Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

21. fundur
27. maí 2016 kl. 17:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson formaður
Ingólfur Guðni Einarsson varaformaður
Þórey Bjarnadóttir aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Mönnun Lönguhóla, haust 2016
Málsnúmer 201605094
Í leikskólanum Lönguhólum blasir við að ekki verður hægt að taka inn ný börn eftir sumarfrí miðað við útlitið í starfsmannamálum. Starfsmannaekla þetta skólaárið hefur valdið því að ekki hefur verið hægt að taka inn nema hluta af þeim börnum sem hægt væri að veita pláss ef skólinn væri fullmannaður. Fræðslu- og tómstundanefnd lýsir þungum áhyggjum yfir þessari stöðu og leggur til að bæjarráð
samþykki að umsækjendur um störf í leikskólunum og núverandi starfsfólk fái forgang sf biðlista og 50% afslátt af grunngjaldi barna sinna.

Ef ekki rætist úr starfsmannamálum þarf að skerða þjónustu því ekki verður hægt að starfrækja nema sem samsvarar einni deild í haust. Það þýðir að skipuleggja þarf skólastarf upp á nýtt þannig að skerðing á þjónustu gangi jafnt yfir alla.