluverðs
Lagt fram til kynningar.