Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

47. fundur
15. ágúst 2018 kl. 16:30 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Nejra Mesetovic aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir aðalmaður
Sigrún Birna Steinarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Tónskólinn: Skóladagatal 2018-2019
Málsnúmer 201805066
Skoða þarf tvo staka föstudaga 4. jan og 26. apríl sem þarf að samræma milli tónskólans og grunnskólans ásamt 23. og 24.apríl 2019.
Farið yfir breytingar á skóladagatali Tónskólans og dagatalið samþykkt. Fram kom að mönnun skólans er nægileg til að sinna kennslu þeirra nemenda sem stunda nám við skólann næsta vetur.
2.
Grunnskóli Hornafjarðar: Stoðþjónusta
Málsnúmer 201808009
Þórgunnur Torfadóttir skólastjóri, Herdís T. Tryggvadóttir fulltrúi kennara sátu fundinn undir liðum 2-4.
Þórgunnur fór yfir skipulag stoðþjónustu GH og breytingar á henni sem nefndin staðfestir. Fram kom að kennsla nemenda með íslensku sem annað móðurmál er að mestu leiti á hendi sérstaks kennara í Heppuskóla en dreifist á fleiri kennara í Hafnarskóla.
3.
Grunnskóli Hornafjarðar: Skólareglur og skólasókn
Málsnúmer 201803034
Síðasta vor samþykkti skólaráð GH viðbót við skólareglur skólans: Skólasóknarkerfi í 1.-10. bekk, leyfi og veikindi.
Þórgunnur fór yfir skólareglur GH og breytingar á þeim. Fram kom að fjarvistir nemenda af ýmsum ástæðum hafa færst í aukana. Um sl. páska voru 51% nemenda með 9-17 daga í fjarvistir en miklar fjarvistir eru líklegar til að hafa áhrif á líðan nemenda. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir viðbót um skólasóknarkerfi í skólareglunum.
4.
Persónuverndarlög: innleiðing reglugerðar, starfshættir
Málsnúmer 201711032
Innleiðing vegna nýrra persónuverndarlaga hófst í GH í mars sl. Skólinn hefur unnið áhættumat og samþykkt upplýsingaöryggisstefnu í samræmi við lögin sem tóku gildi þann 15.07. s.l.
Farið var yfir minnisblað um niðurstöðu áhættumatsins sem kom vel út fyrir skólann. Einnig var kynnt upplýsingaöryggisstefna skólans og drög að öryggisyfirlýsingu starfsfólks.
5.
Leiðbeiningar fyrir skólanefndir vegna leik- og grunnskóla
Málsnúmer 201807029
Samband íslenskra sveitarfélaga áætlar að halda námskeið fyrir fulltrúa nýrra fræðslunefnda er líða tekur á haustið. Farið var yfir upplýsingaefni um hlutverk og skyldur skóla- og fræðslunefnda sem finna má á vef sambandsins og nefndarmenn geta nýtt sér til að setja sig inn í hlutverk sitt og undirbúið sig fyrir væntanlegt námskeið.
6.
Skipulag: Skóla-, íþrótta- og útivistarsvæði
Málsnúmer 201806028
Bókun bæjarráðs 13.08.Formaður lagði til að stofnaður verði stýrihópur um heildarskipulag og uppbyggingu íþrótta-og skólasvæðis. Samþykkt samhljóða. Sæmundur ítrekar skoðun sína á vilja meirihluta Framsóknarflokks um stofnun stýrihóps um uppbyggingu á íþróttasvæði og telur að fræðslunefnd eigi að vera stýrihópurinn.
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir fyrir sitt leiti ákvörðun bæjarráðs.
7.
Erindisbréf stýrihóps um heildarskipulag og uppbyggingu íþrótta- og skólasvæðis
Málsnúmer 201807059
Farið var yfir drög að erindisbréfi fyrir stýrihóp og það samþykkt. Eftitaldir fulltrúar voru tilnefndir í stýrihópinn: Björgvin Sigurjónsson, Hjalti Þór Vignisson og Sandra Sigmundsdóttir fulltrúar B lista, Kolbrún Björnsdóttir og Björgvin Erlendsson fyrir D lista og Hjálmar Jens Sigurðsson fyrir E lista. Farið var yfir kostnaðaráætlun fyrir vinnu stýrihóps og sérfræðiráðgjöf og henni vísað til umfjöllunar í bæjarráði.