Fræðslu- og tómstundanefnd
25. fundur
26. október 2016
kl.
16:30
-
19:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson
formaður
Þóra Björg Gísladóttir
varaformaður
Arna Ósk Harðardóttir
1. varamaður
Hjördís Skírnisdóttir
1. varamaður
Einar Smári Þorsteinsson
aðalmaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Menntastefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir að setja menntastefnuna á heimsíðu sveitarfélagsins og hafa hana þar til kynningar fyrir íbúa í tvær vikur. Óskað er eftir ábendingum og athugasemdum íbúa fyrir 10. nóvember n.k.
2.
Ráðning tómstundafulltrúa
Fræðslu- og tómstundanefnd fagnar ráðningu tómstundafulltrúa og býður hann velkominn til starfa. Leitað er að starfsmanni í hlutastarf í Þrykkjunni með tómstundafulltrúa.
3.
Velferðarteymi fundargerðir
Fundargerð velferðarteymis lögð fram til kynningar. Umræður spunnust um upplýsingar frá Rannsóknum og greiningu þar sem fram kom að Sveitarfélagið Hornafjörður hefur ekki keypt rannsóknarskýrslur þeirra síðan 2011. Fræðslu- og tómstundanefnd álítur að þessar skýrslur séu gott innlegg í vinnu við að innleiða verkefnið Heilsueflandi samfélag og leggur til að skoðað verði að gera samning um kaup á skýrslunum.
4.
Ráðning leikskólastjóra
Arna Ósk Harðardóttir vék af fundi undir þessum lið.
Maríanna Jónsdóttir hefur sótt um starf leikskólastjóra í nýjum leikskóla sem auglýst var laust til umsóknar með umsóknarfresti til 3. október s.l.
Maríanna hefur starfað við leikskólann Lönguhóla með hléum frá árinu 1999 sem deildarstjóri, aðstoðarleikskólastjóri og stjórnandi sérkennslu.
Maríanna hefur lokið B.Ed prófi í leikskólakennarafræðum frá Háskólanum á Akureyri og 90 eininga framhaldsnámi í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands.
Tillaga
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að gengið verði til samninga við Maríönnu um ráðningu hennar í starf leikskólastjóra í nýjum leikskóla.
Tillagan var samþykkt samhljóða.

5.
Staða leikskóla- og dagvistarmála
Fram kom að fjöldi barna á biðlistum fædd 2014 og 2015 er samtals 22 börn. Ekki hefur gengið neitt að ráða starfsfólk á Lönguhóla. Fræðslu- og tómstundanefnd beinir því til starfsmanna að skoða m.a. samstarf við Vinnumálastofnun og hvort heimgreiðslur til foreldra geti komið að einhverju gagni. Jafnframt verði skoðaðar leiðir til að bæta kjör starfsmanna í leikskólum.
6.
Rekstur leikskóla-yfirlit
Farið var yfir upplýsingar um rekstrarlega stöðu leikskóla á Hornafirði miðað við landsmeðaltal og ákveðið að fela starfsmanni að taka saman upplýsingar um þróun í rekstri leikskólanna síðast liðin þrjú ár.
7.
Íþróttamál 2016-2017
Fram kom að tartanið á íþróttavellinum hefur aldrei verið gróðurhreinsað síðan það var lagt 2007 og liggur nú undir skemmdum vegna gróðurmyndurnar. Gunnar Ingi hefur leitað tilboða í að hreinsa tartanið og upplýsinga um almenna umhirðu þess. Tilboð hefur borist frá Táhreint ehf. sótthreinsun með gufu og hljóðar það upp á kr.1.612.500 vsk. Ef keyptur yrði ákveðinn tækjabúnaður til viðbótar þeim sem nú þegar er til í íþróttahúsinu og áhaldahúsi sér Gunnar fyrir sér að heimamenn geti hreinsað tartanið sjálfir í kjölfar þessarar fyrstu grunnhreinsunar. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að farið verði í þessa framkvæmd og í kjölfarið keyptur búnaður til þess að annast hreinsunina. Sá búnaður nýtist einnig til hreinsunar á hellulögðum svæðum eins og t.dk við sundlaugina.
Gunnar Ingi fór einnig yfir upplýsingar um gólfið í íþróttahúsinu við Heppuskóla. Hjálmar vék af fundi. Gunnari falið að kanna endingartíma gólfa í íþróttahúsum þar sem alhliða íþróttaiðkun fer fram og hvaða gólfefni henti best í slíkum húsum.
Umræður sköpuðust um unglingalandsmót UMFÍ 2019. Fræðslu-og tómstundanefnd óskar eftir því að eiga fulltrúa í undirbúningsnefnd mótsins.

8.
Rekstur grunnskóla - yfirlit
9.
Reglur um úthlutun kennslustundamagns
Reglur og reiknilíkan um úthlutun kennslustunda lagt fyrir og samþykkt.
10.
Kennslustundamagn 2016-2017
Farið var yfir upplýsinar um fjölda kennslustunda fyrir yfirstandandi skólaár og engar athugasemdir gerðar.
11.
Ungmennaráð - tilnefning 2016
Tilnefningar í Ungmennaráð Hornafjarðar voru samþykktar.
12.
Ráðstefna ungmenna á Suðurlandi
Þóra Björg Gísladóttir sagði frá Ráðstefnu ungmennaráða á Suðurlandi sem haldin var á Hvolsvelli 28.-29. september s.l. Fram kom m.a. að ungmennum finnst mikilvægt að hafa aðgang að geðheilbrigðisþjónustu. Athygli vakti að ungmenni hér ættu kost á að vera áheyrnarfulltrúar í nefndum á vegum sveitarfélagsnins.
Einnig kom fram að Sigrún Birna Steinarsdóttir hefur verið tilnefnd sem fulltrúi í nýstofnað Ungmennaráð á vegum Menntamálastofnunar.
Einnig kom fram að Sigrún Birna Steinarsdóttir hefur verið tilnefnd sem fulltrúi í nýstofnað Ungmennaráð á vegum Menntamálastofnunar.