Fræðslu- og tómstundanefnd
45. fundur
24. maí 2018
kl.
16:30
-
19:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjálmar Jens Sigurðsson
formaður
Þóra Björg Gísladóttir
varaformaður
Þórey Bjarnadóttir
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Sigrún Birna Steinarsdóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Arna Ósk Harðardóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Þrykkjan 2017-2018
Adisa fór yfir árskýrslu um starf Þrykkjunnar sl. skólaár. Hún lýsti ánægju með nýja húsnæðið og skýrslan ber vitni um það að það hefur verið fjölbreytt dagskrá og viðburðir í boði fyrir krakkana. Gerð var tilraun með að halda úti Ungmennahúsi einu sinni í viku en aðsóknin var nánast engin. Dagþjónusta fatlaðra hefur haft aðgang að Þrykkjunni einu sinni í viku og líkar mjög vel. Adisa ætlar í nám næsta skólaár og var henni þakkað fyrir gott starf sl. vetur.
2.
Skýrsla tómstundafulltrúa 2018
Herdís fór yfir árskýrsku tómstundafulltrúa ásamt starfsemi ungmennaráðs en tómstundafulltrúi er starfsmaður ráðsins og heldur utan um fundi þess. Miklu munar í fundarsókn í ungmennaráði að fulltrúum var fjölgað upp í 10 með varamönnum. Herdís og Sigrún fóru yfir Skuggakosningarnar fyrir 13-17 ára sem eru á kjördag 26. maí n.k.
3.
Rannsóknir og greining: Lýðheilsa 8.-10. bekkur
Herdís fór yfir skýrslu frá Rannsóknum og greiningu um könnun á lýðheilsu í 8. - 10. bekk. Nokkur jákvæð teikn eru í niðurstöðunum. Ákveðið hefur verið að vinna með þessar niðurstöður ásamt niðurstöðum fleiri kannanna með skólafólki og foreldrum í haust.
4.
Tónskólinn: Skóladagatal 2018-2019
Jóhann fór yfir skóladagatal Tónskólans sem skipulagt er með hliðsjón af dagatali grunnskólans. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir skóladagatal skólans með fyrirvara um tvo staka föstudaga 4. jan og 26. apríl sem þarf að samræma milli tónskólans og grunnskólans ásamt 23. og 24.apríl 2019.
5.
Grunnskóli Hornafjarðar: Skóladagatal 2018-2019
Þórgunnur fór yfir skóladagatal grunnskólans. Umræður urðu um fjarvistir nemenda úr skóla og ástæður fyrir þeim. Rætt var um áhrif fjarvista á nám og líðan nemenda. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir skóladagatal grunnskólans fyrir næsta skólaár.
6.
Skólavog - skólapúls, kannanir
Farið var yfir niðurstöður kannana Skólapúlsins um skólastarf í Grunnskóla Hornafjarðar sem gerðar voru meðal starfsfólks og foreldra. Einnig var farið yfir könnun um ánægju af lestri nemenda í 1. - 5. bekk. Niðurstöður kannananna eru allar inni á heimasíðu grunnskólans. Niðurstöður nemendakönnunar fyrir 6.- 10. bekk eru væntanlegar í byrjun júní.
7.
Skólaakstur: leik- og framhaldsskólanemar
Fræðslu- og tómstundanefnd telur mikilvægt að Sveitarfélagið vinni að því að leik- og framhaldsskólanemendur frá 4 ára upp að 18 ára aldri búsettir vestan Hornafjarðarfljóta geti nýtt sér skólaakstur ásamt grunnskólanemendum. Mikilvægt er að styðja við búsetu til sveita með þessum hætti þar sem vegalengdir eru miklar og skutl foreldra barna í leik- og framhaldsskóla slítur í sundur vinnudag foreldranna fyrir utan svo kostnaðinn sem af akstrinum hlýst. Undanfarin ár hefur verið uppsveifla í atvinnu til sveita. Fyrirspurnir fjölskyldufólks um störf þar hafa aukist en tímafrekur og kostnaðarsamur akstur með börn í leikskóla er þáttur sem hindrar að fólk sæki um störf.
8.
Ósk um endurskoðun samnings V.fimleikaiðkunar í Mánagarði
Fræðslu- og tómstundanefnd felur starfsmanni að vinna að úrbótum í Mánagarði í samræmi við bréf fimleikadeildarinnar.
9.
Nýting tómstundastyrks
Farið var yfir nýtingu tómstundastyrks síðast liðin 4 ár og ánægjulegt er að sjá hve nýtingin fer stigvaxandi. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur áherslu á að íbúum af erlendum uppruna verði kynntur tómstundastyrkurinn sérstaklega.
10.
Kveðja formanns fræðslu- og tómstundanefndar
Hjálmar Jens Sigurðsson formaður nefndarinnar þakkaði nefndarmönnum og starfsmanni fyrir samstarfið á kjörtímabilinu.