Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

34. fundur
23. ágúst 2017 kl. 16:15 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þóra Björg Gísladóttir varaformaður
Þórey Bjarnadóttir aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson aðalmaður
Sigrún Birna Steinarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Hjördís Skírnisdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Heimsókn í leikskóla
Málsnúmer 201708027
Fræðslu- og tómstundanefnd skoðar Sjónarhól við Víkurbraut og framkvæmdir við nýjan leikskóla.
Að beiðni byggingarstjóra er heimsókn á framkvæmdastað nýbyggingar frestað til kl. 16:00 þriðjudaginn 29. ágúst.
2.
Reglur fyrir leikskóla Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201706015
Farið var yfir reglurnar og breytingar á þeim frá síðasta fundi. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir reglurnar með áorðnum breytingum.

Maríanna leikskólastjóri greindi frá stöðu mála á leikskólanum Sjónarhóli nú eftir sumarfrí. Þar kom m.a. fram að búið er að manna leikskólann, einungis vantar í tvær hlutastöður eftir hádegið.
Umræður urðu um bílastæði og aðgengi að leikskólanum.
3.
Reglur vegna leikskólavistar utan lögheimilissveitarfélags
Málsnúmer 201708049
Farið var yfir reglur vegna leikskóladvalar utan lögheimilissveitarfélags og þær samþykktar.
4.
Skólastarf í Hofgarði 2017-2018
Málsnúmer 201708025
Fram kom að ekki tókst að manna öll störf í leik- og grunnskólanum í Hofgarði. Einungis er hægt að hafa leikskólann opinn fjóra daga í viku. En tekist hefur að leysa kennslu grunnskólanemenda upp í 10. bekk m.a. með lotukennslu í skapandi greinum og dreifnámi í gegnum tölvur á unglingastigi.
5.
Dreifmenntun á unglingastigi í Hofgarði
Málsnúmer 201708030
Farið var yfir lýsingu ráðgjafafyrirtækisins Tröppu á dreifnámi á unglingastigi og Magnhildur lýsti því hvernig undirbúningur dreifnámsins hefur farið af stað. Fram kom að fjarnám eða dreifnám hefur ekki áður verið framkvæmt á Íslandi með þessum hætti. Fræðslu- og tómstundanefnd lýsir ánægju sinni yfir þessari lausn og mun fylgjast með framvindunni.
6.
Reglur vegna grunnskólavistar utan lögheimilissveitarfélags
Málsnúmer 201708048
Farið var yfir reglur vegna grunnskólavistar utan lögheimilissveitarfélags og þær samþykktar.
7.
Skipan ungmennaráðs 2017-2018
Málsnúmer 201708026
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir starfsmaður í leikskólanum Sjónarhóli hefur gefið kost á sér til setu í Ungmennaráði Hornafjarðar sem fulltrúi á vinnumarkaði.
Fræðslu- og tómstundanefnd tilnefnir Sigrúnu Birnu Steinarsdóttur sem aðalmann nefndarinnar í Ungmennaráði Hornafjarðar og Sigríði Þórunni Þorvarðardóttur sem varafulltrúa.
8.
Reglur um skráningu í skólamáltíðir
Málsnúmer 201708037
Farið var yfir reglur vegna skráninga í skólamáltíðir í leik -og grunnskólum sveitarfélagsins og þær samþykktar.