Fræðslu- og frístundanefnd
97. fundur
18. janúar 2023
kl.
16:15
-
18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir
formaður
Þóra Björg Gísladóttir
varaformaður
Steindór Sigurjónsson
1. varamaður
Kristján Örn Ebenezersson
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir
sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 77
Emil fór yfir fundargerð ungmennaráðs. Ræddi sérstaklega sameiginlegan fund með bæjarráði og verkefnið Höfn í Hafnarfirði sem er samstarfsverkefni styrkt af Erasmus til að efla starf ungmennaráða og ungmennahúsa á Höfn og í Hafnarfirði.
Fram kom að ætlast er til þess í erindisbréfi ungmennaráðs að fræðslu- og frístundanefnd haldi a.m.k. einn sameiginlegan fund með ungmennaráði á ári. Ákveðið var að sá fundur skyldi haldinn mánudaginn 13. mars. Fundargerð samþykkt.
Fram kom að ætlast er til þess í erindisbréfi ungmennaráðs að fræðslu- og frístundanefnd haldi a.m.k. einn sameiginlegan fund með ungmennaráði á ári. Ákveðið var að sá fundur skyldi haldinn mánudaginn 13. mars. Fundargerð samþykkt.
2.
Fundargerð starfshóps lýðheilsuráðs frá 12. jan
Emil fór yfir fundargerð lýðheilsuráðs. Fundargerð samþykkt.
3.
Skólamáltíðir : samningur og fyrirkomulag
Samningur um skólamáltíðir sem gerður var 2018 rennur út 1. júní 2023 en er með möguleika á framlengingu til tveggja ára.
Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að nýta ákvæði samningsins og framlengja hann til næstu tveggja ára. Vigdísarholt hefur einnig líst yfir vilja til þess. Starfsmanni falið að ganga frá framlengingu.
4.
Lykiltölur úr rekstri sveitarfélaga 2021 - leik- og grunnskólar
Samband íslenskra sveitarfélaga tekur saman margskonar rekstrarupplýsingar fyrir leik og grunnskóla. Í viðhengi eru skjöl með ýmsum gagnlegum upplýsingum. Á vefnum hjá sambandinu má síðan finna myndræna framsetning á ýmsu talnaefni sem tengist rekstri leik- og grunnskóla https://www.samband.is/verkefnin/fjarmal/talnaefni/myndraen-framsetning-talnaefnis/
Íslandskortin eru einstaklega aðgengileg. Þau eru fjögur og tvö þeirra snúa að leik- og grunnskólum en hin tvö að félagsmálum og fjármálum sveitarfélaga almennt.
5.
Styrkir fræðslu- og tómstundanefndar 2023
Fræðslu- og frístundanefnd hefur 500.000 krónur til að deila út í styrki. Fimm aðilar sóttu um styrk til nefndarinnar og námu styrkumsóknir 2.070.000 krónum. Styrkirnir verða greiddir út þegar búið er að halda þessa viðburði og félögin hafa sent inn staðfestingu á því.
Tilkynnt verður um hverjir hljóta styrki á menningarhátíð í Nýheimum í byrjun mars.
Tilkynnt verður um hverjir hljóta styrki á menningarhátíð í Nýheimum í byrjun mars.
6.
Ósk um stuðning við rekstur crossfit stöðvar
Lagt fram til kynningar.
7.
Íþróttahús - hönnun á nýju íþróttahúsi á Höfn
Farið yfir umræður frá fundi í Nýheimum 17. janúar þar sem kynntar voru hugmyndir að íþróttamannvirkjum.
Góð mæting var á fundinn. Farið var yfir tilurð hans og þær hugmyndir sem unnið hefur verið með. Sagt var frá svæði á heimasíðu sveitarfélagsins https://www.hornafjordur.is/thjonusta/ithrottir-og-tomstundir/uppbyging-ithrottamannvirkja/ þar sem hægt væri að nálgast þau gögn sem farið var yfir ásamt ýmsum öðrum og fólk hvatt til að senda inn hugmyndir og koma með á næsta fund sem verður þriðjudaginn 24. janúar.
8.
Viðbygging við leikskólann Sjónarhól
Kynning á stöðu verkefnisins.
Arkitektar og verkfræðingar vinna hörðum höndum að því að ljúka við hönnun hússins svo hægt verði að bjóða framkvæmdir út í vor. Tímaáætlun hljóðaði upp á að útboð fari í loftið seinni hluta mars eða byrjun apríl en hugsanlega verður einhver smá seinkun á því. Vonir stóðu til að hægt yrði að byrja að nota húsið næsta haust en það fer eftir því hvað tilvonandi framkvæmdaraðilar treysta sér til að vinna verkið hratt hvort það tekst. Húsið verður Svansvottað en slík vottun á sérstaklega að stuðla að betri gæðum fyrir umhverfi og heilsu þeirra sem nota húsið um leið og dregið er úr neikvæðum áhrifum byggingariðnaðarins.