Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

27. fundur
21. desember 2016 kl. 16:30 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson formaður
Þóra Björg Gísladóttir varaformaður
Þórey Bjarnadóttir aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson aðalmaður
Sigrún Birna Steinarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Samræmd prof 2016
Málsnúmer 201612039
Þórgunnur fór yfir niðurstöður samræmdra prófa. Fram komu vísbendingar um að Leið til árangurs sé að skila einhverjum árangri.
2.
Ný lesfimiviðmið, kynning
Málsnúmer 201611083
Farið var yfir lesfimiviðmið Menntamálastofnunar og niðurstöur GH í lestri miðað við þær. Þrír árgangar hafa nú þegar náð 90% viðmiðunum
Aðrir árgangar hafa náð 75% eða meira
Leggja þarf áherslu á að hópurinn sem nær 50% viðmiðum verði stærri. Skólinn telur raunhæft að ná markmiðum MMS.
3.
Kannanir Skólapúlsins í GH.
Málsnúmer 201612040
Farið verður yfir niðurstöður á vefsíðu Skólapúlsins
Farið var yfir niðurstöður nemendakönnunar skólapúlsins og þær ræddar.
4.
Tilkynning um skil starfshóps um málefni Mentor og ný presónuverndarlög
Málsnúmer 201612013
Árið 2018 verða innleidd ný lög í samræmi við reglur ESB um meðferð persónuupplýsinga. Verið er að athuga hjá Mentor hvort kerfið þeirra muni standast reglur um öryggi skráðra upplýsinga. Samband íslenskra sveitarfélaga mun leiða þessa vinnu með sveitarfélögunum.
5.
Kjarasamningur Félags grunnskólakennara og Sambands Íslenskra Sveitarfélaga
Málsnúmer 201612006
Fram kom að meginverkefni sveitarfélaga vegna bókunar 1 i nýsamþykktum kjarasamningi felst í því að afla upplýsinga frá kennurum um hvað betur má fara í skólastarfinu og starfsumhverfi kennara.Þessi vinna er hafin í Grunnskóla Hornafjarðar.
6.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 21
Málsnúmer 1611014F
Sigrún Birna Steinarsdóttir er nýkjörinn formaður Ungmennaráðs Hornafjarðar og sat fundinn sem fulltrúi ráðsins. Ungmenni í sveitarfélaginu óska eftir að þau fái hús eða stað til að hittast á. Fram kom að sveitarfélagið hefur gert samning við FAS um að nemendur fái aðgang að Þrykkjunni eitt kvöld í viku og hefst það strax á nýju ári. Einnig kom fram að ákveðnir staðir gætu hentað undir ungmennahús. Fræðslu- og tómstundanefnd felur starfsmanni að finna lausn sem fyrst í samstarfi við Ungmennaráð.
7.
Skipurit í nýjum leikskóla
Málsnúmer 201610057
Farið var yfir minnisblað um stjórnendaskipti í leikskólunum. Samkomulag hefur orðið um að núverandi leikskólastjórar á Krakkakoti og Lönguhólum láti af störfum 31. des. n.k. í stað 31. mars eins og áður var áætlað. Fulltrúi starfsmanna, Harpa Þorgeirsdóttir óskaði eftir að eftirfarandi væri bókað: Mér þykir mjög óeðlilegt að í stjórnunarteymi í nýjum leikskóla sitji ekki eingöngu leiksólakennarar þar sem verið er að fara að skipuleggja leikskólastarf og þar sem það eru eingöngu leikskólakennarar sem hafa menntun til að skipuleggja og móta það starf. Því þætti mér eðlilegast að í slíku stjórnunarteymi sætu leikskólastjóri, aðstoðarleikskólastjóri og einn fulltrúi leikskólakennara og þá fleiri ef þurfa þykir.

Fræðslustjóri upplýsti efitrfarandi: Það eru ekki skilyrði í lögum að leikskólakennarar þurfi að skipa allar stjórnendastöður í leikskóla en gerð er krafa um að leikskólastjórar og aðstoðarleikskólastjórar hafi leikskólakennaramenntun.
Samkvæmt meðalhófsreglu stjórnsýslulaga og ákvæðum í kjarasamningum skal gæta meðalhófs þegar verið er að gera breytingar á störfum. Það þýðir að leitast skal við að fólk haldi störfum sínum nema brýn nauðsyn kalli á annað. Allir starfsmenn beggja leikskólanna sem þess óska halda störfum sínum. Núverandi leikskólastjórum var tilkynnt að störf þeirra yrðu lögð niður vegna ákvörðunar um sameiningu leikskólanna Krakkakots og Lönguhóla og þeir hvattir til að sækja um starf leikskólastjóra í nýjum leikskóla. Aðstoðarleikskólastjóri og umsjónarmaður sérkennslu á Krakkakoti hafa ákveðið að una breytingum sem verða á starfi þeirra í nýjum leikskóla í kjölfar sameiningarinnar.

Margrét Ingólfsdóttir leikskólastjóri á Lönguhólum og Snæfríður Svavarsdóttir leikskólastjóri á Krakkakoti láta af störfum þann 31. desember n.k. Þær hafa báðar starfað ötullega að uppbyggingu og þróun leikskólamála í sveitarfélaginu í rúm 20 ár bæði sem leikskólakennarar og stjórnendur leikskóla. Fræðslu- og tómstundanefnd þakkar þeim fyrir farsælt samstarf og vel unnin störf í þágu leikskólamála í sveitarfélaginu.
8.
Mönnun leikskólanna
Málsnúmer 201612058
Umræður urðu um minnisblað um fjölda barna og starfsmanna á leikskólunum á Höfn í desember 2016.
9.
Starfshópur um leikskólamál - 11
Málsnúmer 1612004F
Fundargerðin lögð fram og samþykkt.
10.
Gjaldskrá sundlaugar 2017
Málsnúmer 201612045
Farið var yfir fjölda gesta í sundlaugina og tekjur laugarinnar fyrir árið 2016. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að gjald fyrir staka miða hækki úr kr. 800- í kr. 850 en gjaldskrá haldist að öðru leiti óbreytt næsta ár. Nefndin vísar þessum gjaldskrárbreytingum til afgreiðslu í bæjarráði.
Fundarmenn skoðuðu nýtt sundlaugarkort sem taka á í notkun í byrjun febrúar 2017.
11.
Reglur um styrkveitingar fræðslu- og tómstundanefndar
Málsnúmer 201612015
Fræðslu- og tómstundanenfd fór yfir reglur um styrkveitingar nefndarinnar og samþykkti að vísa þeim til afgreiðslu í bæjarráði.
12.
Menntastefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201603038
Prentuð útgáfa bæklings sem borin hefur verið í hús skoðuð og stefnan í heild sinni á vefnum.
Prentuð útgáfa bæklings sem borin hefur verið í hús var skoðuð sem og stefnan í heild sinni á vefnum. Rætt var um næstu skref með aðgerðaráætlanir skóla og annarra stofnana.
13.
Velferðarteymi fundargerðir
Málsnúmer 201302035
Fundargerð velferðarteymis lögð fram.