Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

35. fundur
30. ágúst 2017 kl. 16:00 - 17:15
Leikskólinn Sjónarhóll
Nefndarmenn
Þóra Björg Gísladóttir varaformaður
Þórey Bjarnadóttir aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Einar Smári Þorsteinsson aðalmaður
Hjördís Skírnisdóttir 1. varamaður
Sigrún Birna Steinarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Reglur fyrir leikskóla Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201706015
Eftir síðasta fund kom í ljós að ekki höfðu vistast þær breytingar sem nefndin samþykkti á fundinum. Reglurnar eru því lagðar fyrir fundinn til staðfestingar.
REglur fyrir leikskóla Sveitarfélagsins Hornafjarðar lagðar fram og þær samþykktar.
2.
Heimsókn í leikskóla
Málsnúmer 201708027
Þessum lið var frestað á síðasta fundi að beiðni verktaka. Leikskólinn Sjónarhóll verður skoðaður og í framhaldi af því nýbyggingin við Kirkjubraut. Björn Þór Imsland umsjónarmaður fasteigna verður með í för.
Nefndarmenn skoðuðu bráðabirgðahúsnæði Leikskólans Sjónarhóls við Víkurbraut undir leiðsögn Maríönnu leikskólastjóra. Björn Imsland var síðan leiðsögumaður um nýbygginguna við Kirkjubraut.