Fræðslu- og tómstundanefnd
42. fundur
21. febrúar 2018
kl.
16:30
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson
formaður
Þóra Björg Gísladóttir
varaformaður
Þórey Bjarnadóttir
aðalmaður
Einar Sigurjónsson
aðalmaður
Sigrún Birna Steinarsdóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Arna Ósk Harðardóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 32
Fundargerð Ungmennaráðs lögð fram til kynningar.
2.
Niðurstöður lesfimiprófa jan.2018
Gestir undir liðum 2, 3 og 4 eru: Þórgunnur Torfadóttir skólastjóri GH., Herdís Tryggvadóttir fulltrúi kennara. Magnhildur Gísladóttir skólastjóri í Hofgarði tekur þátt í lið 2 og 3 í síma.
Skýrsla MMS lögð fram. Þórgunnur fór yfir árangur nemenda Grunnskóla Hornafjarðar í lesfimi, en það mat mælir leshraða og hversu áreynslulaust nemendur lesa. Ánægjulegt er að sjá hve unglingarnir hafa tekið vel við sér. Flestir árgangar samsvara landsmeðaltali og þar yfir. Magnhildur ræddi niðurstöður í Hofgarði en lesfimiprófin voru ekki tekin þar í fyrra. Árangur í september sl. var slakur en niðurstöður janúarprófanna sýna fram á bættan árangur.
3.
Starfsmannamál í Grunnskólum Hornafjarðar
Farið var yfir minnisblað um stöðu starfsmannamála í grunnskólum sveitarfélagsins. Hlutfall réttindakennara fer lækkandi við Grunnskóla Hornafjarðar en nú er staðan sú að þriðjungur kennara eru leiðbeinendur. Staðan í Hofgarði er góð þar sem fjórir af fimm starfsmönnum við kennslu þar, eru réttindakennarar. Fulltrúar skólans telja að laun kennara séu mikill áhrifaþáttur í því hve erfitt er að fá réttindakennara til starfa. Annar orsakaþáttur er vaxandi álag í starfinu þar sem tilhneiging stjórnvalda hefur verið sú að beina fjölda verkefna, sem ekki er kennsla, inn í skólana. Fram kom að Menntamálastofnun samþykkti 100 undanþágur til leiðmeðnenda á landinu, í ágúst sl. og þar af voru 10 til GH. Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur til þess að bæjarstjórn beiti sér fyrir því hjá samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga að laun kennara verði samkeppnishæf við laun annarra háskólamenntaðra stétta með sambærilega menntun. Ennfremur að sveitarfélagið skoði hvernig það geti bætt starfsumhverfi kennara svo auðveldara verði að ráða réttindafólk og halda þeim sem eru í starfi.
4.
Skólaakstur/skólabyrjun: Hugmynd til umræðu
Bókun 40. fundar fræðslu- og tómstundanefndar 20.12. sl. var send til skólastjóra GH með ósk um að starfsfólk skólans tækju til umræðu kosti og galla þess að seinka daglegri skólabyrjun um eina klukkustund. Þá hæfist skólinn kl. 9 í stað kl. 8 eins og nú er.
Í janúar fóru fram umræður um bókun fræðslunefndar um að seinka skólabyrjun á morgnana, á starfsmannafundi í GH og einnig í skólaráði. Engar bókanir voru gerðar á þessum fundum en fulltrúar skólans tjáðu fundarmönnum að meðal starfsmanna skólans og í skóaráði hafi verið skiptar skoðanir um ágæti þess að seinka skólabyrjun. Bent var á að allt starf með börnum lengdist fram á daginn í samræmi við upphaf skóladags. Bent var á að seinkun skólabyrjunar kallaði á breytt skipulag í fleiri stofnunum sem sinna börnum. Fræðslu- og tómstundanefnd felur fræðslustjóra að stofna til umræðu meðal foreldra, íþróttafélaga og Tónskólans um málið.
5.
Viljayfirlýsing: aðgerðir gegn ofbeldi, áreitni og einelti á vinnustöðum
Þetta var tekið fyrir á bæjarráðsfundi 12.01. sl. og eftirfarandi bókað 201802024 - Viljayfirlýsing: aðgerðir gegn ofbeldi, áreitni og einelti á vinnustöðumErindi dagsett 5. febrúar Viljayfirlýsing um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kyndbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.Bæjarráð tekur undir viljayfirlýsingu Sambands íslenskra sveitarfélaga sem er eftirfarandi: "Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hvetur sveitarfélög til að skilyrða fjárveitingar til íþróttafélaga og annarra félaga sem bjóða upp á tómstundaiðkun fyrir börn og unglinga, því að félögin setji sér siðareglur, viðbragðsáætlanir og fræði sitt fólk um ofbeldi, kynferðislega áreitni og kynferðisofbeldi. Mikilvægt er að félög sýni fram á að farið sé eftir jafnréttisáætlunum og jafnréttislögum í starfi sínu. Séu slíkar reglur nú þegar til staðar hvetur stjórn sambandsins sveitarfélög til að yfirfara sínar stefnur með þetta í huga." Bæjarráð felur fræðslustjóra að upplýsa íþrótta- og félagasamtök á svæðinu sem bjóða uppá tómstundastarf fyrir börn og unglinga um viljayfirlýsinguna. Fram kom að í lok árs er samningur sveitarfélagins við Umf. Sindra laus og í nýjum samningi þarf að setja inn ákvæði um viðbrögð við ofbeldi. Fræðslustjóra er falið að upplýsa önnur aðildarfélög USÚ og stjórn Björgunarfélags Hornafjarðar um þessa samþykkt og vinnu tengda henni.
Lárus fór yfir bréf frá Umf. Sindra til fræðslu- og tómstundanefndar þar sem fram kemur hvað íþróttahreyfingin í landinu og Umf. Sindri hefur gert og áformar að gera til þess að koma í veg fyrir kynferðislegt ofbeldi og annað ofbeldi. Á fundi stjórnar Umf. Sindra 25. janúar sl. var ákveðið að dreifa leiðbeiningabæklingum ÍSÍ um forvarnir og viðbrögð við ofbeldi til allra stjórnarmanna deilda Sindra og til þjálfara. Stjórnarmenn deilda fara yfir leiðbeiningarnar með þjálfurum. Síðan kynnti Lárus siðareglur sem Umf. Sindri hefur samþykkt og eru í gildi innan félagsins. Innan vébanda ÍSÍ og UMFÍ er í gangi vinna til þess að styðja aðildarfélög þeirra í viðbrögðum og verkferlum vegna ofbeldismála. Lárus og Jóhanna Íris lýstu yfir vilja til þess að samræma viðbragðsáætlanir aðildarfélaga USÚ vegna ofbeldismála af öllu tagi. Fram kom að ábendingar hafa borist til starfsmanna Umf. Sindra vegna ofbeldis, eineltis í búningsklefum í Mánagarði þar sem enginn starfsmaður er til staðar í húsinu sem getur haft eftirlit með hegðun í klefunum. Fram kom að samningur sveitarfélagsins við Umf. Sindra rennur út í árslok og setja þarf inn í nýja samninga aðildarfélaga og aðra sambærilega samninga, ákvæði um viðbrögð við hvers kyns ofbeldi. Fræðslustjóra er falið að upplýsa stjórnir aðildarfélaga USÚ og Björgunarfélags Hornafjarðar um þessa samþykkt og vinnu vegna hennar.
6.
Menntastefna-Aðgerðaáætlun
Menntastefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar var samþykkt og gefin út í desmeber 2016. Árið 2017 fór orkan í að vinna með kennurum að þarfagreiningu vegna Bókunar 1 í kjarasamningi KÍ og samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem og í að vinna að sameiningu leikskólana. Eftir er að vinna aðgerðaáætlun í samræmi við markmið menntastefnunnar með starfsfólki skólanna.
Fræðslu- og tómstundanefnd felur fræðslustjóra í samvinnu við skólastjóra að hefja vinnu við aðgerðaáætlun í samræmi við markmið menntastefnunnar. Aðgerðaáætlun verði kynnt á fundi nefndarinnar í maí.
7.
Styrkumsóknir fyrir starfsárið 2018 fræðslu og tómsundanefnd
Ein umsókn barst og var hún um styrk vegna náms. Umsóknin fellur ekki undir úthlutunarreglur nefndarinnar: "Styrkir eru veittir til einstaklinga, félaga og samtaka er vinna að verkefnum sem falla undir fagsvið fræðslu- og tómstundanefndar."