Fara í efni

Fræðslu- og frístundanefnd

99. fundur
15. mars 2023 kl. 16:15 - 18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Róslín Alma Valdemarsdóttir formaður
Þóra Björg Gísladóttir varaformaður
Andri Már Ágústsson aðalmaður
Kristján Örn Ebenezersson aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Skóladagatal leik- og grunnskólans í Hofgarði 2023-2024
Málsnúmer 202303007
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir skóladagadal leik- og grunnskólans í Hofgarði.
2.
Skóladagatal Tónskóla A-Skaft 2023-2024.
Málsnúmer 202303009
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir skóladagatal Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu.
3.
Skóladagatal Sjónarhóls 2023-2024.
Málsnúmer 202303008
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir skóladagatal Sjónarhóls.
4.
Hönnun. Færanlegt húsnæði við leikskólann.
Málsnúmer 202201046
Hönnun á húsinu er á lokametrunum.
Björn Imsland sýndi fundarmönnum þrívíddarteikningar af viðbyggingunni. Gert er ráð fyrir að bygginging geti farið í útboð í byrjun apríl.
5.
Framlög til sjálfstætt rekinna grunnskóla
Málsnúmer 202303057
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis óskar eftir athugasemdum við frumvarp til laga um grunnskóla (framlög til sjálfstætt rekinna grunnskóla), 128. mál. https://www.althingi.is/altext/153/s/0128.html Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 23. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is. Ef engar athugasemdir eru þarf ekki að senda sérstaka tilkynningu þess efnis.
Þar sem enginn sjálfstætt rekinn grunnskóli er í sveitarfélaginu sér fræðslu- og frístundanefnd ekki ástæðu til að koma með umsögn um þetta mál.
6.
Skóladagatal Grunnskóla Hornafjarðar 2023-2024.
Málsnúmer 202303006
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir skóladagatal Grunnskóla Hornafjarðar.
7.
Umgengnisreglur í íþróttahúsi
Málsnúmer 202303010
Umgengnisreglur voru orðnar gamlar og að sumu leyti barn síns tíma og því leggur forstöðumaður íþróttamannvirkja fram nýjar og endurbættar reglur.
Umgengnisreglur samþykktar af fræðslu- og frístundanefnd og hvatt til að þýða þær yfir á önnur tungumál.
8.
Vallarstjórn 2023
Málsnúmer 202303012
Vallarstjórn samanstendur af aðilum frá fræðslu- og frístundasviði, umhverfissviði, íþróttamannvirkjum, Sindra og USÚ. Markmið vallarstjórnar er að Sindravellir og íþróttavöllurinn við Mánagarð og umhverfi þeirra sé í sem bestu ásigkomulagi og sveitarfélaginu og íbúum þess til sóma. Til að halda sem best utan um þau verkefni sem liggja fyrir og veita bæði starfsmönnum og sveitarstjórn aðhald hefur verið útbúinn gátlist þar sem ný atriði bætast inn jafnóðum og tilkynning um þau berst en jafnframt eru önnur tekin út ef ekki þarf að sinna þeim árlega.
Starfsfólk á vegum knattspyrnudeildar Sindra sem sinnir vallarumsjón fær verklýsingu yfir þau störf sem þarf að sinna. Auk þess er notast við exelskjal þar sem talin eru upp verk sem detta inn. Í sumar er markmiðið að verkefnin séu skýrari og starfsmenn vita betur hvaða verk þeir eiga að vinna svo árangurinn verði enn betri.

Gunnar Ingi sagði fundarmönnum einnig frá almennu viðhaldi sem stendur fyrir dyrum á íþróttamannvirkjunum. Hann fór yfir vorverkin á Jökulfellsvelli sem snúa ekki sérstaklega að vallarumhirðu. Völlurinn hefur ekki verið í góðu ásigkomulagi og því verður lögð sérstök áhersla á götun, loftun og annað sem getur gert völlinn betri. Einnig verður völlurinn við Mánagarð lagaður. Þá verða ný salerni sett niður út við Báru.

Gunnar Ingi sagði frá viðhaldi í sundlauginni. Þar verður skipt um miðlunartanka fyrir heitu pottana í maí. Þetta er töluvert mikil vinna og gera má ráð fyrir að pottarnir verði lokaðir í eina til tvær vikur og verða þær nýttar í að mála þá.

Í Íþróttahúsinu á Höfn verður rekkverkið fyrir framan áhorfendapallana tekið niður í sumar og öryggisgler sett í staðinn. Um leið verða körfurnar sem eru upp við áhorfendabekkina settar á græju sem fest er í loft. Gólfið í íþróttahúsinu verður líka lakkað í sumar.
9.
Samningur um vallarumhirðu og afleysingar í Íþróttamiðstöð 2023.
Málsnúmer 202303013
Í stað þess að ráða sérstaklega inn fólk í afleysingar í Íþróttamiðstöðinni eða í vallarumhirðu hefur Íþróttamiðstöðin f.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar gert samning við Sindra um vallarumhirðu og afleysingar í Íþróttamiðstöð.
Fræðslu og frístundanefnd samþykkir nýja útfærslu á samning við Sindra.
10.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 79
Málsnúmer 2303004F
Fundargerð samþykkt.