Fræðslu- og tómstundanefnd
20. fundur
25. maí 2016
kl.
16:30
-
20:30
Heppuskóli
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson
formaður
Ingólfur Guðni Einarsson
varaformaður
Þórey Bjarnadóttir
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 18
Fræðslu- og tómstundanefnd lýsir ánægju með Skuggakosningarnar og vonar að ungmenni verði dugleg að mæta á kjörstað.
2.
Velferðarteymi fundargerðir
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
3.
Skóladagatal Tónskóla A-Skaft. 2016-2017
Jóhann fór yfir skóladagatal tónskólans. Rætt um að kennarar Tónskólans fari í náms- og kynnisferð í sínu fagi á sama tíma og Grunnskóli Hornafjarðar og leist nefndarmönnum vel á þá hugmynd. Málið verður tekið aftur fyrir í júni og afgreitt.
Rætt var um mönnun næsta vetur, enginn hefur svarað auglýsingum um kennslu og miða þarf inntöku nemenda næsta haust við stöðuna í kennaramálum. Sökum fyrirsjáanlegs kennararskorts hefur Jóhann verulegar áhyggjur af því að starf forskólans inni í grunnskólanum falli niður næsta vetur og tekur nefndin undir þær áhyggjur.
Rætt var um mönnun næsta vetur, enginn hefur svarað auglýsingum um kennslu og miða þarf inntöku nemenda næsta haust við stöðuna í kennaramálum. Sökum fyrirsjáanlegs kennararskorts hefur Jóhann verulegar áhyggjur af því að starf forskólans inni í grunnskólanum falli niður næsta vetur og tekur nefndin undir þær áhyggjur.
4.
Skóladagatal grsk. í Hofgarði 2016-2017
Rætt var um skóladagatal Grunnskólans í Hofgarði og það samþykkt.
5.
Skóladagatal grsk. Hornafjarðar 2016-2017
Farið var yfir skóladagatal Grunnskóla Hornafjarðar. Fram kom að starfsfólk skólans hyggst nota 3 starfsdaga til að fara í náms- og kynnisferð til Bretlands í nóvember. Skóladagatalið var samþykkt.
6.
Staða mönnunar o.fl. í Grunnskóla Hornafjarðar
Fram kom að Eygló Illugadóttir og Magnhildur Gísladóttir hafa verið ráðnar í stöður aðstoðarskólastjóra við GH og býður nefndin þær velkomnar til starfa. Skipti hafa orðið á íþrótta- og smíðakennurum. Fram kom að náms- og starfsráðgjafi hefur sótt um stöðu við skólann og hefur fræðslu- og tómstundanenfd áhyggjur af því að ekki finnist húsnæði fyrir hann. Nemendum fækkar og verða um 240 næsta skólaár og kennarastöðum fækkar um rúmlega tvær.
7.
Skólalóð við Hafnarskóla
Farið var yfir hugmyndir að nýjum leiktækjum á lóðinni þar sem lögð er áhersla á að setja upp óhefðbundin tæki sem ekki eru til annars staðar í bænum. Fræðslu- og tómstundanefnd líst vel á tækin og hvetur bæjarrráð til að afgreiða málið svo koma megi tækjunum upp fyrir haustið.
8.
Foreldrakannanir í Grunnsk. Hornafjarðar
Þórgunnur fór yfir niðurstöður úr foreldrakönnun sem tekin var í febrúar s.l. Almennt kemur könnunin vel út. Við svörun spurninga um líðan nemenda kemur í ljós að börnum líður vel í kennslustundum, í frímínútum og í skólanum en spurningar um einelti koma illa út. Mjög fá eineltismál eru þó tilkynnt. Skólinn hefur fundað með foreldrum um málið og í ágúst mun Vanda Sigurgeirsdóttir halda fræðslufund með kennurum. Þórgunnur fór lika yfir niðurtöður úr starfsmannakönnun og samkvæmt henni eru starfsmenn marktækt ánægðari með m.a. starfsaðstæður, stjórnun og valdreifingu en annars staðar á landinu.
9.
Ábending til skólanefnda
Samband íslenskra sveitarfélaga sendi fræðslunefndum ábendingu um að skólaganga grunnskólabarna á að vera gjaldfrjáls. Þó er heimildarákvæði um gjaldtöku vegna námsgagna o.fl. Fram kom að Grunnskóli Hornafjarðar leggur áherslu á að halda þessum kostnaði í algjöru lágmarki og hvetur foreldra til að endurnýta námsgögn.
10.
Skóladagatal leikskólanna 2016-2017
Farið var yfir skóladagatal leikskólanna. Leikskólarnir hafa haft 6 starfsdaga og hefur sá sjötti verið veittur undanfarin ár vegna verkefna eins og að semja og innleiða nýjar skólanámskrár og þróa verkefnið leið til árangurs. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkti ósk leikskólanna um að halda sjötta deginum inni og hugsanlega bæta fleiri starfsdögum við vegna fyrirhugaðrar sameiningar leikskólanna.
11.
Námsferð Leiksk.Lönguhóla til Brighton 2016
Svava og Þórdís fræddu fundarmenn um náms- og kynnisferð starfsmanna Lönguhóla til Brighton.
12.
Ferð starfshóps að skoða leikskóla
Rætt var um ferð starfshópsins að skoða leikskóla á Suðurlandi, í Reykjavík og Kópavogi. Þátttakendur í ferðinni lærðu margt á því að fara í gegnum kosti og galla annarra leikskólabygginga og starfshópurinn upplifði afar góða samvinnu við arkitektana. Fram kom að teikningarnar liggja nú frammi á kaffistofum starfsmanna leikskólanna svo þeir geti komið fram með ábendingar um það sem betur má fara. Ábendingarnar verða svo teknar saman og sendar arkitektunum.
13.
Skýrsla um fimleikaiðkun í Mánagarði - tilraunaverkefni
Ragnar Magnús fór yfir skýrslu um reynslu af því að vera með Mánagarð sem fimleikahús. Fram kom að iðkendum hefur fjölgað, sérstaklega strákum, foreldrar eru ánægðir með breytinguna og þjálfararnir eru einnig mjög ánægðir. Góð samvinna hefur verið við Fallastakk um akstur. Ábending kom fram um að þrifum sé ábótavant í húsinu og að fara þurfi yfir verklag við þau. Þjálfarar þurrmoppuðu salinn eftir æfingar eins og kveðið er á um í samningnum.
14.
Beiðni frá fimleikadeild Sindra
Stjórn fimleikadeildar óskar eftir því að fimleikaiðkun verði áfram staðsett í Mánagarði og að sveitarfélagið greiði fyrir aksturinn. Fimleikadeildin áætlar að dreifa æfingum á fleiri daga en ekki að fjölga æfingatímum eða ferðum í akstri. Fræðslu- og tómstundanefnd styður það að fimleikarnir verði áfram í Mánagarði og vísar endurnýjun samnings til bæjarráðs. Nefndin bendir aðalstjórn Sindra á að fimleikadeildin er orðin stærsta deild félagsins, iðkendum þarf að keyra á æfingar og taka þarf tillit til þess þegar samræming æfinga fer fram innan félagsins.
15.
Menntastefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir að vísa menntastefnunni til umsagnar fastanefnda.
16.
Beiðni um umsögn fræðslu- og tómstundanenfdar
Fræðslu- og tómstundanefnd fagnar þeim áherslum deiliskipulagsins sem falla að markmiðum heilsueflandi samfélags í lýsingu á deiluskipulagi fyrir Miðbæ og Tjaldsvæði. Það er einróma álit nefndarmanna að landið í Hrossabitahaga fyrir ofan smáhýsin, niður að leiru og gömlu skólagarðarnir eigi að vera afmarkað útivistarsvæði fyrir íbúa sveitarfélagsins og verði ekki tekið undir tjaldsvæði. Nefndin bendir á að leikskólarnir nýta þetta m.a. til útivistar og útináms.