Fræðslu- og frístundanefnd
98. fundur
15. febrúar 2023
kl.
16:15
-
18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
2. varamaður
Þóra Björg Gísladóttir
varaformaður
Andri Már Ágústsson
aðalmaður
Kristján Örn Ebenezersson
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir
sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Hornafjörður náttúrulega
Bæjarráð vísar heildarstefnu sveitarfélagsins Hornafjörður Náttúrulega til kynningar í nefndum og ráðum sveitarfélagsins.
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri kynnti stefnuna fyrir fræðslu- og frístundanefnd. Fór yfir gildi sveitarfélagsins, helstu áherslur stefnunnar og mikilvægi hennar fyrir sveitarfélagið. Gildi sveitarfélagsins eru virðing, framsækni og samvinna og fjórar helstu stoðir stefnunnar eru umhverfis- og loftlagsmál, félagslegir þættir, hagsæld og stjórnarhættir.
Stefnan er vel unnin og byggir m.a. á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna en það er ekki sjálfgefið að hún verði að veruleika. Til þess þarf starfsfólk sveitarfélagsins og fulltrúar í sveitarstjórn að tengja við hana og fyrsti fasi í innleiðingunni sem nú er í gangi felst í að tengja fólk við helstu markmið stefnunnar og fá það með á vagninn. Síðan taka við fjórir átaksmánuðir í apríl, maí, október og nóvember þar sem unnið verður sérstaklega með hverja stoð. Verkefnið nær til þriggja ára og markmiðið að því loknu er að hér hafi átt sér stað mælanlegar breytingar í þeim þáttum sem mest áhersla er lögð á.
Fræðslu- og frístundanefnd fagnar því að verið sé að vinna að framvindu stefnunnar og mun leggja sitt af mörkum.
Stefnan er vel unnin og byggir m.a. á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna en það er ekki sjálfgefið að hún verði að veruleika. Til þess þarf starfsfólk sveitarfélagsins og fulltrúar í sveitarstjórn að tengja við hana og fyrsti fasi í innleiðingunni sem nú er í gangi felst í að tengja fólk við helstu markmið stefnunnar og fá það með á vagninn. Síðan taka við fjórir átaksmánuðir í apríl, maí, október og nóvember þar sem unnið verður sérstaklega með hverja stoð. Verkefnið nær til þriggja ára og markmiðið að því loknu er að hér hafi átt sér stað mælanlegar breytingar í þeim þáttum sem mest áhersla er lögð á.
Fræðslu- og frístundanefnd fagnar því að verið sé að vinna að framvindu stefnunnar og mun leggja sitt af mörkum.
2.
Ársskýrsla Vöruhússins 2022
Sindri Örn Elvarsson nýráðinn forstöðumaður Vöruhússins var sérstaklega boðinn velkominn í starfið. Gróska hefur verið í starfsemi Vöruhússins og Sindri Örn sem er í óða önn að setja sig inn í starfið fór lauslega yfir þær áherslur sem í gangi eru. Auglýsingar hafa fram að þessu fyrst og fremst verið á Facebook og spurning hvort hægt er að nota aðra miðla t.d. Eystrahorn og Instagram?
3.
Grunnskólinn í Hofgarði, framvinduskýrsla vegna ytra mats
Í ársbyrjun 2020 gerði MMS ytra mat á Grunnskólanum í Hofgarði. Í kjölfarið var unnin umbótaáætlun vorið 2020. Síðan þá hefur MMS farið fram á árlegar framvindurskýrslur þar sem útskýrt er hvernig umbótaáætlun hefur verið fylgt eftir. Þetta er að öllum líkindum síðasta framvinduskýrslan og óskar MMS nú eftir því að Grunnskólinn í Hofgarði og sveitarfélagið staðfesti að umbæturnar sem lagðar voru til séu komnar til framkvæmda. Auk þess óskar MMS eftir því að fá mat á því hvernig til tókst að vinna að umbótunum og með hvaða hætti fyrirhugað er að halda áfram með innra mat og umbætur.
Fræðslu- og frístundanefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar staðfestir að unnið hafi verið að þeim umbótum sem lagðar voru til í ytra mati 2020. Sumar eru þess eðlis að það þarf alltaf að vera að vinna í þeim og innra mat skólans á að tryggja að svo sé auk þess sem það á líka að tryggja stöðugar umbætur á skólastarfi. Fræðslu- og frístundanefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar telur að vel hafi tekist til með umbætur og hvetur stjórnendur og starfsfólk í grunnskólanum í Hofgarði til að halda áfram að sinna innra mati og umbótum sem því fylgja. Auk þess tekur fræðslu- og frístundanefnd undir ósk stjórnenda skólans í lokaskýrslunni að fá aftur ytra mat fyrir skólann.
4.
Grunnskóli Hornafjarðar, framvinduskýrsla vegna ytra mats
Í ársbyrjun 2020 gerði MMS ytra mat á Grunnskóla Hornafjarðar. Í kjölfarið var unnin umbótaáætlun vorið 2020. Síðan þá hefur MMS farið fram á árlegar framvindurskýrslur þar sem útskýrt er hvernig umbótaáætlun hefur verið fylgt eftir. Þetta er að öllum líkindum síðasta framvinduskýrslan og óskar MMS nú eftir því að Grunnskóli Hornafjarðar og sveitarfélagið staðfesti að umbæturnar sem lagðar voru til séu komnar til framkvæmda. Auk þess óskar MMS eftir því að fá mat á því hvernig til tókst að vinna að umbótunum og með hvaða hætti fyrirhugað er að halda áfram með innra mat og umbætur.
Fræðslu- og frístundanefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar staðfestir að unnið hafi verið að þeim umbótum sem lagðar voru til í ytra mati 2020. Sumar eru þess eðlis að það þarf alltaf að vera að vinna í þeim og innra mat skólans á að tryggja að svo sé auk þess sem það á líka að tryggja stöðugar umbætur á skólastarfi. Fræðslu- og frístundanefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar telur að vel hafi tekist til með umbætur og hvetur stjórnendur og starfsfólk Grunnskóla Hornafjarðar til að halda áfram að sinna innra mati og umbótum sem því fylgja. Auk þess tekur fræðslu- og frístundanefnd undir ósk stjórnenda skólans í lokaskýrslunni að fá aftur ytra mat fyrir skólann.
5.
Framlenging á samning um skólaakstur í Öræfum
Samningur um skólaakstur í Öræfum sem gerður var í júlí 2019 við 785 FHM rennur út í júlí n.k. Samningurinn býður upp á framlengingu til eins árs.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir að gengið verði til samninga við 785 FHM um framlengingu á skólaakstri í Öræfum til eins árs eins og leyfilegt er.
6.
Framlenging á samning um skólaakstur austan Öræfa
Samningur um skólaakstur austan Öræfa sem gerður var í júlí 2019 við Fallastakk rennur út í júlí n.k. Samningurinn býður upp á framlengingu til eins árs.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir að gengið verði til samninga við Fallastakk um framlengingu á skólaakstri austan Öræfa til eins árs eins og leyfilegt er.
7.
Þarfagreining vegna uppbyggingar íþróttamannvirkja
Samhliða fundum með hagsmunaaðilum vegna íþróttamannvirkja var ráðist í gagnaöflun og þarfagreiningu félaga og deilda í sveitarfélaginu. Aðilar voru beðnir um að greina frá hvaða aðstöðu þeir hefðu í dag, hver væri óska aðstaðan og hvaða aðstaða væri ásættanleg. Þegar þessi gögn verða komin er hægt að lista upp þarfir og kostnað og í framhaldinu getur sveitarfélagið í samráði við hagsmunaaðila farið í að raða niður framkvæmdum.
Farið lauslega yfir þarfagreininguna og fjallað um hvernig heppilegt væri að vinna málið áfram. Æskilegast væri að enda með stefnumótun fyrir sveitarfélagið um uppbyggingu íþróttamannvirkja.
8.
Farsældarrútan
Barna-og fjölskyldustofa (BOFS) er að skipuleggja fundarferðir um landið, svokallaða farsældarrútu 2023 og óskar eftir að fá fulltrúa frá öllum skólastigum, leik,-grunn og framhaldsskólum sem og fulltrúa frá lögreglu, heilsugæslu og tómstunda- og íþróttastarfi. Einnig eru fulltrúar sveitarstjórnar velkomnir á fundinn. Markmið fundar er að taka stöðuna á framkvæmd og framgangi farsældar hjá okkur og ræða áskoranir, lausnir og leiðir í innleiðingu farsældar. Verið er að horfa á 15. mars og munu fulltrúar í fræðslu- og frístundanefnd fá fundarboð þegar þar að kemur.Sama dag verður fundur með innleiðingarteyminu til að fara yfir hvernig gengur og munu fulltrúar frá BOFS svara spurningum sem brenna á starfsmönnum.
9.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 78
Emil fór yfir fundargerð ungmennaráðs.
Fundargerð lögð fyrir og samþykkt.