Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

26. fundur
16. nóvember 2016 kl. 16:30 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson formaður
Þóra Björg Gísladóttir varaformaður
Þórey Bjarnadóttir aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Starfshópur um leikskólamál - 10
Málsnúmer 1610016F
Fundargerð 10. fundar starfshóps um leiksólamál lögð fram til kynningar. Fram kom ábending um að athuga með að hönnun og framkvæmd nýs leikskóla sé umhverfisvæn. Ákveðið að áframsenda ábendingarnar til umsjónarmanns verksins.
2.
Hönnun leikskóla Kirkjubraut 47
Málsnúmer 201610026
Teikningar af leikskólalóðinni lagðar fram til umræðu. Fulltrúar framsóknarmanna lögðu fram eftirfarandi bókun: Það er tillaga okkar Framsóknarmanna að fyrirhugaðri viðbyggingu við Lönguhóla verði frestað og staðsetning nýs leikskóla endurskoðuð. Frekari áhersla verði á að klára þær aðgerðir sem hafnar eru í starfsmannamálum með sameiningu leikskólanna og eflingu innra starfs. Ennfremur verði í framhaldinu unnið að sameiningu árganga eins og krafa foreldra var afdráttarlaus um. Fram kom fyrirspurn um afdrif undirskriftalista um breytta staðsetningu nýs leikskóla.
3.
Staða leikskóla- og dagvistarmála
Málsnúmer 201610051
Auglýst hefur verið ítrekað eftir starfsfólki án árangurs. Heimgreiðslur og kostnaðarmat á þeim verði skoðað. Áfram verði skoðaðir möguleikar sem gætu laðað starfsfólk að.
4.
Framtíðarskipulag skólastarfs í Hofgarði
Málsnúmer 201611045
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að skólastjórar Grunnskóla Hornafjarðar og Grunnskólans í Hofgarði ásamt fræðslustjóra skoði útfærslur á framtíðarskipulagi leik- og grunnskólahalds í Öræfum.
5.
Menntastefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201603038
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir hönnun menntastefnunar tilbúna til prentunar.
6.
Samningur við Rannsóknir og greiningu
Málsnúmer 201611030
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að niðurstöður úr könnunum Rannsókna og greiningar verði keyptar næstu tvö árin og frekari kaup ákveðin að þeim tíma loknum. Skoðað verði hvort niðurstöður úr þeim könnunum ásamt niðurstöðum úr skólapúlsinum geti nýst í starfi og mati á heilsueflandi samfélagi.