Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

24. fundur
19. september 2016 kl. 16:30 - 20:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson formaður
Þórey Bjarnadóttir aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir 1. varamaður
Sigrún Birna Steinarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Yfirlit yfir vinnu vegna sameiningar leikskóla.
Málsnúmer 201609051
Ragnhildur fór yfir minnisblað um ferli sameiningar leikskólanna fram til dagsins í dag.
2.
Grenndarkynning Kirkjubraut 47 Leikskóli
Málsnúmer 201608005
Fræðslustjóri upplýsti að þrjár ábendingar eða athugasemdir hafi borist frá íbúum í nágrenni við Lönguhóla. Skipulagsnefnd mun fjalla efnislega um þær á fundi sínum þann 5. október n.k.
3.
Reglur um úthlutun kennslustundamagns
Málsnúmer 201609050
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að samdar verði reglur um kennslustundaúthlutun og að starfsmenn kynni tillögur þar að lútandi á næsta fundi.
4.
Lestrarstefna Grunnskóla Hornafjarðar
Málsnúmer 201609064
Drög að lestrarstefnu Grunnskóla Hornafjarðar voru kynnt fyrir nefndarmönnum. Fram kom að unnið hefur verið við stefnuna undanfarin 2 - 3 ár og nú er komið að lokasprettinum. Fræðslu- og tómstundanefnd lýsir yfir ánægju með stefnuna.
5.
Vallarstjórn Sindravalla 2016
Málsnúmer 201604092
Farið var yfir fundagerð vallarstjórnar Sindravalla. Umræður urðu um ástand og umhirðu vallanna, tartans og gervigrass. Samþykkt að fela Gunnari Inga að kanna verkferla og fjölda stöðugilda við velli í sveitarfélögum af svipaðri stærð og Sveitarfélagið Hornafjörður er.
6.
Dekkjakurl á gervigrasvöllum
Málsnúmer 201603035
Fræðslu- og tómstundanefnd ítrekar fyrri samþykkt sína um að nefndin fylgist með rannsóknum Umhverfisstofnunar á skaðsemi dekkjakurls og samþykktum Alþingis um málið og mun fylgja ráðleggingum þar um þegar niðurstöður liggja fyrir.

Nánari greinagerð er hægt að sjá hér frá Umhverfisstofnun.
http://www.ust.is/einstaklingar/frettir/frett/2016/07/12/Tilmaeli-Umhverfisstofnunar-um-dekkjakurl-sem-fylliefni-a-gervigrasvollum-/




7.
Gólf í íþróttahúsi Hafnar
Málsnúmer 201609062
Hjálmar vék af fundi undir þessum lið. Fræðslu- og tómstundanefnd felur forstöðumanni íþróttamiðstöðvar að fá faglegt álit á ástandi gólfsins og upplýsingar um kostnað við úrbætur ef þarf.
8.
Skýrsla vinnuskólans 2016
Málsnúmer 201608072
Rætt var um skýrslu Svöfu Mjallar Jónasardóttur um vinnuskólann. Ákveðið að taka málið aftur á dagskrá í upphafi nýs árs.
9.
Velferðarteymi fundargerðir
Málsnúmer 201302035
Fundargerðir 61 og 62 voru lagðar fram til umræðu. Umræður urðu um sálfræðiþjónustu í sveitarfélaginu. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að greiningarferli barna 16-18 ára sé greitt af sveitarfélaginu eins og greiningar grunnskólabarna.

10.
Athugasemdir nefnda við menntastefnu sveitarfélagsins
Málsnúmer 201607036
Farið var yfir ábendingar nefnda.
11.
Menntastefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201603038
Fræðslu- og tómstundanenfd samþykkir lokadrög að menntastefnunni. Tjörvi Óskarsson frá margmiðlunarstofunni Upplausn kynnti tillögu að hönnun og umbroti stefnunnar bæði fyrir heimasíðu sveitarfélagsins og fyrir prentaða útgáfu sem fer í dreifingu til íbúa.
12.
Ungmennaráð - tilnefning 2016
Málsnúmer 201609055
Farið var yfir tilnenfingar til ungmennaráðs og málinu frestað til næsta fundar.
13.
Ráðstefna ungmenna á Suðurlandi
Málsnúmer 201609080
Fræðslu- og tómstundanefnd felur starfsmanni að finna fulltrúa ungmenna til þess að taka þátt í ráðstefnu ungmennaráða á Suðurlandi dagana 28. og 29. september n.k.Einnig þarf að fá umsjónarmann til fararinnar með þeim. Fræðslu- og tómstundanefnd sér um að tilnefna fulltrúa úr sínum röðum.