Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

36. fundur
27. september 2017 kl. 16:30 - 19:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þóra Björg Gísladóttir varaformaður
Þórey Bjarnadóttir aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Hjördís Skírnisdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Leikskólinn Sjónarhóll: Erindi frá starfsfólki
Málsnúmer 201709508
Í umræðum kom fram að það eru fáir foreldrar sem nýta sér opnunartímann yfir hátíðirnar. Margir skrá börn sín ekki í frí en svo mæta þau ekki þessa daga. Ennfremur kom fram að jólin raðast misjafnlega þannig að það eru mismargir vinnudagar milli jóla og nýárs. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að leikskólastjóri athugi viðhorf foreldra fyrir 15. nóvember, til þess að hafa lokað milli jóla og nýárs þetta árið, á meðan ástand húsnæðismála í leikskólanum er eins og það er. Fræðslu- og tómstundanefnd vill ekki setja lokun yfir hátíðir í reglur um leikskóla til frambúðar. Ákveðið að upplýsingar úr könnun meðal foreldra liggi fyrir á fundi nefndarinnar 15. nóvember og að ákvörðun verði tekin á grunni þeirra upplýsinga.
2.
Vallarstjórn Sindravalla 2017
Málsnúmer 201704034
Farið var yfir fundargerð vallarstjórnar og hún rædd.
3.
Vinnuskóli 2017
Málsnúmer 201709196
Herdís upplýsti að í fyrsta sinn í mörg ár var nemendum úr 7. bekk boðið að vinna í vinnuskólanum í sumar. Fjöldi þeirra í vinnu í sumar var 21 börn, níu úr 8. bekk, þrjú úr 9. bekk og enginn úr 10. bekk. Launakjör barnanna í vinnuskólanum á HÖfn eru í efri kantinum miðað við vinnuskóla í öðrum sveitarfélögum.
4.
Skipan ungmennaráðs 2017-2018
Málsnúmer 201709249
Í Ungmennaráði sitja nú 10 fulltrúar og búið er að fullskipa ráðið í samstarfi við nemendaráð grunnskólans og framhaldsskólans og Þrykkjuráð. Fram kom að ekki var hægt að fara eftir ákvæðum erindisbréfsins um kosningar á ungmennaþingi í september, þar sem því þurfti að fresta af óviðráðanlegum ástæðum fram í nóvember. Ákveðið að dagsetning og dagskrá ungmennaþings næsta haust liggi fyrir í maí.
5.
Ungmennaþing 2017
Málsnúmer 201705032
Fram kom að ungmennaþingið verður fyrstu eða aðra vikuna í nóvember en endanleg ákvörðun um dagsetningu verður tekin á fyrsta fundi nýskipaðs Ungmennaráðs.
6.
Tónskóli Austur-Skaftafellssýslu: Gjaldskrá
Málsnúmer 201709515
Jóhann upplýsti að forskólinn fyrir nemendur í 2. og 3. bekk er aftur farinn af stað og nú einu sinni í viku. Fram kom að nemendum í Tónskólanum hefur fækkað jafnt og þétt undanfarin ár en þó hlutfallslega meira en sem nemur fækkun nemenda í grunnskólanum. Leiða má líkum að því að orsaka sé að leita í aukinni samkeppni um frístundir barna og ungmenna. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að skólagjöld Tónskólans hækki um 5% til að halda í við vísitöluhækkanir. Þess ber þó að geta að þrátt fyrir þessa hækkun er Tónskólinn með skólagjöld sem er meðal þeirra lægstu á landinu. Nefndin hvetur til þess að skólinn fari í kynningarátak meðal foreldra og grunnskólabarna þar sem starf skólans og kostir tónlistarnáms er kynnt. Jafnframt þarf að kynna það vel að tómstundastyrkurinn dekkar skólagjöldin í Tónskólanum að mestu leiti.
7.
Íþróttamiðstöð: endurbætur
Málsnúmer 201709514
Brýnt er orðið að vinna að endurbótum á gólfi íþróttahússins, sem og körfubolta- og sparkvelli við Heppuskóla.
Fræðslu- og tómstundanefnd setur í forgang að leggja nýtt gólfefni á íþróttahúsið og skorar á bæjarráð að láta leggja nýtt gólf þar, í desember 2017 þegar grunnskólinn er farinn í jólafrí.
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að farið verði í endurbætur á körfubolta- og sparkvelli við Heppuskóla á næsta ári og að gert verði ráð fyrir fjármagni í þær endurbætur í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018.
8.
Skólaakstur:Endurskoðun akstursskrár
Málsnúmer 201709516
Rætt var um skólaaksturinn og skipulag hans. Breytingar hafa orðið á áður samþykktri akstursáætlun frá því í vor vegna ófyrirséðrar fjölgunar á börnum í sveitum við upphaf skólaárs. Fram kom að Fallastakkur hefur sent inn erindi um endurskoðun á fyrirkomulagi skólaaksturs með hliðsjón af samningnum við sveitarfélagið. Fræðslu- og tómstundanefnd felur starfsmanni að vinna að endurskoðun á fyrirkomulagi skólaaksturs í samvinnu við Fallastakk.