Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

22. fundur
14. júní 2016 kl. 16:30 - 19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson formaður
Ingólfur Guðni Einarsson varaformaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson aðalmaður
Sigrún Birna Steinarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Hjördís Skírnisdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 19
Málsnúmer 1605014F
Fundargerð lögð fram og samþykkt.
2.
Starfshópur um leikskólamál - 7
Málsnúmer 1605019F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
3.
Ráðningarferli leikskólastjóra nýs leikskóla
Málsnúmer 201606035
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að auglýst verði eftir leikskólastjóra við nýjan leikskóla í ágúst/september 2016 og samið um upphaf ráðningartíma með tilliti til stöðu í starfsmannamálum í haust.
4.
Mönnun Lönguhóla, haust 2016
Málsnúmer 201605094
Á Lönguhólum er mannskapur til að halda úti starfsemi á einni deild. Foreldrum verður sent bréf sem upplýsir þá um stöðuna og um mögulegar breytingar á skólatíma verði óbreytt ástand í starfamannahaldi eftir sumarfrí. Maríanna las bréfið fyrir nefndarmenn. Engin umsókn hefur komið um starf eftir síðustu auglýsingu eftir starfsfólki og breytingar á gjaldskrá. Framsóknarmenn lögðu fram eftirfarandi bókun: Við Framsóknarmenn hörmum þá stöðu sem komin er upp varðandi mönnun leikskólanna næstkomandi haust. Og veltum því fyrir okkur hvort það tengist því umróti sem verið hefur í leikskólamálum sl. ár. Að okkar mati hefur það ferli ekki skapað traust milli starfsmanna og stjórnsýslu. Mikilvægt er að bæta það og vinna saman að lausn málsins. Þriðja framboðið og sjálfstæðismenn harmar þessa stöðu og vill gera allt sem í þeirra valdi stendur til að vinna að lausn málsins.
5.
Opið bréf til bæjarráðs vegna leikskólamála
Málsnúmer 201606033
Umræður urðu um opið bréf frá foreldraráði leikskólans á Lönguhólum. Í umræðunum kom fram að þurfi að skerða þjónustu á leikskólunum muni það hafa keðjuverkeandi áhrif út í allt samfélagið. Mikið álag er á því starfsfólki sem eftir er í leikskólunum. Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur bæjarráð til þess að leita allra leiða til þess að halda megi úti eðlilegu skólastarfi í leikskólunum.
6.
Endurbætur í Vöruhúsi
Málsnúmer 201505034
Bókun af 769. fundi bæjarráðs: Bæjarráð hafnar tilboði í endurbætur á Vöruhúsi. Tímamörk eru ekki innan þess ramma sem óskað var eftir og ekki er mögulegt að færa verktíma til vegna starfsemi í húsinu og eðli verksins. Starfsmanni falið að skoða möguleika á utanhússviðgerðum í sumar. Bæjarráð stefnir að því að bjóða verkið út að nýju um næstu áramót.
Björn Imsland upplýsti um verkstöðu vegna endurbóta á Vöruhúsi.
7.
Námsárangur GH í lestri og stærðfræði
Málsnúmer 201606037
Íris Heiður fór yfir niðurstöður mælinga í lestri og stærðfræði í Grunnskóla Hornafjarðar sem gefa vísbendingar um að aukin áhersla í lestri er að skila árangri, sérstaklega á unglingastigi. Fræðslu- og tómstundanefnd lýsir ánægju yfir því að "Leið til árangurs" sé farin að skila árangri. Fram kom að búið er að ganga formlega frá ráðningarsamningi við Þórgunni Torfadóttur í starf skólastjóra við Grunnskóla Hornafjarðar og er hún boðin velkomin til starfa.
8.
Skólaakstur 2016-2021 - Útboð
Málsnúmer 201604056
Fundargerð um opnun tilboða í skólaakstur lögð fram til kynningar.
9.
Samrekinn leik- og grunnskóli í Hofgarði
Málsnúmer 201604058
Ragnhildur fór yfir stöðu mála vegna fjölgunar nemenda í Hofgarði og ráðningu starfsmanna við leik- og grunnskóla í Öræfum.
10.
Skóladagatal Tónskóla A-Skaft. 2016-2017
Málsnúmer 201605022
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir breytingar á skóladagatali Tónskólans sem varða ósk um starfsdaga 16. - 18. nóvember.
11.
Velferðarteymi fundargerðir
Málsnúmer 201302035