Fræðslu- og tómstundanefnd
43. fundur
21. mars 2018
kl.
15:30
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þóra Björg Gísladóttir
varaformaður
Þórey Bjarnadóttir
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Einar Sigurjónsson
aðalmaður
Hjördís Skírnisdóttir
1. varamaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Heimsókn í leikskóla
Fundurinn byrjar á heimsókn og skoðunarferð í nýja leikskólann Sjónarhól við Kirkjubraut.
Nefndarmenn byrjuðu fundinn með heimsókn í nýja leikskólann og fannst þeim ánægjulegt hve framkvæmdum miðar vel og hve öllu virðist vera haganlega fyrirkomið.
2.
Leikskólinn Sjónarhóll: Viðbótar skipulagsdagar 2018
Fræðslu- og tómstundanefnd fjallaði um ósk stjórnenda leikskólans um þrjá viðbótar starfsdaga áður en starfsemi hefst í nýjum leikskóla í ágúst. Dagarnir eru skipulagðir í flutninga, uppstilllingar og skipulag á deildum og sameiginleg námskeið þar sem allir starfsmenn deilda fá sömu grunnfræðslu m.a. í Uppeldi til ábyrgðar, heilsueflandi leikskóla, tákn með tali, auk þess verður eldhússtarfsfólki boðið upp á sérstaka fræðslu um næringu o.fl. Nefndin hrósar leikskólastjóra fyrir skipulagt og vel útskýrt erindi og samþykkir framlagða ósk stjórnenda.
3.
Leikskólinn Sjónarhóll: Verklag í manneklu
Leikskólastjóri lagði fram viðbragðsáætlun við því þegar margir starfsmenn eru frá vinnu á sama tíma vegna veikinda eða veikinda barna. Komið hefur fyrir að það vanti 10-15 manns og það gerir alla starfsemi mjög erfiða. Fræðslu- og tómstundanefnd telur það til mikilla bóta að foreldrar viti fyrirfram til hvaða skipulagðra viðbragða verður gripið í slíkum aðstæðum og samþykkir viðbragðsáætlunina.
4.
Vöruhús: Skýrsla 2017
Nefndin þakkar forstöðumanni Vöruhúss og verkefnastjóra Fab Lab smiðju fyrir greinargóða skýrslu. Í umræðum um skýrsluna kom fram að smiðjan er alfarið rekið á kostnað Sveitarfélagsins og hefur verið frá upphafi. Eina aðkoma Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands (NMÍ) hefur verið fjárframlag í eitt skipti til tækjakaupa og aðgangur verkefnastjóra að samstarfsneti smiðjanna. Afrakstur kennslumyndbanda sem verkefnastjórinn hefur unnið er notað í kennslu í framhaldsskólum víða um land.
Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur til þess að Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu og verði send skýrsla um þá vinnu sem fram hefur farið í Fab Lab Hornafirði síðustu þrjú ár. Samhliða skýrslunni verði sent inn erindi þar sem farið er fram á að ráðuneytið og NMÍ upplýsi sveitarfélagið um með hvaða hætti þessar stofnanir hugsa sér að styðja við nýsköpun á landsbyggðinni til framtíðar.
Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur til þess að Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu og verði send skýrsla um þá vinnu sem fram hefur farið í Fab Lab Hornafirði síðustu þrjú ár. Samhliða skýrslunni verði sent inn erindi þar sem farið er fram á að ráðuneytið og NMÍ upplýsi sveitarfélagið um með hvaða hætti þessar stofnanir hugsa sér að styðja við nýsköpun á landsbyggðinni til framtíðar.
5.
Grunnskólar: Framkvæmd samræmdra prófa í 9. bekk
Eygló lýsti því að hér eins og annars staðar voru nemedur að detta út og inn af vefnum í próftökunni. Hún lýsti aðdáun sinni á einbeitingu nemenda þrátt fyrir þessa ágalla, en þau héldu þetta út og luku prófunum. Þetta er í þriðja sinn sem samræmd próf eru tekin rafrænt og hefur gengið vel fram að þessu.
6.
Grunnskólar: Písa 2018
Farið var yfir upplýsingar um Písa prófið sem lagt verður fyrir þann 10. apríl n.k. í 10. bekk og tekur um þrjá og hálfan tíma. Hvatt var til þess sveitarfélög umbunuðu nemendum með einhverjum hætti s.s. með því að bjóða upp á morgunverð eða pítsur eða eitthvað þess háttar. Skólastjórnendur leggja til að nemendum verði boðið í pítsur í lok prófdags og er nefndin hlynnt því.
7.
Velferðarteymi: fundargerðir og mál 2018
Fundargerð 79. fundar velferðarteymis lögð fram til kynningar.