Fara í efni

Fræðslu- og frístundanefnd

94. fundur
27. október 2022 kl. 16:15 - 18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir formaður
Steindór Sigurjónsson 1. varamaður
Andri Már Ágústsson aðalmaður
Kristján Örn Ebenezersson aðalmaður
Guðrún Sigfinnsdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 73
Málsnúmer 2209008F
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerðina.
2.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 74
Málsnúmer 2210001F
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerðina.
3.
Lýðheilsuráð 2022-2023
Málsnúmer 202209018
Fyrsti fundur nýskipaðs Lýðheilsuráðs var 13. október síðastliðinn.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerðina.
4.
Leikskólinn Sjónarhóll: Ytra mat 2021
Málsnúmer 202010160
Skólinn hefur fengið frest á að skila úrbótaáætlun til 11. nóvember.
5.
Lokun leikskólans kl. 15:00 á föstudögum
Málsnúmer 202202037
Eins og fram kom á síðasta fræðslu- og frístundanefndarfundi 21. september óskaði starfsfólk leikskólans eftir því að leikskólanum yrði alfarið lokað kl. 15:00 á föstudögum og stytting vinnuvikunnar yrði tekin út þannig. Fræðslu- og frístundanefnd féllst ekki á slíka þjónustuskerðingu þar sem um 35% foreldra telja sig þurfa að nýta opnun á föstudögum til 16:00. Starfsfólk og stjórnendur leikskólans hafa nú ákveðið að reyna aðra útfærslu á styttingu vinnuvikunnar og því verður leikskólinn nú opinn öllum til 16:00 á föstudögum.
Sveitarfélagið telur mikilvægt að halda úti þjónustu við foreldra og stuðla með því að jafnrétti til atvinnuþátttöku. Á meðan enn eru stéttir sem ekki hafa fengið styttingu vinnuvikunnar þá er sveitarfélagið ekki reiðubúið að skerða þjónustuna.
6.
Hönnun viðbyggingar við leikskólann
Málsnúmer 202201046
Vel gengur að hanna viðbyggingu við leikskólann og styttist í lokateikningar.
Fræðslu- og frístundanefnd lýsir ánægju sinni með þær tillögur sem komnar eru og vonar að tímaáætlun haldist og að frekar verði hægt að flýta henni en seinka.
7.
Íþróttahús og íþróttamannvirki
Málsnúmer 202206057
Á bæjarráðsfundi 27. september var ákveðið að gera nokkurskonar forhönnun á íþróttahúsi út frá þeim hugmyndum sem þegar liggja fyrir. Þessi forhönnun yrði svo borin undir forsvarsfólk í íþróttamálum. Síðan yrði reynt að setja verðmiða á þessa hugmynd svo sveitarstjórnarfólk hafi í höndunum gögn til að taka ákvörðun um framhaldið. Á sama tíma óskar knattspyrnudeild Sindra eftir því að fá gervigras á fótboltavöllinn og hefur bæjarráð þegar fjallað um greinagerð sem barst frá félagin og boðað til fundar vegna málsins.
Mál lagt fram til kynningar og umræðu. Gestir fundarins lögðu áherslu á að sveitarfélagið móti sér langtíma stefnu í íþróttamálum og uppbyggingu íþróttamannvirkja og að staðið verði við hana. Þannig verði stöðug þróun í uppbyggingu íþróttamannvirkja. Nú eru USÚ og Sindri að móta sér stefnu sem sveitarfélagið getur notað til hliðsjónar í sinni stefnumótun.
En það er líka mikilvægt að laga núverandi húsnæði svo það nýtist sem best.
Íþróttamannvirki og starfsemi íþróttafélaga er eitt af því sem fólk horfir á þegar það er að leita sér að búsetu og fundarmenn allir sammála um að stefna að því að í Sveitarfélaginu Hornafirði verði íþróttaaðstaða og íþróttastarf til fyrirmyndar.
8.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs 2022
Málsnúmer 202208023
Gjaldskrár sviðsins teknar fyrir. Leikskólagjöld og gjöld í lengda viðveru hækka skv. vísitölu 1. ágúst ár hvert. Aðrar gjaldskrár eru ekki vísitölutengdar og hækka skv. ákvörðun sveitarstjórnar.
Fræðslu- og frístundanefnd leggur til hóflegar hækkanir á gjaldskrám sérstaklega á þeim þáttum sem snúa að börnum og fjölskyldufólki. Tillögur nefndarinnar lagðar fyrir bæjarráð.
9.
Heilsueflingarstyrkur sveitarfélagsins
Málsnúmer 202210036
Á 93. fundi fræðslu- og frístundanefndar var óskað eftir upplýsingum um hvernig nýtingin á heilsueflingarstyrknum væri og hvernig mætti nýta hann.
Í upplýsingum frá fjármálasviði kom fram að árið 2021 nýttu tæp 30% starfsmanna sér íþróttastyrk sveitarfélagsins og það sem af er þessu ári hafa um 15% nýtt sér hann.
Fræðslu- og frístundanefnd hvetur starfsmann nefndarinnar til að minna starfsfólk sveitarfélagsins á styrkinn og sjá til þess að upplýsingar um hvernig á að nýta hann séu á heimasíðu sveitarfélagsins.