Fræðslu- og frístundanefnd
96. fundur
14. desember 2022
kl.
16:15
-
18:15
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir
formaður
Þóra Björg Gísladóttir
varaformaður
Andri Már Ágústsson
aðalmaður
Kristján Örn Ebenezersson
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir
sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Seinkun skólabyrjunar
Óskir hafa borist til skólastjóra og fulltrúa í fræðslu- og frístundanefnd hvort ekki sé hægt að seinka skólabyrjun á morgnanna. Sama umræða fór fram veturinn 2019-2020 og var ákveðið að nýta sér upplýsingar frá þeim tíma í þessa umræðu. Gestir fundarins eru fulltrúar frá Grunnskóla Hornafjarðar og foreldrum, Tónskólanum, frá Sindra og frá félagsþjónustunni. Mikilvægt er að ná góðu samtali allra aðila ef af seinkun verður svo ávinningurinn verið sem mestur. Fram kom að ákveðið hefur verið að seinka skólabyrjun í FAS til 8:30 frá og með áramótum en seinkun grunnskólans tæki ekki gildi fyrr en næsta haust.
Á fundinum var farið yfir hugmyndir um seinkun skólabyrjunar og hvað slíkt hefði í för með sér. Rætt um hvort seinka ætti skólanum til 8:30, 9:00 eða eitthvað þar á milli og hvað seinkun hefði í för með sér gagnvart frístundaþjónustu. Fundarmenn höfðu fengið þrjár slóðir frá Betri svefn þar sem hægt var að kynna sér umfjöllun um hvað áhrif seinkun skólabyrjunar hefur og fylgja þær slóðir hér. Á Google Scholar er nokkrar fræðigreinar
https://scholar.google.is/scholar?hl=en&as_sdt=0,5&as_vis=1&q=delayed school start sleep
Á vef Reykjavíkurborgar er frétt um tilraunaverkefni sem er í gangi https://reykjavik.is/frettir/skolabyrjun-seinkad-i-von-um-baettan-svefn-barna
og svo frétt um tilraunaverkefnið: https://www.visir.is/g/20222278764d.
Fundarmenn sammála um að halda umræðunni áfram meðal starfsmanna og allir skoði hvað áhrif þetta hefur á þeirra starf og hvaða tækifæri felast í seinkun. Starfsmaður nefndarinnar kallar fólk saman eftir áramót til frekari samræðu.
https://scholar.google.is/scholar?hl=en&as_sdt=0,5&as_vis=1&q=delayed school start sleep
Á vef Reykjavíkurborgar er frétt um tilraunaverkefni sem er í gangi https://reykjavik.is/frettir/skolabyrjun-seinkad-i-von-um-baettan-svefn-barna
og svo frétt um tilraunaverkefnið: https://www.visir.is/g/20222278764d.
Fundarmenn sammála um að halda umræðunni áfram meðal starfsmanna og allir skoði hvað áhrif þetta hefur á þeirra starf og hvaða tækifæri felast í seinkun. Starfsmaður nefndarinnar kallar fólk saman eftir áramót til frekari samræðu.
2.
Frístundaþjónusta fyrir fatlaða
Samkvæmt 16. gr laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningþarfi frá 2018 ber sveitarfélaginu að bjóða fötluðum börnum og ungmennum upp á frístundaþjónustu eftir að reglubundnum skóladegi þeirra lýkur og eftir atvikum áður en dagleg kennsla hefst, https://www.althingi.is/lagas/nuna/2018038.html.
Fyrir liggur að móta þarf þjónustu við fötluð börn og mikilvægt er að hún sé með þeim hætti að hún sé ekki aðgreinandi fyrir fatlaða einstaklinga heldur sé hún opin öllum. Þegar slíkt er gert kemur oftast í ljós að það eru fleiri sem kjósa að nýta sömu þjónustu eða þurfa á henni að halda. Ákveðið að vinna málið áfram með velferðasviði.
3.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 76
Emil Morávek fór yfir fundargerðina. Fundargerð samþykkt.
4.
Umferðaröryggisáætlun - Endurskoðun - 2022
Mál sett inn til upplýsingar.
Ákveðið hefur verið að bæta lýsingu í bænum og samhliða því á að skoða hvernig hægt er að lýsa gangbrautir betur upp. Verið er að athuga með biðskýli inn í Nesjahverfi fyrir skólaaksturinn og að lokum hvetur fræðslu- og frístundanefnd foreldra til að hafa endurskinsmerki á fatnaði og hjólum barna sinna.
5.
Íþróttahús - forhönnun á nýju íþróttahúsi á Höfn
Á fundi nefndarinnar í september var ákveðið að stofna hóp sem myndi gera nokkurskonar forhönnun á íþróttahúsi út frá þeim hugmyndum sem þegar liggja fyrir. Þessi hópur hefur verið stofnaður og komið fjórum sinnum saman.
Í hópunum eru starfsmenn sveitarfélagsins og arkitektar. Arkitektarnir eru að vinna að skissum út frá þeim hugmyndum sem fram hafa komið á undanförnum mánuðum og árum um stærð og staðsetningu íþróttahúss. Í byrjun nýs árs verða forsvarsmenn íþróttafélaga og aðrir hagsmunaaðilar kallaðir á fund þar sem farið verður yfir hugmyndirnar og þeir fengnir til að koma með athugasemdir. Rætt verður um möguleika á áfangaskiptingu og fleira. Í framhaldinu mun sveitarstjórn fá málið til sín og fara yfir forgangsröðun og setja línu í framkvæmdaáætlun. Ljóst er að óskalistinn í íþróttamannvirkjum er langur og mikilvægt að bæði forgangsraða en einnig að setja niður fyrir sig hvað er nauðsynlegt að hafa og þyrfti að koma í fyrsta áfanga en einnig hvað væri frábært að hafa en mætti koma í síðari áföngum.
6.
Heimakennsla
Mál lagt fram til kynningar.
Komið hefur fyrirspurn um möguleika á heimakennslu. Heimakennsla er leyfileg en reglur um hana eru mjög stífar enda er gengið út frá því að íslenskir skólar séu fyrst og fremst staðskólar https://island.is/reglugerdir/nr/0531-2009.
7.
Námsvist utan lögheimilissveitarfélags
Samband íslenskra sveitarfélaga er með viðmiðunarreglur vegna grunnskólanáms utan lögheimilissveitarfélags https://www.samband.is/verkefnin/fraedslumal/grunnskoli/grunnskolanam-utan-logheimilissveitarfelags/.
Mál lagt fram til kynningar.
8.
Starf forstöðumanns Vöruhúss
Sindri Örn Elvarsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Vöruhússins frá næstu áramótum til 1. júní 2024 á meðan Vilhjálmur Magnússon verður í námsleyfi.
Fræðslu- og frístundanefnd býður Sindra Örn velkominn og óskar honum velfarnaðar í starfi.
9.
Fulltrúi sveitarfélagsins í stjórn styrktar og afrekssjóðs USÚ
Fræðslu- og frístundanefnd tilnefnir Þóru Björgu Gísladóttur í stjórn styrktar- og afrekssjóðs USÚ fyrir hönd sveitarfélagsins.