Fara í efni

Fræðslu- og frístundanefnd

95. fundur
16. nóvember 2022 kl. 17:15 - 21:35
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir formaður
Þóra Björg Gísladóttir varaformaður
Andri Már Ágústsson aðalmaður
Kristján Örn Ebenezersson aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Leikskólinn Sjónarhóll: Ytra mat 2021
Málsnúmer 202010160
Umbótaáætlun lögð fyrir og samþykkt. Vel gekk að vinna umbótaáætlunina. Helstu skilaboð frá leikskólanum eru að meiri áherslu þarf að leggja á stuðning við að efla innra starfið.
2.
Skólapúlsinn 2022-2023
Málsnúmer 202211025
Einu sinni á ári er Skólapúlsinn lagður fyrir í 1. - 5. bekk. Venjan var að leggja hann fyrir á vorin en núna er það gert í október.
Skólapúlsinn í 2. - 5. kemur afskaplega vel út og skólinn kemur marktækt betur út í öllum þáttum en sambærilegir skólar. Árangurinn er stöðugur og hefur haldið sér milli ára og batnar frekar en hitt. Fræðslu- og frístundanefnd óskar nemendum og starfsmönnum skólans til hamingju með árangurinn
3.
Golfklúbbur Hornafjarðar Samstarfssamningur 2022
Málsnúmer 202209071
Bæjarráð fól starfsmönnum að koma með tillögu að endurnýjun samnings við GHH og er hann lagður fyrir fræðslu- og frístundanefnd til umsagnar.
Gestur og Halldóra Bergljót fóru yfir málefni Golfklúbbsins. Fræðslu- og frístundanefnd tók málið fyrir og vísar tillögum sínum til bæjarráðs.
4.
Viðhald og umhirða íþróttamannvirkja
Málsnúmer 202205034
Á 90. fundi nefndarinnar 11. maí sl. koma fram ósk frá USÚ um úttekt á viðhaldi og umhirðu íþróttamannvirkja sveitarfélagsins og starfi forstöðumanns íþróttamannvirkja. Fræðslu- og tómstundanefnd vísaði málinu til sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs og óskaði eftir því að hann vinni málið áfram með vallarstjórn, aðilum íþróttahreyfingarinnar og eftirlitsmanni fasteigna.
Töluverð vinna var lögði í úttektina og eru helstu niðurstöður hennar;
Eftir að hafa farið yfir athugasemdir frá USÚ með forstöðumanni
íþróttamannvirkja og fleirum eru niðurstöður ekki einhlítar. Það má alltaf gera betur og það er afskaplega mikilvægt að fá ábendingar eins og voru í þessu bréfi svo hægt sé að bregðast við. Það er enginn hafinn yfir gagnrýni og mikilvægt að hlusta á allar ábendingar og taka tillit til þeirra. Vonandi finnst þeim sem komu með ósk um þessa úttekt að á þá hafi verið hlustað og tekið tillit til þeirra athugasemda. Það var a.m.k. markmiðið með vinnunni og almennt er fólk hvatt til að koma með athugasemdir til forstöðumanns þegar eitthvað bjátar á eða má betur fara og til sviðsstjóra finnist þeim ekki á það hlustað.
Út úr þessari vinnu má líka taka að starfsþróun er mikilvæg fyrir alla ekki síst forstöðumenn
ásamt stöðugri sjálfsrýni. Stuðningur frá yfirmönnum er mikilvægur og skýr skilaboð og
stefnumörkun í íþróttamálum. Þá er mikilvægt að átta sig á að það sem lítur út sem auðvelt
mál utan frá þarf ekki endilega að vera það. Niðurstaða þessa máls er því sú að það hafi verið
gott að fara í naflaskoðun og forstöðumaðurinn og íþróttamannvirkin standi sterkari á eftir en
það er þó enn ýmsu ábótavant þegar kemur að íþróttamannvirkjum en um það sýnist þó
hverjum sitt.

Það sem betur má fara. Mikilvægt er að árétta gott samstarf þjálfara og formanna deilda við
forstöðumann íþróttamannvirkja. Þeir eru sérfræðingarnir og forstöðumaður þarf að fá að
heyra frá þeim hvað þarf að gera og í framhaldi af því koma því í framkvæmd ef hægt er.

Tækifæri: Efla samtal og samskipti.

Fræðslu- og frístundanefnd er sátt við að búið sé að fara yfir viðhald og umhirðu íþróttamannvirkja og starf forstöðumanns íþróttamannvirkja og vonast til þess að meiri sátt verði um málið.
5.
Frístundarstyrkir 2022
Málsnúmer 202211030
Sportabler er nýtt kerfi sem tekið var í notkun í vor en það heldur utan um skráningar í íþróttir og aðrar frístundir í sveitarfélaginu. Sportabler er tengt öðru kerfi sem heitir Hvati en það sér um að frístundastyrki sveitarfélagsins. Emil Morávek verkefnisstjóri á fræðslu- og frístundasviði hefur tekið saman fyrstu upplýsingar um nýtingu á frístundastyrknum og kynnir þær.
Emil og Margrét fóru yfir nýtingu frístundastyrksins og mætingar í frístundir almennt. Eins og er þá er Sportabler tvískiptur, annars vegar Sindri og hins vegar Sveitarfélagið. Það flækir aðeins yfirsýn yfir virkni í frístundum. Þar sem Sportabler kerfið er nýtt er ekki víst að það gefi alveg réttar tölur. Almennt er þó ánægja bæði hjá foreldrum og þjálfurum með Sportabler og hann á örugglega eftir að nýtast enn betur þegar fólk hefur tileinkað sér hann.

Frístundastyrkurinn er á þessu ári 50.000 krónur fyrir 6-18 ára og 10.000 kr fyrir 5 ára.
6.
Málefni Sindra 2022
Málsnúmer 202211018
Framkvæmdastjóri Sindra hefur óskað eftir því að fá að koma á fund nefndarinnar og fara yfir mál f.h. félagsins.
Framkvæmdastjóri Sindra fór yfir málefni Sindra. Ljóst er að halli er á rekstri stærstu deildanna og óskað er eftir frekari stuðningi við deildina. Málinu vísað áfram til bæjarráðs.
7.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs 2022
Málsnúmer 202208023
Breytingar bæjarráðs á gjaldskrám kynntar.
8.
Styrkumsóknir fræðslu- og frístundanefndar 2023
Málsnúmer 202211049
Þeir sem vilja senda inn styrkumsókn vegna viðburða eða reksturs félagsamtaka þurfa að skila umsóknum fyrir 11. desember. Auglýsing hefur þegar birst á heimasíðu sveitarfélagsins. Styrkumsóknir eru aðgengilegar á íbúagátt sveitarfélagsins http://ibuagatt.hornafjordur.is, þar er hægt að fylla út eyðublöð og hlaða inn viðhengjum með umsókn, einnig er hægt að senda umsókn til afgreiðslu sveitarfélagsins á afgreidsla@hornafjordur.is.Fræðslu- og frístundanefnd hefur ákveðið fjármagn til að deila út til þeirra sem sækja um og eru sem flestir hvattir til að sækja um.
Fræðslu- og frístundanefnd hvetur félög til að sækja um og óskar eftir því að auglýsingunni verði dreift sem víðast.
9.
Rekstrarkostnaður á nemenda í grunnskólum 2021
Málsnúmer 202211024
Út er komið yfirlitsskjal um rekstrarkostnað á hvern grunnskólanemanda eftir stærð skóla árið 2021. Um er að ræða beinan rekstrarkostnað á almenna grunnskóla sveitarfélaga. Sérskólar eru því ekki meðtaldir.Miðlægur kostnaður t.d. vegna skólaskrifstofa er ekki meðtalinn. Að gefnu tilefni er bent á að margvíslegar ástæður geta orsakað mun á lykiltölum eftir skólum og/eða sveitarfélögum. Hafa ber í huga að landfræðilegar aðstæður, eða breytur eins og samsetning og aldur starfsfólks í skóla getur haft áhrif á niðurstöður og því gagnlegt fyrir sveitarfélög að kanna nánar í hverju munurinn felst.Reiknaður er rekstrarkostnaður með og án innri leigu og skólaaksturs. Innri leiga er þó verulega stærri hluti af rekstrarkostnaði en skólaakstur. Árið 2021 var rekstrarkostnaður á hvern nemanda að meðaltali ríflega 2,2 m.kr þegar innri leiga (og skólaakstur) er tekið með. Án innru leigu er meðalkostnaður á hvern nemanda 1,8 m.kr. Mikill munur er á rekstrarkostnaði á hvern nemanda eftir stærð skóla.
Mál lagt fram til kynningar.
10.
Fræðsla um hinsegin málefni fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga
Málsnúmer 202202023
Lagt fram til kynningar og starfsmenn og sveitarstjórnarfólk hvatt til að mæta. Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að sveitarfélagið bjóði upp á að fólk geti horft saman í Nýheimum annan daginn.
11.
Siðareglur kjörinna fulltrúa 2022
Málsnúmer 202208029
Lagt fram til kynningar, fundarmenn hafa þegar undirritað trúnaðaryfirlýsingu.
12.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 75
Málsnúmer 2211006F
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir fundargerðina.