Fræðslu- og tómstundanefnd
23. fundur
17. ágúst 2016
kl.
16:30
-
20:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson
formaður
Þórey Bjarnadóttir
aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson
aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Undirbúningur að hönnun nýs leikskóla
Fræðslustjóri fór yfir stöðu mála þar sem m.a. kom fram að unnið er að því að hönnun nýs leikskóla á lóð Lönguhóla fari í grenndarkynningu í lok vikunnar. Kynnt voru drög að mismunandi útfærslum að hönnun og þau rædd.
2.
Dagvistun/leikskóli í Öræfum
Verið er að standsetja húsnæði í Hofgarði og girða af lóð til þess að geta hafið leikskólastarfsemi í húsinu.
3.
Samstarf GH og Grsk. í Hofgarði um kennslu unglinga
Áætlun um samstarf Grunnskólans í Hofgarði og Grunnskóla Hornafjarðar lögð fram til umræðu. Hún er sniðin að því að mæta þörfum unglinga í Öræfum. Fræðslu- og tómstundanefnd líst vel á áætlunina og hvetur til þess að skólarnir fái að vinna í samræmi við hana.
4.
Hvatning velferðarvaktarinnar vegna kostnaðarþátttöku foreldra
Fjallað var um hvatningu velferðarvaktarinnar um að halda kostnaði vegna skólagagna nemenda í lágmarki. Fram kom að grunnskólar sveitarfélagsins halda kostnaði í lágmarki og hvetja til endurnýtingar m.a. stílabóka og ritfanga.
5.
Fagráð um eineltismál í grunnskólum
Kynntar voru nýjar verklagsreglur um starfsemi fagráðs eineltismála í grunnskólum. Ákveðið var að skólarnir setji upplýsingar um fagráðið inn í eineltisáætlanir sínar.
Kynntar voru nýjar verklagsreglur um starfsemi fagráðs eineltismála í grunnskólum. Ákveðið var að skólarnir setji upplýsingar um fagráðið inn í eineltisáætlanir sínar.
6.
Gjaldskrá Tónskólans
Jóhann fór yfir rekstur tónskólans og hlutfall skólagjalda af honum. Fram kom að skólagjöld nema um 6.64% af rekstrarkostnaði skólans sem er í lægri kantinum samanborið við nokkur önnur sveitarfélög. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að skólagjöld Tónskólans hækki um 12% á næsta skólaári. Nefndin felur starfsmönnum að skoða æskilega reiknireglu skólagjalda og vinna drög að markmiðum og stefnu sveitarfélagsins í gjaldskrármálum. Fram kom að vegna kennaraskorts er ekki hægt að halda úti forskólastarfi skólans í samvinnu við GH í óbreyttri mynd.
7.
Endurskoðun á reglum um akstur foreldra í dreifbýli
Farið var yfir reglur sveitarfélagsins um akstur foreldra í dreifbýli vegna þátttöku barna þeirra í íþrótta- og tómstundastarfi fjarri heimili og reglur um akstur foreldra í dreifbýli með börn í leikskóla. Fræðslu- og tómstundanefnd felur starfsmanni að endurskoða reglurnar og samræma þannig að jafnræðis sé gætt.
8.
Velferðarteymi fundargerðir
60. Fundargerð velferðarteymis lögð fram til kynningar og umræðu. Fræðslu- og tómstundanefnd ítrekar álit sitt um að ráðinn verði tómstundafulltrúi sem beri ábyrgð á frístundastarfi í sveitarfélaginu og stýri verkefninu Heilsueflandi samfélag. Einnig er brýnt að auglýsa eftir starfsmönnum í Þrykkjuna.
9.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Farið var yfir drög að umhverfisstefnu og starfsmanni nefndarinnar falið að senda tillögur hennar til umhverfisnefndar í tölvupósti.
10.
Starfshópur um leikskólamál - 8