Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

19. fundur
27. apríl 2016 kl. 16:30 - 18:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson formaður
Ingólfur Guðni Einarsson varaformaður
Þórey Bjarnadóttir aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson aðalmaður
Sigrún Birna Steinarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Gunnar Ingi Valgeirsson
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Ársskýrsla Golfklúbbsins 2016
Málsnúmer 201604060
Rætt var um samninginn sem undirritaður var í september 2015. í umræðum um skýrslu stjórnar kom fram að félagar í klúbbnum eru 82 og iðkendur upp að 18 ára aldri greiða ekki félagsgjöld og fá frían aðgang að vellinum. Ekki var boðið upp á námskeið fyrir börn og ungmenni síðasta sumar en samvinna var við grunnskólann um val í 7. - 10 bekk á vor- og haustönn. Áætlað er að reyna að halda námskeið fyrir börn og ungmenni næsta sumar.
2.
Ársskýrsla Björgunarfélags Hornafjarðar 2016
Málsnúmer 201604068
Í umræðum um ársskýrslu Björgunarfélagsins kom fram að virkt unglingastarf hefur verið í gangi í tvö ár og mæting unglinga er um 6 - 12 manns á reglubundnum viðburðum unglingadeildarinnar Brands. Fram kom að Björgunarfélagið ber alfarið kostnað af árlegri flugeldasýningu á Jökulsárlóni. Bent var á að við endurnýjun á samningi verði ákveðin ákvæði endurskoðuð.
3.
Ársskýrslur Umf.Sindra 2016
Málsnúmer 201604067
Í umræðum um skýrslur stjórnar Umf.Sindra og deilda kom fram að fara á í það verkefni að bæta uppsetningu og gegnsæi ársreikninga félagsins. Athugasemd var gerð við að sumar deildir skila einungis ársreikningi og aðrar skila einungis starfsskýrslu. Einnig kom fram að virkja þarf betur Nora kerfið sem sett var upp síðasta sumar. Iðkendafjöldi í fimleikum jókst eftir að fimleikarnir voru færðir í Mánagarð og aksturinn hefur gengið vel. Í maílok er von á matsskýrslu um breytingarnar. Grunnskóladrengjum í fimleikum hefur fjölgað um helming. Sindramenn vilja skoða breytt snið á yngri flokka starfi.

4.
Samningur um vallarumhirðu og sumarafleysingar 2016
Málsnúmer 201602092
Í umræðum um samninginn var bent á að eðlilegast sé að gera hann beint við stjórn knattspyrnudeildar Sindra. Einnig þarf að koma fram ákvæði í samningnum að forstöðumaður íþróttamannvirkja sé ábyrgur fyrir framkvæmd og eftirliti.